Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 1
Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is S TA R F S S T Ö Ð : R E Y K J AV Í K U M S Ó K N I R : W W W. H AG VA N G U R . I S U M S Ó K N A R F R E S T U R : 1 4 . O K T Ó B E R Isavia leitar að öflugum stjórnanda sem hefur örugga framkomu , samskiptahæfni, drifkraft og vinnur skipulega. Gerð er krafa um reynslu í stjórnun og háskólamenntun sem nýtist í starfi. Nánari upplýsingar gefur Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is. Meðal verkefna framkvæmdastjóra eru: • Að hafa yfirumsjón með rekstri og þróun innanlandsflugvalla og sjá til þess að rekstur sé í samræmi við ytri og innri kröfur • Að annast samskipti við hagsmunaaðila og þjónustukaupendur • Áætlanagerð og eftirlit með hagkvæmum rekstri, framkvæmdum og öryggismálum • Utanumhald um og stuðningur við dreifðar starfsstöðvar umdæma og verkefni þeirra F R A M K V Æ M D A S T J Ó R I F L U G V A L L A S V I Ð S V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ? Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is. Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia hefur hlotið gullmerki PwC fyrir launajafnrétti og hvetjum við bæði konur og karla til að sækja um þau störf sem í boði eru. Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir laust starf sálfræðings í leik- og grunnskólum Staða sálfræðings hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu er laus til umsóknar. Um er að ræða 80-100% stöðu í afleysingu, til eins árs. Starfsstöðin er á Hvolsvelli þar sem sálfræðingur vinnur í þverfaglegu samstarfi með öðrum sérfræð- ingum, leikskólaráðgjafa, kennsluráðgjafa grunnskóla og náms- og starfsráðgjafa. Á svæðinu eru fimm leik- skólar og fimm grunnskólar með u.þ.b. 780 börnum. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. desember nk., eða eftir samkomulagi. Starfssvið sálfræðings • Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til foreldra barna og starfsfólks leik- og grunnskóla. • Þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar og seta í teymum um einstök börn innan skólanna. • Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf í kjölfar greininga og eftirfylgd mála. • Þátttaka í fræðslufundum og námskeiðahaldi fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla. Menntunar- og hæfniskröfur • Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur. • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Færni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sálfræðingafélags Íslands og Sambands ísl. Sveitar- félaga Umsóknarfrestur er til 15. október nk. Umsóknir sendist í pósti á Skólaþjónusta Rang. og V-Skaft., Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli, eða í tölvupósti á netfangið edda@skolamal.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um menntun og fyrri störf. Frekari upplýsingar veitir Edda G. Antonsdóttir forstöðumaður Skólaþjónustu í netfanginu (edda@skolamal.is) eða í síma 487-8107 / 862-7522. Verslunarstjóri KRUMMA ehf. í Grafarvoginum óskar eftir verslunarstjóra, sem sér um verslunina, lager, netverslun og að hluta til um símann. KRUMMA ehf er 32 ára gamalt iðnfyrirtæki/heildsala/ leikfangaverslun. Upplýsingar um starfið: elin@krumma (ekki í síma)        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.