Fréttablaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 24
Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is KOSTIR OG GALLAR HYUNDAI NEXO VETNISBÍLL l RAFMÓTORAR KNÚNIR AF VETNI l 163 HESTÖFL l FRAMHJÓLADRIF Drægi: 600 km í bl. akstri Mengun: 0 g/km CO2 Hröðun: 9,2 sek. í 100 km hraða Hámarkshraði: 177 km/klst. Verð frá: 7.800.000 m.kr. Umboð: BL Kauptúni 1 l Útlit l Aksturseiginleikar l Búnaður l Umhverfisvænn l Fáar hleðslustöðvar l Verð Þeir eru ekki margir vetnis-bílarnir enn sem komið er, en ef þessi bíll gefur tóninn eiga þeir sannarlega framtíðina fyrir sér. Fyrir það fyrsta er geggjað að aka þessum Hyundai Nexo og svo er hann eins umhverfisvænn og hægt er að vera. Orkugjafinn er vetni sem gengur í samband við súrefni og úr verður rafmagn sem knýr raf- magnsmótorana. Það sem kemur út úr bílnum er vatn og súrefni og það í sinni hreinustu mynd. Reyndar er súrefnið sem bíllinn tekur inn á sig oft á tíðum mengaðra en það sem bíllinn lætur frá sér. Bíllinn er því í leiðinni lofthreinsari. En nóg af því hve hann er umhverfisvænn því flestir munu kunna enn meira að meta að aka og umgangast þennan gæðagrip. Hann er það góður í akstri að undrum sætir og hann er líka snarpur og kom það greinarskrifara skemmti- lega á óvart, þó svo hann sé ekki alveg jafn snarpur og öflugustu rafmagnsbílar. Hyundai Nexo er skráður fyrir 163 hestöflum og þar sem þau koma öll inn við inngjöf er ferlega gaman að gefa honum inn. Togið er líka ansi gott, eða 395 Nm. Millihröðunin þegar bíllinn er svo kominn á nokkra ferð er ekki eins áhrifarík, en alveg viðunandi. Það gleður svo alltaf ökumann að aka um á hljóðlausum bíl, en það heyrist hreinlega ekkert í rafmótor- unum. Geggjað flottur að innan Nexo er algerlega nýr bíll úr smiðju Hyundai og á fátt sameiginlegt með öðrum bílgerðum Hyundai og er auk þess harla ólíkur þeim flestum í útliti. Hann er býsna laglegur að utan og hreint hrikalega flottur að innan. Þar er hann miklu líkari lúxusbíl og efnisval og hönnun eins og gerist best. Sætin í bílnum eru dúndrandi flott, þægileg og rafstillanleg á alla vegu. Bíllinn er hátæknivæddur og hreinlega með öllu því nýjasta sem flestir bílkaup- endur gera orðið kröfu um. Aftur- sætin eru engir eftirbátar fram- sætanna og þar er svo gott fóta- og höfuðrými að vel fer um stærri gerð fólks. Mælaborðið er stafrænt og við hlið þess er annar 12,3 tommu upplýsingaskjár þar sem varpa má flestu fram, þar á meðal frábæru leiðsögukerfi, sem er reyndar með því allra besta sem undirritaður hefur kynnst. Miðjustokkurinn milli framsætanna er með allra breiðasta móti, mjög flatur og með fullt af tökkum. Þar er auðvelt að teygja sig í fullt af stjórntækjum sem flókið reynist oft að skrolla sig í gegnum á skjáum og ber því að fagna þessu fyrirkomulagi. Stokkurinn er þó svo flatur að oft getur reynst erfitt að greina hvað hver og einn takki gerir, en það batnar þó í myrkri þegar merkingar þeirra lýsast upp. Framtíðarlausn sem kostar Það eru ekki margir bílaframleið- Bíll sem markar tímamót Það er eins og stíga inn í framtíðina að prófa Nexo. Svo virðist sem Hyundai hafi náð frábærum tökum á vetnistækninni í þessum vel búna og laglega bíl sem í leiðinni er umhverfisvænn. endur sem lagt hafa mikla áherslu á vetnisbíla hingað til, en þó helst Hyundai og Toyota með sinn ágæta Mirai bíl. Báðum þessum framleið- endum virðist mikil alvara miðað við fjármagnið sem þeir hafa lagt í þróun þeirra, sem og þeirra bíla sem litið hafa dagsins ljós. Það er hrikalega vandað til þessa Nexo bíls, allt virkar frábærlega og bíllinn fyllir mann trú á þessum orkugjafa sem einnar af þeim framtíðarlausn- um sem heimsbyggðin leitar að til að leysa af hefðbundna mengandi bíla með brunavélum. En eins og ávallt er þróunarkostnaður við nýja tækni mikill og það vill endurspegl- ast í verði fyrstu afurðanna. Nexo er nefnilega ekki ódýr bíll og fullt verð hans er 9.658.000 kr. en endanlegt verð með stuðningi í gegnum sam- starf Nýorku er um 7.800.000 kr. Það er ekki ósvipað verð og gjarnan er á stærri jepplingum eins og Hyundai Santa Fe eða Kia Sorrento. Mikið drægi en fáar stöðvar Drægi vetnisbíla er einn aðal- kostur þeirra og það á sannarlega við í tilfelli Nexo, en það er ríflega 600 km. Eldsneytistankur bílsins er 156,6 lítrar, en þar sem vetni er létt en orkuríkt efni vegur innihald hans, þó fullur sé, aðeins 6,33 kg. Þar kemur annar kostur vetnis- bíla í ljós, en þessi léttleiki eykur aksturshæfni bílsins og það kemur greinilega í ljós við aksturinn. Að þessu leyti eru vetnisbílar líka með vinninginn yfir rafmagnsbíla sem þurfa að drattast með rafhlöður í mörg hundruð kílóa vís. Líklega er þó helsti ókosturinn enn við vetnis- bíla hve óvíða er hægt að fylla á þá, en þó fer stöðvum fjölgandi og ein þeirra var nýlega opnuð í Reykja- nesbæ og önnur við Vesturlandsveg í Reykjavík og fleiri stöðvar eru á leiðinni. Vetnið er framleitt í jarðvarmavirkjuninni á Hellis- heiði og aðeins tekur 5 mínútur að fylla bílinn, en þrýstingurinn á nýju dælustöðvunum tryggir að tankurinn fyllist. Það vildi bregða við á fyrri vetnisstöðvunum að það næðist ekki nema að hálfu leyti. Hyundai Nexo vetnisbíllinn er bæði laglegur að utan sem innan, hlaðinn nýjustu tækni og umfram allt frábær akstursbíll. Hyundai Nexo er með harla óvenjulega en flotta innrétt- ingu og flóð af tökkum. 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 C -F 8 1 0 2 2 3 C -F 6 D 4 2 2 3 C -F 5 9 8 2 2 3 C -F 4 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.