Velferð - 01.12.1998, Qupperneq 3

Velferð - 01.12.1998, Qupperneq 3
VELFERÐ Þá ríkir friður Þegar þetta blað er að fara í prentun em jólin, hátíð friðar og kærleika, að nálg- ast. Undirbúningi jólanna fylgir ys og þys og stundum mikil spenna. En á aðfangadag þegar líða tekur á kvöldið, hægir allt á sér og við göngum til kirkju eða samstillt að jólaborði. Þá ríkir friður. Þessi friðarstund, jól og nýár, er nauðsynleg því nútíminn er kröfuharður á tíma og nútíminn er mjög hraður. I gangi em hörð markaðslögmál, fjölmiðlamir tútna út af margskonar uppákomum, hæstaréttardómur í kvótamálum veldur t.a.m. írafári og spennu. Allir þurfa að vera tilbúnir að hafa skoðun á dægurmálum með eða á móti — strax og án vífilengja — fréttamennirnir sveifla míkrafónum og þegar míkrafónninn staðnæmist fyrir framan þitt nef þá verðurðu að svara — skýrt og skorinort. Og það má enginn heyra að hjartslátturinn sé hraðari en venjulega og ekki má röddin svíkja þig, þú mátt ekki verða mjóróma eða starna. Við birgjum með okkur margskonar ótta og vanlíðan flest hver og úr því verður hugur og hjarta að vinna á hverju sem dynur. Við gerum margskonar axarsköft hvað varðar mataræði, hreyfingu, hvíld og afslöppun, og úr því verður hjartað að vinna. Það má ekki gefa neitt eftir! A nýju ári gætum við mörg hver hugsað okkar ráð og „verið betri hvert við annað“ og farið betur með hjörtun okkar. Landssamtök hjartasjúklinga eru sterk samtök og síður en svo „hjartveik“ eða verkkvíðin. Verið er að ræða í stjórn samtakanna hvemig vinna eigi úr samþykktum síðasta þings. Blaðið okkar Velferð mun breytast nokkuð á árinu og við munum gefa út tvo nýja bæklinga á útmánuðum, annar mun fjalla um hjartasjúkdóma og lækningaaðferðir og hinn mun fjalla um forvarnir og endurhæfingu. Þessir bæklingar leysa af hólmi bæklinginn sem ber yfirskriftina „Hjartasjúkdómar, varnir, lækning, endurhæfing“. Með þessu blaði fylgja tveir bæklingar, annar er uppfærður bæklingur um störf og stefnu samtaka okkar og hinn barst á fjömr okkar óvænt, en hann fjallar um kransæðasjúkdóma og er gerð frekari grein fyrir honum á bls. 23. Vonaudi verður árið 1999 okkur farsælt. Samtök okkar hafa að mörgu að hyggja og við biðjum þess að störf okkar verði árangursrík. Friður sé með okkur öllum, gleðilegt ár! Sigurjón Jóhannsson. FENGIJ GULLMERKI LHS Á liátíðarstundu í október sl. var fólkinu á inyndinni hér fyrir ofan veitt heiðursmerki samtakanna í gulli fyrir vel uimin störf fyrir Landssamtök hjartasjiíklinga. Frá vinstri: Valgeir Villijáhnsson, Asgeir Þór Arnason, Unnur Fenger, Tómas Haukur Jóliannsson, Jón Þór Jóhannsson, Jóhann Kárason, Ingibjörg Olafsdóttir, Emil Sigurðsson og Lillian Siinson. Velferð 3

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.