Morgunblaðið - 14.09.2018, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
áðum nýliðunum?
KA/ÞÓR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Nýliðar KA/Þórs unnu næstefstu
deild, Grill 66 deildina, á sannfærandi
hátt á síðasta keppnistímabili undir
stjórn Jónatans Magnússonar. Hann
er enn við stjórnvölin. Liðið vann 15 af
16 leikjum sínum og gerði eitt jafntefli.
Auk þess komst KA/Þór í undanúrslit
bikarkeppninnar þar sem það veitti
Haukum hörkukeppni. Haukar höfn-
uðu síðan í 4. sæti í efstu deild.
Af þessu leiðir að fróðlegt verður að
sjá KA/Þór spreyta sig í efstu deild á
nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru.
Flestir leikmenn liðsins eru fæddir á
árunum í kringum aldamótin. Reynsl-
an af keppni meðal bestu liðanna er því
ekki mjög mikil en einhver þó. Nokkrir
reyndir leikmenn mynda kjölfestu liðs-
ins. Þar fer e.t.v. fremst meðal jafn-
ingja Martha Hermannsdóttir, marka-
hæsti leikmaður KA/Þórs á síðustu
leiktíð og oft áður. Hornamaðurinn
Katrín Vilhjálmsdóttir hefur einnig
marga fjöruna sopið og sömu sögu má
segja um hina þrautreyndu Ásdísi Sig-
urðardóttur. Ásdís er hokin af reynslu
eftir að hafa leikið árum saman í efstu
deild, m.a. með FH og Stjörnunni auk
þess að eiga landsleiki og hafa um hríð
leikið í Þýskalandi á sínum yngri árum.
KA/Þór fékk góðan liðsstyrk í sumar
í markverðinum Olgica Andrijasevic
frá Króatíu og skyttunni Sólveigu
Láru Kristjánsdóttur. Sólveig Lára
var markahæsti leikmaður ÍR í Grill 66
deildinni á síðustu leiktíð. Hún hefur
reynslu af keppni í efstu deild eftir að
hafa leikið þar með ÍR leiktíðina 2015/
2016. Sólveig Lára var þá einn marka-
hæsti leikmaður deildarinnar með 135
mörk í 26 leikjum.
Reiknað er með að KA/Þór, eins og
hinir nýliðar deildarinnar, HK, muni
eiga við ramman reip að draga á leik-
tíðinni sem framundan er. Liðið er
hinsvegar reynslunni ríkara eftir gott
keppnistímabil í fyrra og er skipað
leikmönnum sem hafa lagt á sig vinnu
til þess að ná inn í keppni við þær
bestu. Stuðningur við liðið var góður á
síðasta vetri og vonandi verður svo
áfram þar sem mikil uppsveifla virðist
vera í handknattleik á Akureyri um
þessar mundir.
Kannski þarf liðið að treysta á góðan
varnarleik og hraðaupphlaup til þess
að ná árangri. Víst er einnig að mark-
varslan mun skipta miklu máli. Það eru
hinsvegar engin ný sannindi og á e.t.v.
við flest liðin átta sem eru í Olís-deild
kvenna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sjö Martha Hermannsdóttir býr yfir mikilli
reynslu sem mun nýtast Akureyrarliðinu.
Nokkrar reyndar
í ungu norðanliði
Nýliðar KA/Þórs fá góðan stuðning
HK
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
HK hafnaði í öðru sæti í næstefstu
deild í vor en tryggði sér sæti í Olís-
deildinni eftir hörkuleiki við Gróttu
sem hafði hafnað í næstneðsta sæti
efstu deildar.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað í kringum kvennahandboltann
hjá HK síðustu árin. Vel hefur verið
haldið utan um liðið og Vilhelm
Gauta Bergsveinssyni þjálfara tekist
að byggja upp skemmtilegt lið.
Hvort hið unga HK-lið standist raun-
ina í efstu deild er óvíst um að segja.
Fyrirfram er reiknað með að HK og
KA/Þór keppist um að forðast átt-
unda og neðsta sæti sem er ávísun á
beint fall úr deildinni.
Kjarninn í liðinu eru leikmenn sem
eru uppaldir innan félagsins. Tveir
leikmenn liðsins voru kallaðir inn í
landsliðshópinn sem valinn var í vik-
unni. Sigríður Hauksdóttir, dóttur-
dóttir Sigríðar Sigurðardóttur lands-
liðsfyrirliða á sjöunda áratugnum og
íþróttamanns ársins 1964, og varnar-
maðurinn Berglind Þorsteinsdóttir.
Berglind ásamt Elvu Arinbjarnar
verður í öxulhlutverki í varnarleik
HK. Melkorka Mist Gunnarsdóttir
verður væntanlega aðalmarkvörður.
Hún þekkir vel handboltann í efstu
deild, eftir að hafa kynnst honum hjá
Fylki fyrir fáeinum árum. Sigríður
Guðrún Pétursdóttir mun standa
vaktina með Melkorku. Sigríður kom
til HK frá KA/Þór.
Auk Sigríðar Guðrúnar kom örv-
henta skyttan Díana Kristín Sig-
marsdóttir til Kópavogsliðsins í sum-
ar eftir að hafa lokið leiktíðinni í
fyrra með Förde á vesturströnd
Noregs en hún hafði byrjað tímabilið
í Vestmannaeyjum en ekki náð sér á
strik. Díana Kristín getur verið hval-
reki fyrir HK-liðið. Díana skoraði
202 mörk fyrir Fjölni í efstu deild
leiktíðina 2015/2016 og varð aftur
markahæsti leikmaður liðsins árið
eftir.
Svo virðist vera sem HK hafi
krækt í góðan liðsstyrk í Dajana Jov-
anovska frá Makedóníu, 25 ára gam-
alli hægri handar skyttu. Hún virðist
vel sjóuð og hefur m.a. leikið all-
marga landsleiki auk þess að hafa
leikið með Metalurg í heimalandi
sínu um nokkurra ára skeið, m.a. í
Evrópukeppni félagsliða.
Fjórði nýi leikmaður HK er Hel-
ena Ósk Kristjánsdóttir sem kom frá
Fjölni.
Morgunblaðið/Hari
Átta Þórunn Friðriksdóttir skorar fyrir HK í úr-
slitaeinvíginu gegn Gróttu síðasta vor.
Mikil uppbygging
hjá ungu liði HK
Tvær HK-stúlkur komnar í landsliðið
Srdjan Tufegdzic, eða Tufa eins og
hann er kallaður, mun láta af störfum
sem þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu
eftir tímabilið en þetta kemur fram á
vef félagsins. Þar segir meðal annars:
„Að undanförnu hafa stjórn knd. KA
og Tufa, þjálfari Pepsídeildar liðs KA,
átt í viðræðum um endurnýjun á sam-
starfssamningi þessara aðila, en nú-
verandi samningur rennur út í lok
þessa tímabils. Aðilar hafa komist að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu, að
það þjóni hagsmunum beggja aðila að
staldra við og endurnýja ekki samn-
inginn.“ Tufa tók við stjórn karlaliðs
KA í ágúst 2015 en kom fyrst til KA
sem leikmaður árið 2006
Í gær bárust
einnig af því fréttir
að hinum megin í
bænum muni Lár-
us Orri Sigurðs-
son hætta sem
þjálfari 1. deild-
arliðs Þórs að leik-
tíðinni lokinni.
Lárus tók við þjálf-
un liðsins fyrir tímabilið í fyrra og
hafnaði liðið í 6. sæti í Inkasso-
deildinni og þegar tveimur umferðum
er ólokið í deildinni í ár eru Þórsarar í
fjórða sæti en eiga ekki lengur mögu-
leika á að komast upp. Lárus þjálfaði
Akureyrarliðið einnig á árunum 2006-
10.
Bandaríkjamaðurinn Tadd Fujikawa,
yngsti kylfingur sem leikið hefur á US
Open, greindi frá því á Instagram-síðu
sinni í vikunni að hann væri samkyn-
hneigður. Fujikawa er þar með fyrsti
karlkyns atvinnukylfingurinn sem lýsir
því yfir opinberlega að hann sé sam-
kynhneigður, að sögn tímaritsins Golf
Digest. Þessi 27 ára kylfingur, sem
fæddur er á Havaí, segist í tilefni af al-
þjóðlegum forvarnadegi gegn sjálfs-
vígum hafa viljað segja sína sögu í von
um að hjálpa öðrum. Fujikawa var að-
eins 15 ára áhugakylfingur þegar hann
vann sér sæti á US Open árið 2006 og
er hann enn yngstur allra sem spilað
hafa á risamótinu. Hann er einnig
meðal þeirra yngstu sem komast í
gegnum niðurskurð á PGA-móti, á
Sony Open heima á Havaí árið 2007.
Landsliðsmennirnir Ómar Ingi
Magnússon og Rúnar Kárason voru
atkvæðamiklir með liðum sínum í Ís-
lendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik. Aalborg hafði betur
gegn Ribe-Esbjerg á útivelli, 30:24.
Ómar Ingi skoraði 7
mörk úr 8 skotum fyrir
Álaborgarliðið. Rúnar
var markahæstur í liði
Ribe-Esbjerg með 9
mörk úr 13 skotum
.Aalborg hefur
unnið alla þrjá
leiki sína en
Ribe-Esberg
er með 2
stig eftir
fjóra leiki.
Eitt
ogannað
um neðstu sætunum. Stjörnunni er spáð fimmta
sæti, Selfossi sjötta sæti, KA/Þór sjöunda sæti og
HK er spáð áttunda og neðsta sætinu.
Morgunblaðið fer yfir liðin átta í Olísdeild
kvenna og skoðar stöðu þeirra og möguleika. Í
dag er fjallað um liðin sem spáð hefur verið fjór-
lur beint niður í 1. deild,
heitir áfram Grill 66-
ins í körfuknatt-
1 í Belgíu í gær-
innur var mætt-
g. Belgía sigraði
Íslands í keppn-
rjú sem komust
ar sem unnu Ís-
kelltu Frökkum
80:78 en Ísland
ði ekki til. Töpin
koma á óvart.
gíu
Franski landsliðsmarkvörðurinn Hugo Lloris verður
áfram fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Tottenham
þegar hann snýr til baka úr meiðslum. Lloris hlaut í
fyrradag dóm fyrir ölvunarakstur í London aðfara-
nótt föstudagsins 24. ágúst, þremur dögum fyrir leik
Tottenham og Manchester United. Hann viður-
kenndi brot sitt og verður án ökuréttinda næstu 20
mánuði. Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri
Tottenham, staðfesti í gær að Lloris yrði áfram fyr-
irliði. Hann er þó úr leik í bili vegna meiðsla og verð-
ur ekki með liðinu gegn Liverpool í úrvalsdeildinni
þegar liðin mætast á Wembley í hádeginu á morgun.
Heldur fyrirliðastöðunni
Hugo
Lloris
Allt bendir til þess að Andri Rafn Yeoman, leikja-
hæsti leikmaðurinn í sögu Breiðabliks í efstu deild
karla í knattspyrnu, missi af úrslitaleiknum gegn
Stjörnunni í Mjólkurbikar karla á Laugardalsvell-
inum annað kvöld. Andri glímir við meiðsli og missti
af leik Breiðabliks gegn Grindavík í síðustu umferð
Pepsi-deildarinnar, en þar var hann búinn að spila 91
leik í röð án þess að missa úr leik, eða í rúm fjögur ár.
Þá staðfesti Ágúst Þór Gylfason þjálfari Breiðabliks
á fréttamannafundi í gær að tveir aðrir leikmenn
liðsins, Oliver Sigurjónsson og Alexander Helgi Sig-
urðarson, væru tæpir vegna meiðsla. vs@mbl.is
Sá leikjahæsti ekki með?
Andri Rafn
Yeoman