Velferð - 01.12.1995, Blaðsíða 16
HJARTAAÐGERÐIR Á BÖRNUM
Vilji til að flytja allar
aðgerðir inn í iandið
Frá því síðasta hefti af
Velferð kom út hafa nokkur
mál sem varða hjartasjúklinga
verið rekin í blöðunum.
Morgunblaðið átti viðtal við
Davíð Á. Gunnarsson, for-
stjóra Ríkisspítalanna, 21.
júní og hann er spurður:
-Stendur til að fjölga hjartaaðgerð-
um á börnum á spítalanum?
-Við gerðum nokkrar aðgerðir á
síðasta ári og nú standa yfir viðræður
og vilji er til þess í heilbrigðisráðu-
neytinu að flytja þessar aðgerðir allar
inn í landið. Það skiptir geysilega
miklu máli fyrst og fremst fyrir börnin
sjálf og þeirra aðstandendur. Reynsla
okkar hefur verið sú að árangur okkar
í aðgerðum, sem fluttar hafa verið inní
landið, er ekki síðri en erlendis og í
sumum tilfellum betri. Auk þess er
kostnaðurinn í flestum tilfellum lœgri
hérlendis.
Og um tœkjamálin segir Davíð:
„... Það vantar einfaldari leikreglur
um með hvaða hœtti tœki eru
endurnýjuð og fjármögnuð, leikreglur
sem segja til um hvenær eðlilegt sé að
endurnýja tæki. Þegar leikreglur
skortir lítur það gjarnan út sem
áróðursstríð milli spítalanna og
stjórnmálamannanna þegar sú spurn-
ing kemur upp hvort eðlilegt sé að
endunýja eða kaupa ný tæki. Það þarf
að vera þokkalegt samkomulag um
þetta eins og ríkir t.d. um vegafram-
kvœmdir þar sem sátt er um hvernig
menn vilja halda vegum landsins við. “
Aukafjárveitingin kom!
Og af því Davíð nefndi
áróðursstríð hér að ofan þá
hófst eitt slíkt i lok júní þegar
Morgunblaðið segir frá því á
baksíðu að 83 sjúklingar bíði
eftir hjartaaðgerð. Búið sé að
raða 71 sjúklingi á aðgerða-
lista og 18 hafi vissan forgang.
Grétar Ólafsson, yfirlæknir, bendir
fréttamanni blaðsins á að nauðsynlegt
sé að hafa tvo skurðlækna í hverri
hjartaaðgerð, en í dag sé einn á vakt í
senn. Deildin hafi ekki fengið leyfi til
að koma á vaktakerfi fyrir starfsfólk
deildarinnar svo hægt sé að gera bráða-
aðgerðir þegar þeirra er þörf.
Grétar sagðist margsinnis hafa vakið
athygli ráðamanna á að þetta sé eini
sjúklingahópurinn sem hann viti um
sem ekki hafi aðgang að bráðaþjónustu
alla daga ársins.
Grétar segir ennfremur að hann vilji
koma biðlistanum niður í 30-40
manns, því það sé biðlisti sem þeir ráði
vel við. Þeir geti farið upp í átta
aðgerðir á viku ef allt er eðlilegt, en
sem stendur gerum við fjórar, sagði
Grétar.
Leið nú og beið og birtust fréttir um
að málið væri að velkjast milli
Tryggingastofnunar ríkisins og ríkis-
stjórnarinnar, en Tryggingastofnun
vildi ekki greiða kostnað vegna 30 - 40
aðgerða heldur taldi hún eðlilegra að
spítalinn fengi aukafjárveitingu.
Morgunblaðið skammar hlutaðeigandi
í leiðara 19. júlí. Þann 26. júlí segir
Mbl. að aukafjárveiting hefði verið
samþykkt í ríkisstjórninni að upphæð
35 milj. kr. Blaðið skýrir frá því að ein
hjartaaðgerð kosti frá 790 þús. til 1.1
milj. kr. í dag standa málin þannig að á
biðlista eru 50-60 manns.
Gáfu 1/2 miljón
Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðar-
svæðinu, sem fagnaði 5 ára afmæli
sínu í sept. sl. færði Kristnesspítala
hálfa miljón kr. að gjöf í tilefni þessara
tímamóta og til minningar um Stefán
Ingólfsson.
A að verja fénu til byggingar
sundlaugar við endurhæfingardeild
spítalans. Um miðjan sept. höfðu
safnast 7.3 miljónir króna í sundlauga-
sjóð að sögn Dags á Akureyri.
skyndibitum og
ýmislegti nestispokann.
Allt sem þú þarft í
feröalagiö.
Bensín, olíur og ýmsar
bifreiöavörur.
Verslunin Grund
IÐUNN
VERÐLAUNA
krossgátanF
Fyrir rétta lausn á krossgátunni
veitum við tvenn verðlaun, sem eru
bækurnar Orðtök eftir Sölva Sveinsson
og Rímorðabók eftir Eirík Rögnvaldsson
en báðar eru bækurnar gefnar út hjá
bókaútgáfunni Iðunni.
Skilafrestur er til 20. janúar n.k.
Sendið lausn til Skrifstofu LHS, Hafnar-
húsinu, 101 R. merkt verðlaunakross-
gáta.
Við hringjum til vinningshafa og
birtum síðan nöfn þeirra í næsta tbl. af
Velferð.
16