Litli Bergþór - 01.08.2015, Qupperneq 31
Litli-Bergþór 31
Ketilbjörn ehf.
Vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum
Grímur Þór - Sími 892 3444
Þann 13. desember 1962 fóru til rjúpnaveiða í
Haukadal þeir Marteinn Björnsson byggingafulltrúi
og Hinrik Guðmundsson Dipl. Ing. (Gaf út bókina
Áfengir drykkir 1953). Fóru þeir um morguninn í
Haukadalsskóg. Fallegt veður var en fór að élja eftir
hádegið og snjóaði töluvert síðdegis og um nóttina.
Marteinn kom til baka um kvöldið en Hinrik skilaði
sér ekki til byggða. Bar eftirgrennslan ekki árangur
um kvöldið og um nóttina og því var ákveðin leit
um morguninn 14. desember. Þá var kominn snjór
30-40 sm og talsvert frost með hrímþoku, sem lá yfir
leitarsvæðinu fram yfir hádegi.
Um morguninn komu tvær þyrlur frá Varnarliðinu í
Keflavík til leitar, en þær komu ekki að notum vegna
hrímþokunnar og máttu ekki vera nema takmarkaðan
tíma í burtu. Um morguninn var einnig smalað
saman leitarmönnum úr sveitinni og fór ég með séra
Guðmundi Óla presti á Torfastöðum. Komum við í
Haukadal rétt fyrir hádegi og var strax skipað til leitar
ásamt fleirum. Lenti ég með Kristni í Austurhlíð og
Hárlaugi í Hlíðartúni og áttum við að fara inn fyrir
skóginn. Við vorum allir ungir þá, ég tuttugu og sex
ára og þeir dálítið eldri og við óþreyttir.
Göngufæri var frekar þungt og snór jafnfallinn allt
að hné dýpt. Kristinn var þaulkunnugur, gamall
vinnumaður Sigurðar í Haukadal. Um miðjan dag
vorum við komnir inná há heiðina og höfðum nokkuð
gott útsýni til norðurs og austurs, enda orðið bjart
og þokulaust. Settum við okkur niður smá stund og
horfðum vel í kring um okkur. Sáum við þá allt í einu
allir smá dökkan blett hreyfast lengst í austurátt, eða
inná „Skerslum“ að sögn Kristins. Fórum við allir
innar svo við værum vissir að þetta væri maðurinn. Þá
komum við okkur upp merkjakerfi og fór ég ekki innar
heldur beið eftir upplýsingum um ástand mannsins og
hvað þyrfti af búnaði til bjargar honum. Samkvæmt
þessum merkjum þeirra töldu þeir að þyrfti börur.
Sneri ég því við og flýtti mér sem ég gat niður undir
kirkju, þar sem leitarbækistöðin var. Þar var hópur
manna ásamt tveim lögreglumönnum með börur.
Tókum við traustataki rússajeppa frá Galtalæk, sem
Jónatan kom á í leitina og settum Greip Sigurðsson
undir stýri, enda rataði hann best brautina.
Fórum við á bílnum eins langt og við komumst, geng-
um síðan á móti Kristni og félögum með körfuna
drjúgan spöl. Komið var myrkur og Hinrik orðinn
kaldur og rammvilltur þegar hann fannst, en þó
göngufær með aðstoð bræðranna. Var hann borinn
góðan spöl að bílnum. Allir voru komnir að hótelinu
um sjöleytið um kvöldið, ánægðir með árangur
dagsins.
Þegar þeir hittust félagarnir, Marteinn og Hinrik, var
það fyrsta sem Marteinn sagði: „Hvað veiddirðu svo
margar rjúpur“? - Strigapokinn sem Hinrik var með
var tómur.
Þessi atburður varð til þess að umræða fór af stað um
að stofnun björgunarsveitar væri æskileg, en það varð
bið á þeim framkvæmdum.
Leit að manni 1962
Tekið saman í janúar 2015
af Sigurjóni Kristinssyni,
Kistuholti 21.