Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 20

Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 20
KOSTIR OG GALLAR TOYOTA RAV4 l 2,5 LÍTRA BENSÍNVÉL OG RAFMÓTORAR l 222 HESTÖFL l FJÓRHJÓLADRIF EÐA FRAMHJÓLADRIF Eyðsla frá: 4,5 l/100 km í bl. akstri Mengun: 100 g/km CO2 Hröðun: 8,1 sek. í 100 km hraða Hámarkshraði: 180 km/klst. Verð frá: 5.090.000 m.kr. Umboð: Toyota á Íslandi l Útlit l Akturseiginleikar l Afl l Rými l Hávaði frá vél í inngjöf l Verð l Pirrandi staðsetning skiptingar Með fimmtu kyn- slóð bílsins sem bjó til jepplinga- flokkinn er kom- inn gerbreyttur bíll með mun öflugri drifrás, mun betri akst- urseiginleikum, meira plássi, flott- ari innréttingu og með hærra undir lægsta punkt. Það telst til tímamóta þegar mest seldi jepplingur í heimi og bíllinn sem bjó til flokkinn jepplingar er kynntur af nýrri kynslóð. Það var einmitt raunin í Barcelona fyrir stuttu og nú þegar er búið að kynna bílinn fyrir Íslendingum, enda var Evrópu- frumsýning á honum hérlendis fyrir skömmu. Toyota RAV4 kemur nú af fimmtu kynslóð en hann leit fyrst dagsins ljós árið 1994 og hefur því náð virðulegum 25 ára aldri. Hann hefur frá upphafi selst vel og varð þriðja söluhæsta bílgerð heims á nýliðnu ári og alls seldust af honum 837.624 eintök, sem er hreint með ólíkindum há tala. Það voru einungis Toyota Corolla og Ford F-Series sem seldust betur á síðasta ári. Heildarsala RAV4 frá upphafi er komin yfir 9,3 milljónir eintaka og því fer hann örugglega yfir 10 milljóna markið á þessu ári. RAV4 er seldur í 180 löndum heims og er þar hluti skýringarinnar. Orðinn alger töffari Fimmta kynslóð RAV4 er ger- breyttur bíll frá 4. kynslóð hans og geysimiklar jákvæðar breytingar hafa orðið á honum. Fyrir það fyrsta er hann nú orðinn mjög lag- legur útlits, eiginlega algjör töffari öndvert við sumar fyrri kynslóðir hans. Í öðru lagi hefur orðið mikil aflaukning og vinsælasta Hybrid útgáfa bílsins er orðin ein 222 hestöfl. Í þriðja lagi hefur bíllinn hækkað frá vegi, er nú með 19,5 cm undir lægsta punkt, en var 18 cm af síðustu kynslóð. Mjög jákvæð breyting fyrir landann. Í fjórða lagi er bíllinn orðinn mun betri akstursbíll og er það mikilvægast fyrir marga kaupendur. Mjög margar aðrar jákvæðar breytingar mætti nefna á bílnum, svo sem mun betra fjórhjóladrif, 79 lítrum stærra skottrými og aukið innanrými fyrir alla farþega, bætt útsýni, 57% stífari yfirbyggingu, svo til jafna þyngdar- dreifingu að framan og aftan (51%/49%) og lægri þyngdarpunkt bílsins. Hér er því hreinlega kominn allt annar og miklu betri bíll sem allir þeir sem eru í jepplingahug- leiðingum ættu að skoða. Mikil aflaukning en minni eyðsla Ein af mest afgerandi breytingun- um á RAV4 er að hann er nú kom- inn með nýja 2,5 lítra bensínvél og aflmeiri rafmótora. Samtals skilar aflrásin 222 hestöflum, en var 197 hestöfl af fyrri kynslóð. Fyrir þess- ari breytingu finnst vel og bíllinn er ekki nema 8,1 sekúndu í hundr- aðið og fáir jepplingar sem gera betur, nema þá af lúxusgerð. Þessi 2,5 lítra vél er alveg ný af nálinni og þrátt fyrir aukið sprengirými hefur eyðsla bílsins minnkað og er uppgefin aðeins 4,5 lítrar og 100 g/ km í CO2 mengun. Frábærar tölur fyrir svo mikinn bíl, en sem ávallt gæti orðið erfitt að ná þessari sparneytni. Með þessari öflugu vél og vel heppnuðum undirvagni er RAV4 orðinn þrælgóður aksturs- bíll sem gaman er að taka á. Hann var ekki bara reyndur á góðum malbiksvegum í nágrenni Barce- lona, heldur var einnig boðið upp á torfæruakstur á bílnum þar sem hann stóð sig hrikalega vel. Toyota er ekkert að grínast þegar þeir Gerbreyttur flottari RAV4 Skottrými RAV4 hefur stækkað um 79 lítra á milli kynslóða. Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 C -D F 6 0 2 2 3 C -D E 2 4 2 2 3 C -D C E 8 2 2 3 C -D B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.