Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 18

Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 18
Ráðgera að bæta við enn minni jepplingum en Hyundai Kona og Kia Stonic fyrir Evrópumarkað. Jepplingaæðið ætlar engan endi að taka og sífellt fjölgar í flóru þeirra. Nýjasta æðið er ef til vill fólgið í agnarsmáum jepp- lingum sem virðast eiga mikið upp á pallborðið hjá bílkaupendum. Á þann vagn ætla systurfyrirtækin suðurkóresku Hyundai og Kia að stökkva þó svo talsvert framboð sé hjá báðum fyrirtækjunum á jepp- lingum fyrir. Nú stendur þar til að bæta agnarsmáum jepplingi við sem væri talsvert minni en núver- andi Kona og Stonic jepplingar fyrirtækjanna sem seint mundu teljast stórir. Endanleg ákvörðun um smíði þessara bíla hefur ekki enn verið tekin en ef af slíku verður, sem talið er harla líklegt, verður þessum smáu jepplingum helst beint að Evrópumarkaði. Hugsanlega yrðu bílarnir byggðir á sama undirvagni og smábílarnir Hyundai i10 og Kia Picanto og yrðu þá eingöngu í boði framhjóla- drifnir. Óslökkvandi jepplingaþorsti Víst er að þessir smáu bílar Hyundai og Kia yrðu undir fjórum metrum að lengd, en til saman- burðar má nefna að Suzuki Jimny er 364,5 cm. Það eru fleiri bíla- framleiðendur sem áhuga hafa á að bjóða smávaxna jepplinga en Jeep íhugar einnig að bjóða tals- vert minni jeppling en Renegade. Volkswagen hyggst einnig smíða jeppling sem yrði minni en T-Roc og fengi hann líklega nafnið T- Track og gæti hann komið strax á markað í byrjun næsta árs. Á hinum endanum á jeppa/ jepplingaflórunni hafa Hyundai og Kia nýlega slegið út nýju spili í formi Palisade og Telluride jepp- anna sem eru stærstu jeppar sem bæði fyrirtækin hafa smíðað og er þessum bílum stefnt mest að Bandaríkjamarkaði. Að auki ætlar Kia að koma fram með „cross- over“-útgáfu af Ceed bíl sínum fyrir Evrópumarkað og heyrst hefur að hann muni fá nafnið Tusker. Agnarsmáir jepplingar frá Hyundai og Kia Sænski ofurbílaframleiðand-inn Koenigsegg hefur tilkynnt um samstarf við núverandi eiganda Saab, National Electric Vehicle Sweden (NEVS), svo hér er um að ræða ekta sænskt sam- starf. NEVS er í eigu kínverskra og sænskra aðila. Samstarfið gengur út á þróun rafmagnsbíla og tengil- tvinnbíla í nokkuð meiri mæli en hin takmarkaða bílaframleiðsla Koenigsegg hefur hingað til verið í. Því verður þekking NEVS á raf- magnsvæðingu bíla notuð í bíla frá Koenigsegg og mun fjárfesting NEVS verða yfir 20 milljarðar króna til þessa samstarfs. Á móti mun NEVS eignast um 20% í Koenigsegg. Stofnuð verður sérstök eining kringum þetta samstarf þar sem NEVS mun eiga 65% hlut og Koenigsegg 35%. Framlag Koenigsegg til sam- starfsins verður helst í formi hönnunar, tækni og þekkingar á smíði vandaðra bíla. Bílarnir verða smíðaðir í gömlu verksmiðjum Saab í Trollhättan í Svíþjóð. Spenn- andi verður að sjá afurðir þessa nýstofnaða fyrirtækis með ofur- bílaþekkingu Koenigsegg og þekk- ingu á rafvæðingu bíla frá NEVS. Koenigsegg og NEVS í samstarf  Í áætlunum Volvo kveður á um tvöföldun á sölu jepplingsins XC40 á þessu ári og með því yrði sala hans 150.000 bílar í ár. Árið í ár verður fyrsta heila árið sem bíllinn er í sölu og því eðlilegt að búast við aukinni sölu hans, en í fyrra hafði Volvo ekki undan að afgreiða bílinn upp í pantanir. Til að þetta sé nú gerlegt hefur Volvo aukið mjög framleiðslugetuna í verksmiðju sinni í Ghent í Belgíu, þar sem XC40 er smíðaður. Þessi áætlaða aukna sala í XC40 bílnum er liður í því að færa árssölu Volvo upp í 800.000 bíla á ári, en heildar- salan í fyrra nam tæplega 650.000 bílum og jókst um 12,4% á milli ára. Hafa skal í huga að sala bíla í heiminum jókst ekki í fyrra frá árinu 2017. Sala Volvo í Kína í fyrra jókst um 14,1% og seldust þar 130.000 bílar, en Evrópa er enn stærsti markaður Volvo og seldust þar 318.000 bílar í fyrra. Hvort tekst á þessu ári að ná 800.000 bíla heildarsölu er fremur ólíklegt, en þó er það raunhæft á allra næstu árum. Söluhæsta bílgerð Volvo í fyrra var XC60 jepplingurinn en af honum seldust 189.459 bílar og af XC90 seldust 94.182 eintök og varð hann næstsöluhæstur. Þar á eftir kom Volvo V40/V40 Cross Country með 77.587 bíla selda og þá S90 með 57.142 eintök. Volvo ætlar að tvöfalda sölu XC40  General Motors framleiddi meira en fjórðung bíla sinna í Mexíkó og það vafalaust við lítinn fögnuð Donalds Trump. Gen- eral Motors hefur verið að minnka framleiðslu bíla sinna í Banda- ríkjunum og Kanada en auka hana í Mexíkó þar sem laun eru lægri. Bílaframleiðsla GM í Mexíkó jókst um 4% í fyrra og við það fór GM upp fyrir Nissan sem stærsti bílafram- leiðandinn í Mexíkó, en framleiðsla Nissan minnkaði um 10% á sama tíma. Framleiðsla GM í heimaland- inu Bandaríkjunum minnkaði í fyrra um 5% og um heil 33% í Kanada þar sem GM lokaði verksmiðjum. Alls framleiddi GM 834.414 bíla í Mexíkó en Nissan framleiddi þar 763.257 bíla. Flestir þessara bíla eru fluttir til sölu í Bandaríkjunum. Framleiðsla bíla í Mexíkó dróst saman um 1% í fyrra og er það í fyrsta sinn sem það gerist frá upphafi bílaframleiðslu þar. Bílaframleiðsla í Bandaríkjunum féll um 2,6% í fyrra og um 8,8% í Kanada. Aðeins þrír bílaframleið- endur juku við framleiðslu sína í Bandaríkjunum, en það voru Tesla (+151%), Volkswagen Group (+22%) og Honda (+2,7%). Ford reyndist stærsti bílaframleiðandinn í Banda- ríkjunum í fyrra og framleiddi nærri 2,4 milljónir bíla, en GM 2,1 milljón. Alls voru framleiddir 11.074.160 bílar í Bandaríkjunum í fyrra, en samtals 16.960.729 bílar ef Mexíkó og Kanada er bætt við. Búast má við því að GM auki bílaframleiðslu sína í Mexíkó þetta árið þar sem fyrirtækið bætir þar við framleiðslu á Chevrolet Blazer jeppanum sem gengur með því í endurnýjun líf- daga. GM stærst í Mexíkó Koenigsegg bíll á bílsýningu. Framleiðsla GM í Mexíkó jókst um 4%. Hyundai Kona, en til stendur að smíða enn minni jeppling. Volvo XC40 jepplingurinn. 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 C -F 3 2 0 2 2 3 C -F 1 E 4 2 2 3 C -F 0 A 8 2 2 3 C -E F 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.