Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 24
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
KOSTIR OG GALLAR
HYUNDAI
NEXO
VETNISBÍLL
l RAFMÓTORAR KNÚNIR
AF VETNI
l 163 HESTÖFL
l FRAMHJÓLADRIF
Drægi: 600 km í bl. akstri
Mengun: 0 g/km CO2
Hröðun: 9,2 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 177 km/klst.
Verð frá: 7.800.000 m.kr.
Umboð: BL Kauptúni 1
l Útlit
l Aksturseiginleikar
l Búnaður
l Umhverfisvænn
l Fáar hleðslustöðvar
l Verð
Þeir eru ekki margir vetnis-bílarnir enn sem komið er, en ef þessi bíll gefur tóninn eiga
þeir sannarlega framtíðina fyrir sér.
Fyrir það fyrsta er geggjað að aka
þessum Hyundai Nexo og svo er
hann eins umhverfisvænn og hægt
er að vera. Orkugjafinn er vetni
sem gengur í samband við súrefni
og úr verður rafmagn sem knýr raf-
magnsmótorana. Það sem kemur út
úr bílnum er vatn og súrefni og það
í sinni hreinustu mynd. Reyndar er
súrefnið sem bíllinn tekur inn á sig
oft á tíðum mengaðra en það sem
bíllinn lætur frá sér. Bíllinn er því í
leiðinni lofthreinsari.
En nóg af því hve hann er
umhverfisvænn því flestir munu
kunna enn meira að meta að aka og
umgangast þennan gæðagrip. Hann
er það góður í akstri að undrum
sætir og hann er líka snarpur og
kom það greinarskrifara skemmti-
lega á óvart, þó svo hann sé ekki
alveg jafn snarpur og öflugustu
rafmagnsbílar. Hyundai Nexo er
skráður fyrir 163 hestöflum og þar
sem þau koma öll inn við inngjöf
er ferlega gaman að gefa honum
inn. Togið er líka ansi gott, eða 395
Nm. Millihröðunin þegar bíllinn er
svo kominn á nokkra ferð er ekki
eins áhrifarík, en alveg viðunandi.
Það gleður svo alltaf ökumann að
aka um á hljóðlausum bíl, en það
heyrist hreinlega ekkert í rafmótor-
unum.
Geggjað flottur að innan
Nexo er algerlega nýr bíll úr smiðju
Hyundai og á fátt sameiginlegt með
öðrum bílgerðum Hyundai og er
auk þess harla ólíkur þeim flestum
í útliti. Hann er býsna laglegur að
utan og hreint hrikalega flottur
að innan. Þar er hann miklu líkari
lúxusbíl og efnisval og hönnun
eins og gerist best. Sætin í bílnum
eru dúndrandi flott, þægileg og
rafstillanleg á alla vegu. Bíllinn er
hátæknivæddur og hreinlega með
öllu því nýjasta sem flestir bílkaup-
endur gera orðið kröfu um. Aftur-
sætin eru engir eftirbátar fram-
sætanna og þar er svo gott fóta- og
höfuðrými að vel fer um stærri gerð
fólks.
Mælaborðið er stafrænt og við
hlið þess er annar 12,3 tommu
upplýsingaskjár þar sem varpa má
flestu fram, þar á meðal frábæru
leiðsögukerfi, sem er reyndar með
því allra besta sem undirritaður
hefur kynnst. Miðjustokkurinn
milli framsætanna er með allra
breiðasta móti, mjög flatur og með
fullt af tökkum. Þar er auðvelt að
teygja sig í fullt af stjórntækjum
sem flókið reynist oft að skrolla
sig í gegnum á skjáum og ber því
að fagna þessu fyrirkomulagi.
Stokkurinn er þó svo flatur að oft
getur reynst erfitt að greina hvað
hver og einn takki gerir, en það
batnar þó í myrkri þegar merkingar
þeirra lýsast upp.
Framtíðarlausn sem kostar
Það eru ekki margir bílaframleið-
Bíll sem markar tímamót
Það er eins og stíga inn í framtíðina að prófa Nexo. Svo virðist sem Hyundai hafi náð frábærum
tökum á vetnistækninni í þessum vel búna og laglega bíl sem í leiðinni er umhverfisvænn.
endur sem lagt hafa mikla áherslu
á vetnisbíla hingað til, en þó helst
Hyundai og Toyota með sinn ágæta
Mirai bíl. Báðum þessum framleið-
endum virðist mikil alvara miðað
við fjármagnið sem þeir hafa lagt
í þróun þeirra, sem og þeirra bíla
sem litið hafa dagsins ljós. Það er
hrikalega vandað til þessa Nexo
bíls, allt virkar frábærlega og bíllinn
fyllir mann trú á þessum orkugjafa
sem einnar af þeim framtíðarlausn-
um sem heimsbyggðin leitar að til
að leysa af hefðbundna mengandi
bíla með brunavélum. En eins og
ávallt er þróunarkostnaður við nýja
tækni mikill og það vill endurspegl-
ast í verði fyrstu afurðanna. Nexo er
nefnilega ekki ódýr bíll og fullt verð
hans er 9.658.000 kr. en endanlegt
verð með stuðningi í gegnum sam-
starf Nýorku er um 7.800.000 kr.
Það er ekki ósvipað verð og gjarnan
er á stærri jepplingum eins og
Hyundai Santa Fe eða Kia Sorrento.
Mikið drægi en fáar stöðvar
Drægi vetnisbíla er einn aðal-
kostur þeirra og það á sannarlega
við í tilfelli Nexo, en það er ríflega
600 km. Eldsneytistankur bílsins
er 156,6 lítrar, en þar sem vetni er
létt en orkuríkt efni vegur innihald
hans, þó fullur sé, aðeins 6,33 kg.
Þar kemur annar kostur vetnis-
bíla í ljós, en þessi léttleiki eykur
aksturshæfni bílsins og það kemur
greinilega í ljós við aksturinn. Að
þessu leyti eru vetnisbílar líka með
vinninginn yfir rafmagnsbíla sem
þurfa að drattast með rafhlöður í
mörg hundruð kílóa vís. Líklega er
þó helsti ókosturinn enn við vetnis-
bíla hve óvíða er hægt að fylla á þá,
en þó fer stöðvum fjölgandi og ein
þeirra var nýlega opnuð í Reykja-
nesbæ og önnur við Vesturlandsveg
í Reykjavík og fleiri stöðvar eru
á leiðinni. Vetnið er framleitt í
jarðvarmavirkjuninni á Hellis-
heiði og aðeins tekur 5 mínútur
að fylla bílinn, en þrýstingurinn
á nýju dælustöðvunum tryggir að
tankurinn fyllist. Það vildi bregða
við á fyrri vetnisstöðvunum að það
næðist ekki nema að hálfu leyti.
Hyundai Nexo vetnisbíllinn er bæði laglegur að utan sem innan, hlaðinn nýjustu tækni og umfram allt frábær akstursbíll.
Hyundai Nexo
er með harla
óvenjulega en
flotta innrétt-
ingu og flóð af
tökkum.
5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
C
-F
8
1
0
2
2
3
C
-F
6
D
4
2
2
3
C
-F
5
9
8
2
2
3
C
-F
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K