Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2019, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 05.02.2019, Qupperneq 22
Aðspurðir segja Volvo menn að ekki standi til að bæta enn minni jepplingi við bílaflóru Volvo til að reyna að auka söluna Rafmagnsvæðingin virðist á fullri ferð í herbúðum Audi en til stendur að kynna þriðju bílgerð Audi sem eingöngu er drifin áfram af rafmagni á bíla- sýningunni í Genf í mars komandi. Þar ætlar Audi að sýna svo til full- gerða útgáfu af þessum bíl sem vart er hægt að kalla annað en jeppling og ætti hann lítið að breytast í útliti er kemur að fjöldafram- leiðslu hans. Þessi nýi rafmagnsjepplingur er á stærð við BMW Q3. Þessi stærð bendir til þess að Audi muni stefna bílnum gegn tilvonandi Tesla Model Y bíl og rafmagnsútgáfu af komandi Volvo XC40, sem og fremur smáum rafmagnsjepplingi sem heyrst hefur að Mercedes Benz sé að setja á markað og muni sýna almenningi í ár. Þessi nýi bíll Audi mun sitja á MEB undirvagni sem ættaður er frá Volkswagen Group og ætlaður fyrir rafmagns- bíla. Audi segir að innanrými þessa nýja bíls verð ekki minna en í Audi Q5 bílnum. Takkalaus naumhyggjuinnrétting Að innan verður bíllinn með naumhyggjuútliti en fyrir vikið framúrstefnulegur þar sem ekki ber mikið á tökkum, en því meira á skjáum. Líklega verður bíllinn í boði með þremur stærðum af rafhlöðum og geta kaupendur því valið um drægi, en þurfa að sjálf- sögðu að borga meira eftir því sem drægið er meira. Þeir sem kunnugir er rafhlöðukostum Volkswagen Group telja að drægi þessa bíls geti orðið frá 330 til 500 kílómetra og rafhlöðurnar allt að 80 kWh. Búast má við því að bíllinn komi á markað árið 2020. Audi hefur tilkynnt að til standi að kynna 12 mismunandi gerðir rafmagnsbíla til ársins 2025, en með þessum verða þeir orðnir þrír. Audi kynnir nýjan rafmagnsjeppling   Stærð bílsins bendir til þess að Audi muni stefna honum gegn tilvonandi Tesla Model Y bíl og rafmagnsútgáfu af komandi Volvo XC40. Verður á stærð við BMW Q3. Kia seldi fleiri bíla í Evrópu á síðasta ári en nokkru sinni áður í sögu fyrirtækisins. Alls seldi bílaframleiðandinn 494.303 bíla í Evrópu á árinu sem er 4,7% aukning frá árinu 2017. Kia hefur nú náð þeim framúrskarandi árangri að slá árlega eigið sölumet í Evrópu síðustu 10 ár. Alls jókst salan á Kia Hybrid, Plug-in Hybrid og rafbílum um 36% á árinu. Á síðasta ári náði Kia sinni hæstu markaðshlutdeild á Íslandi eða 11,2%. Þetta er þriðja árið í röð sem Kia er næstmest selda merkið hér á landi. ,,Við erum afar stolt af þessum góða árangri. Sala á Hybrid og PHEV hefur aukist en salan í jarð- efnaeldsneytisbílum, sem eru alltaf að lækka CO2 gildið, var einnig mjög góð á árinu. Með opnun nýra heimkynna Kia ætlum við að bjóða upp á enn betri þjónustu við núverandi og framtíðarviðskipta- vini okkar. Framtíðin er björt hjá Kia,“ segir Þorgeir Pálsson, sölu- stjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju. Salan tvöfaldast frá árinu 2008 Söluhæstu bílarnir í Evrópu á síðasta ári voru nýr Kia Ceed og „crossover“ bílarnir Stonic og Niro. Þá var sala á Kia Rio og sport- jeppunum Sportage og Sorento einnig mjög góð. Sala Kia bíla í álfunni hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2008 þegar 283.643 Kia bílar seldust þar og því er ljóst að Kia er í mikilli sókn í Evrópu. Fram undan er spennandi ár hjá Kia þar sem nýr Proceed verður frum- sýndur auk þess sem nýjar gerðir rafmótora verða kynntar til leiks. Það eru því öll teikn á lofti um að árangur Kia verði áfram góður á þessu ári. „Kia er eini bílafram- leiðandinn sem hefur náð að auka söluna í Evrópu á hverju ári síðasta áratuginn. Gæðin, hönnunin og karakterinn í ört stækkandi bíla- flota Kia hafa hjálpað okkur að ná þessum frábæra árangri og auka markaðshlutdeildina um meira en helming síðan 2008,“ segir Emilio Herrera, framkvæmdastjóri hjá Kia Motors í Evrópu. Bílaframleiðandinn býður sem fyrr sjö ára ábyrgð á öllum bílum sínum. Kia aldrei selt fleiri bíla Afskaplega vel gengur hjá Lamborghini og í fyrra varð 51% söluaukning hjá fyrir- tækinu og vart dæmi um annað eins hjá bílaframleiðanda, nema helst þá í tilfelli Tesla. Sala Lam- borghini bíla náði nýjum hæðum í fyrra og var 5.750 eintök, en rétt er að hafa í huga að sala Lamborghini var aðeins 1.302 bílar árið 2010 og hefur aukist stórum skrefum síðan. Ástæðan fyrir því að forstjóri Lamborghini, Stefano Domenicali, vill takmarka framleiðsluna árið 2020 við 8.000 bíla er til að vernda ímynd bíla þeirra líkt og Ferrari hefur gert síðustu ár. Urus tvöfaldar söluna Í ár stefnir í 8.000 bíla sölu hjá Lamborghini á fyrsta heila árinu sem Urus jeppi fyrirtækisins er í sölu, en viðtökurnar við þeim bíl hafa verið með ólíkindum og liggja pantanir fyrir í bílinn sem nema allri framleiðslu hans í ár. Það þýðir um 4.500 bíla sölu á Urus og meira en tvöföldun sölu Lam- borghini frá árinu 2017 til 2019. Það myndi sem sagt þýða 40% aukningu á sölu hjá Lamborghini í ár, í kjölfar 51% aukningar í fyrra. Ferrari hefur áður lýst því yfir að fyrirtækið hafi takmarkað eigin framleiðslu við 7.000 bíla, en allar líkur eru þó á því að fram úr því hafi verið farið í fyrra og að framleiðslan hafi náð yfir 9.000 bílum. Ferrari hefur ekki enn birt sölutölur frá því í fyrra. Þau eru nokkuð öfundsverð vandamálin sem Lamborghini og Ferrari glíma við þessa dagana. Lamborghini takmarkar framleiðsluna Einn fárra bíla Volvo sem ekki hafa verið endurnýjaðir á allra síðustu árum er Volvo V40 bíllinn, en nú er komið að nýrri gerð hans og þar mun fara háfættari bíll en forverinn þar sem farþegar hans fá mun hærri sætis- stöðu. Með uppfærslu V40 verða allar bílgerðir Volvo endurnýjaðar og það á ekki svo mörgum árum. Með því eru allar gerðir bíla Volvo sem bera tölustafina 40, 60 og 90 tiltölulega nýþróaðir. Volvo átti algjört metár í fyrra í sölu og náði fyrsta sinni næstum 650.000 bíla sölu og þar á bæ skal stefnt hærra. Volvo stefnir að 800.000 bíla sölu og telur að með núverandi gerðum og þessum nýja V40 gæti það náðst. Minni jepplingur ekki á leiðinni Við þróun nýs Volvo V40 bíls var vel íhugað hvort bíllinn ætti að verða í meira jepplingaformi eða nær því að vera hefðbundinn fólksbíll og á myndinni af bílnum má sjá að hvaða niðurstöðu Volvo menn komust, þ.e. hærri bíll sem seint mun teljast annað en jepp- lingur. Aðspurðir segja Volvo menn að ekki standi til að bæta enn minni jepplingi við bílaflóru Volvo til að reyna að auka söluna og fylla í öll hugsanleg göt hvað bíl- gerðir varðar. Að sjálfsögðu verður gert ráð fyrir því að nýr V40 verði að hluta til knúinn rafmagni og því hafi hærri bíll verið heppilegri en lengri eða stærri og með því komist rafhlöðurnar fyrir. Því er hér kominn enn einn valkosturinn í sístækkandi flóru jepplinga, en það er víst það sem markaðurinn virðist kalla eftir. Nýr Volvo V40 verður háfættari  Svona gæti nýi bíllinn litið út. Audi hefur nú þegar sent frá sér þessa mynd af tilvonadi rafmagnsjepplingi. Kia Stinger er einn af fjölmörgum bílgerðum Kia. Í ár stefnir í 8.000 bíla sölu hjá Lam- borghini á fyrsta heila árinu sem Urus jeppi fyrirtækisins er í sölu, en viðtökurnar við þeim bíl hafa verið með ólíkind- um. 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 C -E 4 5 0 2 2 3 C -E 3 1 4 2 2 3 C -E 1 D 8 2 2 3 C -E 0 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.