Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 7
Bátar/Skip
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Ölduslóð 16, Hafnarfjörður, fnr. 208-0848 , þingl. eig. Róbert
Eiríksson, Rakel Róbertsdóttir og Gísli Rúnar Sævarsson,
gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 20. september nk. kl. 10:00.
Kópavogsbakki 6, Kópavogur, fnr. 230-1546 , þingl. eig. Flosi
Eiríksson, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Birta lífeyrissjóður og
Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 20. september nk.
kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
14. september 2018
Nauðungarsala
Útboð
Verkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „ONVK-2018-09
Endurgerð á vef Orku náttúrunnar“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
https://www.or.is/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 02.10.2018 kl. 14:00.
ONVK-2018-09 15.09.2018
Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í:
Endurgerð á vef
Orku náttúrunnar
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is
Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is
j l i , j í · í i · . .i
ll i i l n.is
HS VEITUR óska eftir tilboðum í verkið:
Húsbygging aðveitustöð JON-A
Útboð nr. HSV-VF0302033
Verkið fellst í byggingu nýrrar aðveitustöðvar
HS Veitna í Hafnarfirði. Aðveitustöðin mun vera
staðsett í Hamranesi við Krísuvíkurveg.
Það sem í verkinu felst:
• Jarðvinna.
• Jarðskautskerfi með
borholu.
• Steypu- og stálvirki.
• Frágangur innandyra.
• Frágangur utandyra.
• Lagnir og loftræsikerfi.
• Raflagnir og
smáspennukerfi.
• Frágangur lóðar.
Verkinu skal vera lokið að fullu þann
15. júní 2019.
Hægt verður að nálgast útboðsgögn á
vef HS Veitna, www.hsveitur.is, frá og
með mánudeginum 17. september 2018.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu HS Veitna,
Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ,
þriðjudaginn 23. október 2018, kl. 14:00.
Útboð
Raðauglýsingar 569 1100
STJÓRN VINA VATNAJÖKULS AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI
Vinir Vatnajökuls eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs. Samtökin styrkja rannsóknir, kynninga- og
fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umsóknarfrestur stendur FRÁ 1. ÁGÚST TIL 30. SEPTEMBER 2018.
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu samtakanna
www.vinirvatnajökuls.is
Tilboð/útboð
i1. Vélstjóri
1. vélstjóri óskast á frystitogarann Hrafn
Sveinbjarnarson GK-255 frá Grindavík.
Vélastærð 1850 kw.
Nánari upplýsingar gefur útgerðarstjóri
Eiríkur Dagbjartsson í síma 892-2502.
Styrkir
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
Lýst er þungum áhyggjum
af stöðu sauðfjárbúskapar
sem leitt hefur til búsetu-
röskunar í ályktun sem sam-
þykkt var á aðalfundi Sam-
taka sveitarfélaga á
Austurlandi sem haldinn var
í síðustu viku. Þar segir að
þróunar- og rannsókn-
arstarfsemi þurfi til að
styrkja búsetu innan við-
komandi svæða. Um sjávar-
útveginn segir að honum
þurfi að tryggja stöðugleika
og skýra framtíðarsýn. Mik-
ilvægt sé að allri opinberri
gjaldtöku sé stillt í hóf svo
hún hamli ekki uppbyggingu.
Heilbrigt og
hvetjandi umhverfi
Í ályktun SSA segir að
skapa verði heilbrigt og
hvetjandi umhverfi fyrir fjöl-
breytta atvinnuuppbyggingu
í fjórðungnum. Fiskeldi geti
orðið ein af burðarstoðum
atvinnulífs á Austfjörðum.
Þar líkt og í öðrum atvinnu-
greinum þurfi skýrt starfs-
umhverfi, stöðugt til langs
tíma. Mikilvægt er að op-
inbert eftirlit, leyfisveitingar
og umsóknarferli sé skilvirkt
og gagnsætt, byggt á bestu
fáanlegu upplýsingum.
Um ferðamálin sem eru
mikilvægur atvinnuvegur
eystra eins og annars staðar
á landinu segir SSA að ein-
falda þurfi stjórnsýsluna.
Ríkið þurfi að tryggja sveit-
arfélögum fjármagn til að
sinna þeim verkefnum sem
þeim eru falin, til að mynda
markaðssetningu landshlut-
ans, upplýsingaveitu fyrir
ferðamenn og uppbyggingu
innviða.
„Sú ákvörðun yfirvalda,
sem fram kemur í stjórn-
arsáttmála ríkisstjórn-
arinnar, að láta gistinátta-
gjaldið renna alfarið til
sveitarfélaga, er mikilvægt
fyrsta skref í þá átt. Fund-
urinn ítrekar mikilvægi þess
að framfylgt verði stefnu
stjórnvalda um dreifingu
ferðamanna og opnun ann-
arra fluggátta inn í landið.“
Skógrækt samkvæmt
skuldbindingum
Skógræktarmál voru
sömuleiðis í deiglunni á aðal-
fundi SSA. Þar eru stjórn-
völd hvött til þess að auka
framlög til skógræktar svo
mögulegt verði að standa við
skuldbindingar varðandi
plöntun og umhirðu nytja-
skóga. Einnig til að gera
nauðsynlega skógarplöntu-
framleiðslu mögulega.
„Stuðningur við skógrækt er
byggðaaðgerð en einnig sér-
lega áhrifarík leið til að
tryggja að Ísland geti mætt
skuldbindingum sínum í
loftslagsmálum,“ segir í
ályktun. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Djúpivogur Gjaldtöku af sjávarútvegi stillt í hóf, segir SSA.
Stöðugleiki og
framtíðarsýn
Áhyggjur af sauðfjárbúskap
eystra Fiskeldi og ferðamál
Fjölmargir viðburðir verða í
bæjum landsins á næstunni í
tilefni af evrópsku sam-
gönguvikunni sem haldin er
16.-22. september ár hvert.
Markmið vikunnar er að
kynna íbúum í þéttbýli sam-
göngumáta sem allt í senn
eru vistvænir, hagkvæmir og
bæta heilsu fólks um leið og
þeir hafa jákvæð áhrif á um-
hverfi og andrúmsloft. Þema
átaksins í ár er Veljum fjöl-
breyttan ferðamáta og því
eru allir hvattir til þess að
reyna að spara akstur og
ganga eða hjóla þessa daga.
Í Garðabæ verður margt
gert af þessu tilefni og er
fólk meðal annars hvatt til
að nota sunnudaginn til þess
að skoða útivistarsvæði bæj-
arins, að því er greinir frá á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Miðvikudaginn 19. septem-
ber verður farið í lýðheilsu-
göngu kl. 18:00. Þá er mæt-
ing í Heiðmörk, á nýja
bílastæðinu við Búrfellsgjá
og Selgjá. Þar verður nýtt
fræðsluskilti um Selgjá af-
hjúpað og svo mun Ragn-
heiður Traustadóttir forn-
leifafræðingur fara fyrir
göngu um svæðið.
Föstudaginn 21. sept-
ember verður áttunda ráð-
stefna Hjólafærni og Lands-
samtaka hjólreiðamanna
haldin undir heitinu Hjólum
til framtíðar. Ráðstefnan
verður haldin í félagsheim-
ilinu á Seltjarnarnesi kl. 10
en hjólað verður frá Bak-
arameistaranum í Suðurveri
í Reykjavík kl. 9 á ráðstefn-
una. Að endingu verður svo
frítt kaffi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Garðabær Leiðin er greið hvert sem halda skal í bænum.
Gengið og hjólað
Evrópska samgönguvikan