Fréttablaðið - 05.02.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 05.02.2019, Síða 16
www.frettabladid.is Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is Ein athyglisverðasta þróunin í bílasölu í Evrópu á síðasta ári var 18% minnkun í sölu dísilbíla og fór hlutfall þeirra niður í 35% af öllum seldum bílum. Bensínbílar voru 58% og bílar knúnir rafmagni að hluta eða fullu og vetnis- eða metanbílar voru 7% seldra nýrra bíla. Heildarsalan í álfunni nam 15,6 milljón bílum og stóð í stað á milli ára. Sala dísilbíla féll í 20 af 27 löndum Evrópu og minnkaði sala þeirra til dæmis um 30% í Bretlandi. Heildarsala dísil- bíla var 5,69 milljónir en var 6,76 milljónir árið 2017. Hlutfall seldra dísilbíla í álfunni hefur ekki verið lægra síðan árið 2001. Búast má við því að þetta hlutfall dísilbíla muni áfram fara hríðlækkandi, en margir bílaframleiðendur áforma að hætta að framleiða dísilbíla vegna hættu- legrar mengunar þeirra. Góð sala umhverfismildra Sala umhverfismildra bíla jókst um 28% og nam í heild 944.800 bílum, en var 737.400 árið 2017. Sala bíla sem eingöngu ganga fyrir rafmagni jókst mest allra gerða bíla, eða um 47%, en 24% vöxtur var í sölu Plug-in Hybrid og Hybrid bílum. Þýskaland var sem fyrr söluhæsta landið með 3.435.789 bíla skráða og næstmest var salan í Bretlandi, 2.367.147 bílar, en þar var þó 6,8% söluminnkun, sem einnig varð í Svíþjóð. Mest aukning bílasölu varð í Litháen, eða um 25,4% og salan jókst um 21,4% í Rúmeníu. Volkswagen var söluhæsta merkið í Evrópu með 1,75 milljónir bíla skráða, Renault var í öðru sæti með 1,1 milljón og Ford með 1,01 milljón. Söluhæsta staka bílgerðin var Volkswagen Golf, Renault Clio þar á eftir og Volkswagen Polo í þriðja sæti. Sala á dísilbílum féll mikið í Evrópu Dísilbílasala minnkaði um nær fimmtung í fyrra, en sala bensínbíla og umhverfisvænna bíla stórjókst. Söluhæsta einstaka bílgerðin í Evrópu í fyrra var Volkswagen Golf. Það er ekki slæmur fararskjóti sem gestum Hótel Les Airelles í Courchevel í Frakklandi er boðið upp á, en þar er gestum skutlað til og frá skíðalyftunum í Rolls Royce Cullinan jeppanum nýja. Þar fer einfaldlega dýrasti fjöldaframleiddi jeppi heims, enda hvernig má minna vera fyrir gesti sem greiða allt að 1,1 milljón króna fyrir gistingu hverrar nætur. Þetta hótel er eitt dýrasta hótel Alpanna og gæti talist mun meira en fimm stjörnu. Rolls Royce mun líka verða með Rolls Royce Dawn með blæju til svipaðra nota á Le Lana hótelinu í Courchevel og gestum mun einnig bjóðast að prófa bílinn því þarna fer rétti kaupendahópurinn fyrir þá rándýru og flottu bíla sem Rolls Royce framleiðir. Rétti kaupendahópurinn Courchevel skíðasvæðið í Frakk- landi er þekkt fyrir að draga að efnaðri hóp skíðaáhugamanna og þar flaksa pelsarnir um göturnar á kvöldin. Rolls Royce er einnig með kynningar á kvöldin á bílum sínum á hótelunum og getur fólk sér- pantað sínar uppáhaldsútfærslur af bílum Rolls Royce á staðnum. Líklega er Rolls Royce á hárrétta staðnum til að kynna væntanlegum kaupendum bíla sína, að minnsta kosti er það þeirra trú. Skíðafólki skutlað á Cullinan í Courchevel Rolls Royce Cullinan í ægifögru landslaginu í Courchevel. Samkvæmt rannsókn sem gerð var af CarRentals.com í Bandaríkjunum eru stýris- hjól bíla að jafnaði fjórum sinnum skítugri en klósettsetur. Í raun eru innréttingar bíla með allra sóða- legustu stöðum sem finna má. Í könnun CarRentals.com, þar sem spurðir voru 1.000 ökumenn, kom fram að 32% þeirra þrifu aldrei innréttingar bíla sinna, eða í mesta lagi einu sinni á ári. Í rannsóknum annarrar bandarískrar stofnunar, National Center for Biotechno- logy Information, er niðurstaðan fremur sjokkerandi er kemur að innréttingum bíla, en þær eru svo óhreinar að klósettsetur eru í flestum tilvikum hreinni og stýris- hjól bíla eru verst og á þeim eru að jafnaði fjórum sinnum meiri óhreinindi en á klósettsetum. Þetta ættu bíleigendur að hafa í huga í umgengni við bíla sína og ef til vill þrífa þá örlítið oftar, ekki bara að utan. Í rannsókninni mældist bakteríufjöldi á hvern fer- sentimetra á stýrishjólum 629 CFU en til samanburðar mælist hann 100 CFU á símaskjáum, 313 CFU á lyftutökkum og 172 CFU á kló- settsetum. Ein sláandi staðreyndin enn sem þessi rannsókn leiddi í ljós er að það finnast að jafnaði 700 mismunandi bakteríutegundir í innréttingum bíla og sumar þeirra valda matareitrun, húðsjúkdómum og ýmiss konar sýkingum. Stýrishjól óhreinni en klósettsetur Innréttingar bíla eru með allra sóðalegustu stöðum. Nú þegar flestar tölur um sölu bíla í heiminum í fyrra eru orðnar ljósar er forvitnilegt að skoða hvaða bílgerðir seljast best í heiminum öllum. Líkt og fyrri ár er það Toyota Corolla sem trónir á toppi listans og það með ríflega 100.000 bíla forystu á næsta keppinaut, Ford F-Series. Af Corolla bílnum seldust alls 1.181.445 eintök í fyrra, en 1.080.757 bílar af Ford F-Series, en flestir þeirra seldust náttúrulega í heimalandinu Bandaríkjunum. Þessi gríðarlega sala Toyota Corolla er 66 sinnum meiri en sala allra nýrra bíla á Íslandi í fyrra, sem nam tæplega 18.000 bílum og myndi því duga til sölu nýrra bíla hérlendis í 66 ár. Sala 10 söluhæstu bílgerða heims í fyrra var á end- anum svona: Toyota Corolla 1.181.445 Ford F-Series 1.080.757 Toyota RAV4 837.624 Honda Civic 823.169 Volkswagen Tiguan 791.275 Volkswagen Golf 789.519 Honda CR-V 747.646 Volkswagen Polo 725.463 Toyota Camry 661.383 Chevrolet Silverado 651.090 Það kemur ekki á óvart að tveir stærstu bílaframleiðendur heims, Toyota og Volkswagen Group, eiga hvor sínar þrjár bílgerðirnar á lista yfir 10 söluhæstu bílgerðir, en Honda á einnig tvo bíla á listanum. Síðustu tveir bílarnir á listanum eru svo pallbílar sem seljast sem aldrei fyrr í Bandaríkjunum og víðar. Annar þeirra er næstsöluhæsta bíl- gerð heims, en hinn vermir neðsta sætið á lista 10 söluhæstu. Það eru margir þekktir bílaframleiðendur sem framleiða minna en nemur sölu bílsins í 10. sætinu á þessum lista. Þá er sala Toyota Corolla bílsins í fyrra meiri en öll sala Mitsubishi á sama tíma. Tíu söluhæstu gerðir heims í fyrra Toyota Corolla hefur á síðustu árum verið söluhæsta ein- staka bílgerð í heimi og árið í fyrra var engin undantekning. Líkt og fyrri ár er það Toyota Corolla sem trónir á toppi listans. 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 C -F 8 1 0 2 2 3 C -F 6 D 4 2 2 3 C -F 5 9 8 2 2 3 C -F 4 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.