Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018
Ýmis störf
Starfsmaður hjá Sundlaug Kópavogs - Karl
Starfsmaður í Tónlistarhúsi Kópavogs
Starfsmaður í Þjónustumiðstöð við almenna
þjónustu
Grunnskólar
Forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Fönix
Frístundaleiðbeinendur í Hörðuvallaskóla
Frístundaleiðbeinendur í Igló og Kjarnann
Frístundaleiðbeinendur í Kársnesskóla
Frístundaleiðbeinendur í Kópavogsskóla
Frístundaleiðbeinendur í Lindaskóla
Frístundaleiðbeinendur í Salaskóla
Frístundaleiðbeinendur í Smáraskóla
Frístundaleiðbeinendur í Snælandsskóla
Frístundaleiðbeinendur í Vatnsendaskóla
Skólaliði í Smáraskóla
Skrifstofustjóri í Hörðuvallaskóla
Starfsfólk í Álfhólsskóla
Stundakennari í forfallakennslu í Smáraskóla
Umsjónarkennari á miðstig í Salaskóla
Leikskólar
Deildarstjóri í Austurkór
Deildarstjóri í Fífusölum
Deildarstjóri í Kópahvol
Deildarstjóri í Rjúpnahæð
Fagstjóri í íþróttum í Efstahjalla
Leikskólakennari á leikskólann Fífusalir
Leikskólakennari í Arnarsmára
Leikskólakennari í Álfatúni
Leikskólakennari í Efstahjalla
Leikskólakennari í Kópasteini
Leikskólakennari í Marbakka
Leikskólakennari í Núp
Sérkennslustjóri í Læk
Starfsmaður á deild í Læk
Starfsmaður á deild í Læk (hlutastarf)
Starfsmaður í Núp
Starfsmaður í sérkennslu í Læk
Þroskaþjálfi/leikskólasérkennari í Álfatúni
Velferðarsvið
Starfsfólk í félagslega heimaþjónustu
Starfsmenn í þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk
Stuðningsaðilar á velferðarsviði
Kópavogsbæjar
Þroskaþjálfi á heimili fyrir fatlað fólk
kopavogur.is
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin
eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
Starfssvið
Akstur með
ferðamenn
Umhirða á rútum
Akstur skólabíla
Hæfniskröfur
Aukin ökuréttindi
(D-réttindi)
Hreint sakavottorð
Hæfni í mannlegum
samskiptum og góð
þjónustulund
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf
Frekari upplýs-
ingar um störfin
veitir Jóhanna
Gunnarsdóttir í
síma 515 2709.
Vinsamlega
sendið ferilskrá
með tölvupósti á
johanna@teitur.is.
Öllum umsóknum
verður svarað
og fullum trúnaði
heitið.
Umsóknarfrestur er til
og með 14. september nk.
Óskar eftir bifreiðastjórum
Ræstingar/ kirkjuvarsla
Auglýst er eftir starfsmanni til að sinna
ræstingum og kirkjuvörslu í hlutastarfi.
Vinnutíminn er: þriðjudagar kl. 16 - 22
miðvikudagar kl. 16 - 22
Annar hver sunnudagur kl. 10 - 16.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september.
Fyrirspurnir um starfið og umsóknir sendist
á seljakirkja@seljakirkja.is
Seljakirkja
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar í
Síðumúla 32, Reykjavík. Ekki yngri en 30 ára.
Vinnutími frá 10-18 alla virka daga.
Áhugasamir sendi á ellert@alnabaer.is
Ritari óskast 1/2 daginn
Rótgróin fasteignamiðlun leitar að ritara til
starfa hálfan daginn. Starfið felst í afgreiðslu
viðskiptavina, símsvörun, skjalavinnslu og
almennum ritarastörfum. Viðkomandi þarf að
vera sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa góða
þjónustulund, vera stundvís og geta hafið
störf sem fyrst. Söluhæfileikar er kostur.
Áhugasamir sendið inn svar á
box@mbl.is merkt: ,,Ritari - 26445”.
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Apótek
Starfsmaður óskast til afgreiðslustarfa í
Árbæjapótek.
Reynsla æskileg. Umsækjendur hafi sam-
band í síma 567-4200 (Kristján) eða með
tölvupósti í arbapotek@internet.is”
Um þessar mundir er unnið
að endurgerð gömlu Raf-
stöðvarinnar á Bíldudal, en í
nýliðnum ágústmánuði voru
liðin rétt 100 ár frá því að hún
var gang-
sett. Þetta
er ein af
fyrstu
vatnsafls-
stöðvum í
almenn-
ingseigu
Íslandi, en
á fyrri
hluta 20.
aldarinnar
voru litlar
rafstöðvar reistar víða í dreif-
býlinu á Íslandi og var það
fyrsti áfanginn í rafvæðingu
landsins. Bíldudalsstöðin,
sem er í Hnjúksárdal nokkuð
fyrir innan kauptúnið, nýttist
í um 50 ár; 30 ár fyrir kaup-
túnið á Bíldudal og 20 ár fyrir
sveitabæina Hól og Litlu-
Eyri.
Vélar varðveittust
„Þetta er merkilegt mann-
virki og í raun einn stór og
merkur sýningargripur sem
við viljum gera almenningi að-
gengilegan. Þetta er menn-
ingarlegt framtak okkar,“
segir Helgi Hjálmtýsson í
Bolungarvík. Hann er einn
liðsmanna áhugamannahóps
sem vinnur að því að gera upp
hús og vélbúnað sem hefur að
stærstum hluta varðveist. Að-
rennslisbúnaður er hins vegar
ónýtur svo ekki kemur til þess
að rafmagn verði framleitt í
stöðinni að nýju.
Árið 1911 var gangsett
vatnsaflsstöð á Patreksfirði
með virkjun Litladalsár á
Geirseyri – og vakti það
áhuga manna víðar á að fara í
sambærilegar framkvæmdir.
Bygging rafstöðvarinnar á
Bíldudal hófst svo vorið 1916
– og í henni fullgerðri var
framleiðslugetan 40 kW.
Í notkun til 1968
Árið 1928 var Rafstöðin á
Bíldudal aflmesta vatnsafls-
stöð landsins miðað við íbúa-
fjölda dreifikerfisins, gat
framleitt 150 vött á mann
meðan jafnaðarframleiðsla
vatnsaflsstöðva í landinu var
67 vött á mann sbr. að þá ný-
reist Elliðaárstöð framleiddi
66 vött á mann. Haustið 1931
var Hnúksvatni breytt í miðl-
unarlón fyrir stöðina sem þá
framleiddi rafmagn fyrir not-
endur í 65 húsum, 25 götuljós
og 600 lampastæði. Árið 1968
gerðist það svo að krani til að
hleypa út lofti á vatnshjólinu
brotnaði og var og rekstri
stöðvarinnar þá hætt.
Síðla árs 2010 undirrituðu
fulltrúar Vesturbyggðar og
áhugamannahóps samning
um leigu á stöðinni af sveitar-
félaginu til 25 ára með það að
markmiði að gera hana upp
eins og hún var við gangsetn-
ingu árið 1918. Í apríl 2011
var síðan stofnað nýtt félag
kringum verkefnið og heitir
það Rafstöðin, félagasamtök
og voru stofnfélagar um þrjá-
tíu talsins. Félagið yfirtók
verkefnið og skuldbindingar
áhugamannahópsins og hefur
starfað að endurreisn stöðv-
arinnar síðan. Formaður fé-
lagsins er áðurnefndur Helgi
Hjálmtýsson.
Áhugaverður
viðkomustaður
„Við erum búin að loka hús-
inu fyrir verðri og vindum,
endurnýja glugga og tréverk
og múra og mála vélasal í upp-
runalegum litum. Þá hafa
gömlu vélarnar verið sand-
blásnar og málaðar þótt þær
verði ekki gangsettar að sinni,
en það væri auðvitað hægt að
fara í slíkt verkefni síðar ef
bakhjarlar fást í það en það
væri þá eingöngu ánægjunnar
vegna, þessi vélbúnaður mun
ekki aftur framleiða rafmagn
til sölu,“ segir Helgi um raf-
stöðina á Bíldudal – sem er í
mynni Hnúksárdals við veg-
inn þegar komið er yfir Hálf-
dán frá Táknafirði. Er hún því
í alfaraleið enda fóru Bílddæl-
ingar forðum daga stundum í
skemmtiferðir fram í Rafstöð,
eins og slíkt var kallað. Á
komandi tíð er svo sennilegt
að rafstöðin gæti orðið áhuga-
verður viðkomustaður ferða-
fólks á þessum slóðum – því
rafvæðing Íslands er merkur
þáttur í sögu þjóðar.
Ljósmynd/Guðmundur Bjarnason
Bíldudalur Rafstöðin er reisulegt hús í dal innan kauptúnsins.
Endurgera Bíldu-
dalsrafstöðina
Gangsett fyrir 100 árum
Helgi
Hjálmtýsson
Á öðrum fjórðungi líðandi
árs voru að jafnaði 200.798
manns starfandi á íslenskum
vinnumarkaði, það er fólk á
aldrinum 16-74 ára. Af þeim
voru konur 93.884 eða 46,7 %
og karlar 106.914 eða 53,2%.
Starfandi innflytjendur voru
að jafnaði 37.388 á þessu
tímabili, eða 18,6% af öllu
starfandi fólki.
Þegar horft er til búsetu
kemur í ljós að starfandi með
skráð lögheimili á Íslandi
voru að jafnaði 194.673 eða
96,9% allra starfandi. Alls
höfðu 163.410 lögheimili hér
á landi og einhvern íslenskan
bakgrunn, eða 83,9%. Af inn-
flytjendum voru 32.110 með
lögheimili á Íslandi, eða
85,9%. – Einstaklingur sem
fæddur er erlendis og á for-
eldra og báða afa og báðar
ömmur sem einnig eru fædd
erlendis telst innflytjandi
samkvæmt aðferðum Hag-
stofunnar. Aðrir teljast hafa
einhvern íslenskan bak-
grunn.
Innflytjendur voru 18,6% af
starfandi fólki á vormánuðum í ár