Barnablaðið - 23.09.2018, Blaðsíða 5
dansinn er hægt að nýta svo vel
ímyndunaraflið og hægt að finna upp á
svo mörgu nýju.
RafMax finnst allt skemmtilegt við
dansinn. Í dansinum upplifir hann
gleði, vellíðan, frelsi og hamingju sem
yfirgnæfir allt annað í kring.
Allar áhyggjur gleymast á meðan verið
er að dansa.
Fyrsta sýningin um afmælið gekk vel,
er þetta framhald?
Þetta er sjálfstætt framhald af
fyrri sýningunni. Þar voru
Óður og Flexa að halda
afmæli og þetta verk
hefst í raun beint eftir
afmælið þegar allt er
á rúi og stúi heima hjá
þeim. Óður og Flexa
þurfa því að taka til.
Þarf maður að hafa séð
fyrri sýninguna?
Nei, alls ekki.
Eru Freta og Rekaviður þarna ennþá?
Nei, þau eru ekki með en það gæti
verið að það heyrist eitthvað í þeim
Nú var ekkert talað í afmælis
sýningunni. Er einhver breyting á því?
Óður og Flexa tala ekki, þau nota
dansinn og hreyfingar til að tjá sig sem
getur verið mjög fyndið og skemmtilegt.
Hver semur verkið og hverjir leika?
Verkið er eftir Hannes Þór Egilsson
og Þyri Huld Árnadóttur. Leikstjóri
er Pétur Ármannsson. Sigríður
Sunna Reynisdóttir hannar búninga
og sviðsmynd og Kjartan Darri er
ljósahönnuður sýningarinnar.
Óður er dansaður af Hannesi Þóri
Egilssyni og Flexa af Þyri Huld
Árnadóttur. RafMax er dansaður af
Ernesto Camilo Aldazabal Valdes.
Hvenær eru sýningar og hvar?
Óður og Flexa: Rafmagnað ævintýri er
sýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Áætlaðar sýningar eru næstu
sunnudaga.
Hvað gerir Íslenski dansflokkurinn?
Íslenski dansflokkurinn er hópur af
flottum og hæfileikaríkum
dönsurum sem sýnir
margar ólíkar
danssýningar bæði
hér á Íslandi og í
útlöndum.
Fyrir hvern er
sýningin?
Sýning fyrir alla
fjölskylduna – fyrir
krakka frá tæplega 2
ára upp í 200 ára. Þetta
er sýning fyrir alla sem elska
stuð og gleði og hafa gaman af dansi
og glensi.
Er þetta ekki erfitt líkamlega að sýna
verkið?
Allir vinirnir eru sammála því m þetta
reynir á en þau eru öll mjög sterk og
búin að æfa sig svo lengi. Það er líka
bara svo gaman hjá þeim.
Síðasta sýning var tilnefnd til
Grímuverðlaunanna, er það ekki
heiður?
Já há – það var mikill heiður.
Megum við eiga von á fleiri
ævintýrum?
Það er aldrei að vita hvað Óði og
Flexu dettur í hug að gera næst –
ímyndunaraflið er ótakmarkað.
„Í
dansinum
er hægt að g
era
allt það sem
maður
vill, það eru
engin boð og
bönn.”
XXX x x x x
xxxx
Flexa og Óður í miklu stuði.