Fréttablaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 20
KOSTIR OG GALLAR
TOYOTA RAV4
l 2,5 LÍTRA BENSÍNVÉL
OG RAFMÓTORAR
l 222 HESTÖFL
l FJÓRHJÓLADRIF EÐA
FRAMHJÓLADRIF
Eyðsla frá: 4,5 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 100 g/km CO2
Hröðun: 8,1 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 180 km/klst.
Verð frá: 5.090.000 m.kr.
Umboð: Toyota á Íslandi
l Útlit
l Akturseiginleikar
l Afl
l Rými
l Hávaði frá vél í inngjöf
l Verð
l Pirrandi staðsetning
skiptingar
Með fimmtu kyn-
slóð bílsins sem
bjó til jepplinga-
flokkinn er kom-
inn gerbreyttur
bíll með mun
öflugri drifrás,
mun betri akst-
urseiginleikum,
meira plássi, flott-
ari innréttingu og
með hærra undir
lægsta punkt.
Það telst til tímamóta þegar mest seldi jepplingur í heimi og bíllinn sem bjó til flokkinn
jepplingar er kynntur af nýrri
kynslóð. Það var einmitt raunin í
Barcelona fyrir stuttu og nú þegar
er búið að kynna bílinn fyrir
Íslendingum, enda var Evrópu-
frumsýning á honum hérlendis
fyrir skömmu. Toyota RAV4 kemur
nú af fimmtu kynslóð en hann leit
fyrst dagsins ljós árið 1994 og hefur
því náð virðulegum 25 ára aldri.
Hann hefur frá upphafi selst vel
og varð þriðja söluhæsta bílgerð
heims á nýliðnu ári og alls seldust
af honum 837.624 eintök, sem er
hreint með ólíkindum há tala. Það
voru einungis Toyota Corolla og
Ford F-Series sem seldust betur á
síðasta ári. Heildarsala RAV4 frá
upphafi er komin yfir 9,3 milljónir
eintaka og því fer hann örugglega
yfir 10 milljóna markið á þessu ári.
RAV4 er seldur í 180 löndum heims
og er þar hluti skýringarinnar.
Orðinn alger töffari
Fimmta kynslóð RAV4 er ger-
breyttur bíll frá 4. kynslóð hans og
geysimiklar jákvæðar breytingar
hafa orðið á honum. Fyrir það
fyrsta er hann nú orðinn mjög lag-
legur útlits, eiginlega algjör töffari
öndvert við sumar fyrri kynslóðir
hans. Í öðru lagi hefur orðið mikil
aflaukning og vinsælasta Hybrid
útgáfa bílsins er orðin ein 222
hestöfl. Í þriðja lagi hefur bíllinn
hækkað frá vegi, er nú með 19,5 cm
undir lægsta punkt, en var 18 cm
af síðustu kynslóð. Mjög jákvæð
breyting fyrir landann. Í fjórða
lagi er bíllinn orðinn mun betri
akstursbíll og er það mikilvægast
fyrir marga kaupendur. Mjög
margar aðrar jákvæðar breytingar
mætti nefna á bílnum, svo sem mun
betra fjórhjóladrif, 79 lítrum stærra
skottrými og aukið innanrými fyrir
alla farþega, bætt útsýni, 57% stífari
yfirbyggingu, svo til jafna þyngdar-
dreifingu að framan og aftan
(51%/49%) og lægri þyngdarpunkt
bílsins. Hér er því hreinlega kominn
allt annar og miklu betri bíll sem
allir þeir sem eru í jepplingahug-
leiðingum ættu að skoða.
Mikil aflaukning
en minni eyðsla
Ein af mest afgerandi breytingun-
um á RAV4 er að hann er nú kom-
inn með nýja 2,5 lítra bensínvél og
aflmeiri rafmótora. Samtals skilar
aflrásin 222 hestöflum, en var 197
hestöfl af fyrri kynslóð. Fyrir þess-
ari breytingu finnst vel og bíllinn
er ekki nema 8,1 sekúndu í hundr-
aðið og fáir jepplingar sem gera
betur, nema þá af lúxusgerð. Þessi
2,5 lítra vél er alveg ný af nálinni
og þrátt fyrir aukið sprengirými
hefur eyðsla bílsins minnkað og er
uppgefin aðeins 4,5 lítrar og 100 g/
km í CO2 mengun. Frábærar tölur
fyrir svo mikinn bíl, en sem ávallt
gæti orðið erfitt að ná þessari
sparneytni. Með þessari öflugu vél
og vel heppnuðum undirvagni er
RAV4 orðinn þrælgóður aksturs-
bíll sem gaman er að taka á. Hann
var ekki bara reyndur á góðum
malbiksvegum í nágrenni Barce-
lona, heldur var einnig boðið upp
á torfæruakstur á bílnum þar sem
hann stóð sig hrikalega vel. Toyota
er ekkert að grínast þegar þeir
Gerbreyttur flottari RAV4
Skottrými RAV4 hefur stækkað um 79 lítra á milli kynslóða.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
C
-D
F
6
0
2
2
3
C
-D
E
2
4
2
2
3
C
-D
C
E
8
2
2
3
C
-D
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K