Morgunblaðið - 14.09.2018, Síða 1
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
ÍÞRÓTTIR
Handboltinn Keppni í Olísdeild kvenna hefst á morgun. Erfitt að meta stöðu Stjörnunnar eftir vonbrigðin í
fyrra. Selfoss getur strítt sterkari liðunum. Nýliðar KA/Þórs og HK gætu átt erfiðan vetur fram undan. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Haukar höfðu betur gegn Íslands- og bik-
armeisturum Fram, 22:19, þegar liðin áttust
við í hinum árlega leik í Meistarakeppni HSÍ
en leikurinn fór fram á heimavelli Fram í Safa-
mýri í gærkvöld.
Haukarnir voru skrefinu á undan nær allan
leikinn. Í hálfleik voru Haukar tveimur mörk-
um yfir, 12:10, og eftir 15 mínútna leik voru
þeir komnir fjórum mörkum yfir, 18:14. Fram-
arar neituðu að gefast upp og tókst að jafna
metin í 19:19 þegar um sex mínútur voru til
leiksloka en Haukarnir skoruðu þrjú síðustu
mörkin og tryggðu sér sigurinn.
Stórskyttan Ragnheiður Júlíusdóttir var allt
í öllu í liði Fram en hún skoraði 11 mörk.
Hjá Haukum var Karen Helga Díönudóttir
atkvæðamest með 7 mörk, Maria Pereira skor-
aði 6 og Ragnheiður Sveinsdóttir 4. Saga Sif
Gísladóttir átti fínan leik á milli stanganna hjá
Haukum en hún varði vel á annan tug skota.
Keppni í Olís-deild kvenna hefst á laug-
ardaginn en þá mætast KA/Þór og Valur og
ÍBV og Stjarnan. gummih@mbl.is
Bikar á
loft í
Safamýri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigur Ragnheiður Sveinsdóttir, fyrirliði Hauka, rífur bikarinn á loft í gær við mikinn fögnuð samherjanna.
HM í sumar varð viss endurnýjun á
liðinu. Logi Gunnarsson var hættur
og Jakob Örn Sigurðarson einnig
þótt hann hafi hjálpað liðinu þegar
eftir því var óskað fyrr í keppninni.
Fleiri voru viðloðandi liðið lengi eins
og Axel Kárason og Brynjar Þór
Björnsson. Hlutverk Hlyns er minna
eins og áður segir og Jón Arnór gat
ekki spilað síðustu tvo leikina. Af
eldri mönnum er Hörður Axel Vil-
hjálmsson í liðinu enda er hann ekki
nema þrítugur.
Ábyrgðarhlutverkin hafa færst yf-
ir á herðar Martins Hermannssonar,
Hauks Helga, Tryggva og Krist-
ófers. Nú verður einnig hægt að nýta
krafta Elvars Más Friðrikssonar
sem ekki var með í undankeppni HM
nema að litlu leyti vegna náms í
Bandaríkjunum. Elvar var sprækur
á EM í Finnlandi í fyrra og er að
hefja sinn atvinnumannaferil í
Frakklandi. Þá er erfitt á þessum
tímapunkti að átta sig á því hversu
stórt hlutverk Pryor fær.
Hópurinn: Hlynur Bæringsson
(Stjörnunni), Hörður Axel Vilhjálms-
son (Keflavík), Martin Hermannsson
(ALBA Berlín), Ægir Þór Stein-
arsson (Stjörnunni), Kristófer Acox
(Denain), Elvar Már Friðriksson
(Denain), Tryggvi Snær Hlinason
(Obradorio), Ólafur Ólafsson
(Grindavík), Kári Jónsson (Barce-
lona), Kristinn Pálsson (Njarðvík),
Hjálmar Stefánsson (Haukum), Coll-
in Pryor (Stjörnunni).
Morgunblaðið/Árni Sæberg
62 Martin Hermannsson er þriðji
leikjahæstur í landsliðshópnum sem
fer til Portúgals með 62 leiki.
Yngri í ábyrgðarhlutverkum
Haukur Helgi Pálsson og Jón Arnór Stefánsson ekki með gegn Portúgal
Collin og Kristinn í liðinu sem byrjar í forkeppni EM á sunnudaginn
Alfreð Gíslason mátti sætta sig við
tap í þýsku 1. deildinni í handknatt-
leik í gær en þrjú lið voru þá í eldlín-
unni.
Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk
fyrir Füchse Berlin þegar liðið bar
sigurorð af Hannover-Burgdorf á
heimavelli í spennandi leik, 29:28.
Berlínarliðið er þar með komið með
4 stig eftir fjóra leiki.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í
Kiel töpuðu fyrir Magdeburg á úti-
velli, 35:30. Þetta var annað tap Kiel
í röð og er liðið með 4 stig eftir fjóra
leiki eins og Füchse. Magdeburg er
hins vegar búið að vinna alla fimm
leiki sína og byrjar tímabilið frábær-
lega.
Þá töpuðu strákarnir hans Að-
alsteins Eyjólfssonar í Erlangen fyr-
ir Minden á útivelli, 29:22. Erlangen
er með 2 stig. gummih@mbl.is
Füchse Berlín
og Kiel jöfn
að stigum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
2 mörk Bjarki Már Elísson er í
vinstra horninu hjá Berlínarliðinu.
Íslenska landsliðið hefur keppt í
síðustu tveimur lokakeppnum EM
karla, eða Eurobasket eins og mót-
ið er kallað af Körfuknattleiks-
sambandi Evrópu. Í Berlín 2015 og
í Helsinki 2017. Þegar Ísland vann
sig inn í lokakeppnirnar tók liðið
þátt í undankeppni. Á árunum áður
hafði liðið unnið sig upp um styrk-
leikaflokk, sem skipti miklu máli
varðandi styrk andstæðinganna
sem liðið dróst á móti.
Í þetta skiptið þarf Ísland að
fara í gegnum forkeppni og er í
riðli með Portúgal og Belgíu. Liðið
féll niður um styrkleikaflokk þegar
það lenti í neðsta sæti í sínum riðli
í undankeppni HM. Riðillinn var
reyndar býsna jafn og Ísland vann
tvo leiki af sex en tapaði tvívegis
fyrir Búlgaríu sem var styrk-
leikaflokki neðar. Fyrir vikið er Ís-
land nú í forkeppni EM og þarf að
komast upp úr henni til að geta
tekið þátt í undankeppni EM 2021
sem hefst eftir um það bil ár.
Af hverju er Ísland í forkeppni?
LEIKURINN Í PORTÚGAL Á SUNNUDAGINNKÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Haukur Helgi Pálsson getur ekki
leikið með íslenska landsliðinu í
körfuknattleik þegar það mætir
Portúgal í forkeppni EM 2021 á
sunnudag. Haukur er meiddur í nára
en frá því var greint á blaðamanna-
fundi þegar tólf manna leik-
mannahópurinn var kynntur. Jón
Arnór Stefánsson er ekki heldur leik-
fær vegna meiðsla en hann gefur
kost á sér í næstu leiki í nóvember
eftir því sem næst verður komist.
Collin Pryor, leikmaður Stjörn-
unnar, er í hópnum en hann fékk ís-
lenskan ríkisborgararétt fyrr á árinu
og lék sinn fyrsta landsleik í Noregi á
dögunum. Þá fær Njarðvíkingurinn
Kristinn Pálsson einnig tækifæri en
hann var í stóru hlutverki í U20 árs
landsliðinu sem komst í 8-liða úrslit á
EM í fyrra.
Félagi hans úr því liði, Tryggvi
Snær Hlinason, fær æ stærra hlut-
verk í landsliðinu og mun væntanlega
mikið mæða á honum ef mið er tekið
af frammistöðu hans í síðustu lands-
leikjum. Fyrirliðinn Hlynur Bær-
ingsson er þó enn til staðar þótt hann
geti nú fengið meiri hvíld en áður og
munar um minna.
Í síðustu leikjunum í undankeppni