Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 2

Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þjálfarakapallinn í Pepsi-deild karla í fótbolta gekk endanlega upp á laugar- daginn þegar gengið var frá ráðn- ingum í þrjár síðustu stöðurnar sem voru á lausu. Óli Stefán Flóventsson hjá Grinda- vík og Srdjan Tufegdzic hjá KA skiptu einfaldlega um stöðu og aðstoð- arþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson tók við af Loga Ólafssyni sem aðalþjálfari Víkings í Reykjavík. Þar með liggur fyrir að tíu af þeim tólf þjálfurum sem luku tímabilinu með liðunum tólf sem leika í Pepsi- deild karla 2019 verða áfram við stjórnvölinn hjá sínum félögum. Logi og Kristján farnir Aðeins Logi og Kristján Guð- mundsson, sem yfirgaf ÍBV og tók við kvennaliði Stjörnunnar, hverfa á braut. Hinsvegar munu þrír þjálfarar þreyta frumraun sína í efstu deild á keppnistímabilinu 2019 en það eru Jó- hannes Karl Guðjónsson og Brynjar Björn Gunnarsson, sem koma upp í deildina með ÍA og HK, og Pedro Hipólito sem er tekinn við liði Eyja- manna af Kristjáni. Arnar Gunn- laugsson hefur áður þjálfað lið ÍA í deildinni en þá við hlið Bjarka bróður síns. Eftirtaldir tólf þjálfarar stýra lið- unum á komandi keppnistímabili: Ólafur Jóhannesson þjálfar áfram Íslandsmeistara Vals og verður sitt fimmta ár með Hlíðarendaliðið en hann var með samning út tímabilið 2019. Ágúst Gylfason, sem tók við Breiðabliki fyrir ári og náði í silfur- verðlaun í bæði deild og bikar, er með samning til loka tímabilsins 2020. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari bikarmeistara Stjörnunnar, er með samning til loka næsta tímabils. Það verður hans sjötta tímabil með Garða- bæjarliðið. Rúnar Kristinsson verður áfram þjálfari KR-inga. Hann tók við liðinu fyrir ári og samdi til loka tímabilsins 2020. Ólafur H. Kristjánsson verður sitt annað ár með FH-inga en hann er með samning til loka tímabilsins 2020. Pedro Hipólito, fertugur Portúgali, er nýr þjálfari ÍBV og tekur við af Kristjáni Guðmundssyni. Hann hefur þjálfað Fram í 1. deild í hálft annað ár. Hipólito var ráðinn til tveggja ára. Óli Stefán Flóventsson tekur við liði KA af Srdjan Tufegdzic og var ráðinn til þriggja ára, eða til loka tímabilsins 2021. Helgi Sigurðsson verður sitt þriðja ár með lið Fylkis. Hann var með samning út 2019 en samdi á dögunum að nýju til loka tímabils 2020. Arnar Gunnlaugsson er nýr aðal- þjálfari Víkings, í stað Loga, og samdi til loka tímabilsins 2020. Srdjan Tufegdzic tekur við liði Grindavíkur af Óla Stefáni og var ráð- inn til þriggja ára, eða til loka tíma- bilsins 2021. Jóhannes Karl Guðjónsson verður áfram þjálfari ÍA sem vann 1. deildina en hann var ráðinn til þriggja ára síð- asta haust. Brynjar Björn Gunnarsson verður áfram þjálfari HK sem hafnaði í öðru sæti 1. deildar en hann var ráðinn til tveggja ára síðasta haust. Tíu liðanna áfram með sama þjálfara Morgunblaðið/Eggert Valur Ólafur Jóhannesson fagnar öðrum Íslandsmeistaratitilinum í röð ásamt aðstoðarþjálfaranum Sigurbirni Hreiðarssyni.  Þrír munu stýra liðum í fyrsta skipti í efstu deild á næsta keppnistímabili Ljósmynd/Þórir Tryggvason KR Rúnar Kristinsson. Morgunblaðið/Valli Stjarnan Rúnar Páll Sigmundsson. Ljósmynd/Víkurfréttir FH Ólafur H. Kristjánsson. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Víkingur Arnar Gunnlaugsson. Ljósmynd/Skagafréttir ÍA Jóhannes Karl Guðjónsson. Morgunblaðið/Valli Breiðablik Ágúst Þór Gylfason. Morgunblaðið/Eggert ÍBV Pedro Hipólito. Morgunblaðið/Eggert KA Óli Stefán Flóventsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Grindavík Srdjan Tufegdzic. Morgunblaðið/Hari HK Brynjar Björn Gunnarsson. Morgunblaðið/Hari Fylkir Helgi Sigurðsson. Breski langhlauparinn Mo Farah vann sitt fyrsta maraþon- hlaup á sunnudag þegar hann bar sigur úr býtum í Chicago- maraþoninu. Hann gerði sér einnig lítið fyrir og setti nýtt Evrópumet í greininni. Tími Farah í hlaupinu í gær var 2:05,11 klukkustundir en fyrra Evrópumetið var 2:05,48 klukkustundir sem Sondre Moen setti í desember síðastliðnum. Í kvennaflokki kom Brigid Kosgei frá Kenía fyrst í mark á tímanum 2:18,35 klukkustundum. Farah er einn farsælasti frjálsíþróttamaður síðari tíma og var sexfaldur heimsmeistari og tvöfaldur ólympíumeistari í 5 þúsund og 10 þúsund metra hlaupum. Hann hætti hins vegar keppni í styttri vegalengdum í fyrra til þess að ein- beita sér að maraþoni. Hans síðustu keppnishlaup á braut voru á HM á heima- velli í London í fyrra. Nú virðist Farah vera líklegur til að ná einnig góðum ár- angri á malbikinu. sport@mbl.is Glæsilegur tími hjá Farah Mo Farah Gylfi Þór Sigurðsson er í liði umferðarinnar hjá flestum fjölmiðlum eftir virkilega góða frammistöðu í sigri Everton gegn Leicester á laugardaginn þar sem Gylfi skoraði glæsi- legt sigurmark. BBC birti úrvalslið sitt á sunnudag og því er Gylfi Þór og hann er einnig í liði umferðarinnar hjá Sky sem birti lið sitt í gær. Þá er hann í liði umferðarinnar hjá miðlum eins og ESPN, Daily Mail, goal.com og FourFourTwo. Fyrir helgina var Gylfi tilnefndur ásamt fimm öðrum sem leik- maður septembermánaðar. Gylfi er nú kominn til Frakklands ásamt leikmönnum ís- lenska landsliðsins en þeir mæta heimsmeisturum Frakka í vináttuleik í Guingamp á fimmtudaginn. Næsti leikur Gylfa og félaga í Everton er heimaleikur á Crystal Palace um aðra helgi og síðan mætir liðið Manchester United á Old Trafford í næsta deildaleik þar á eftir. sport@mbl.is Gylfi víða í liði umferðarinnar Gylfi Þór Sigurðsson EM U19 kvenna Undanriðill í Armeníu: Ísland – Belgía ......................................... 5:1 Hlín Eiríksdóttir 19., 55., Sjálfsmark 47., Alexandra Jóhannsdóttir 70., Sveindís Jane Jónsdóttir 90. – Kaily Dhondt 90. Wales – Armenía ...................................... 6:0 Lokastaðan: Ísland 3 3 0 0 11:2 9 Belgía 3 2 0 1 9:6 6 Wales 3 1 0 2 8:5 3 Armenía 3 0 0 3 0:15 0  Ísland og Belgía fara í milliriðil síðar í vetur þar sem leikið er um sæti í loka- keppninni í Skotlandi. Grikkland Xanthi – Larissa ...................................... 1:0  Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn í marki Larissa. KNATTSPYRNA Olís-deild kvenna KA – Grótta........................................... 21:22 Staðan: Valur 4 3 1 0 111:83 7 FH 4 3 1 0 114:110 7 Haukar 4 2 1 1 114:114 5 Selfoss 3 2 1 0 95:83 5 Afturelding 4 2 1 1 106:103 5 KA 4 2 0 2 101:95 4 Fram 4 1 1 2 106:109 3 ÍBV 3 1 1 1 92:93 3 Grótta 4 1 1 2 94:100 3 Akureyri 4 1 0 3 108:117 2 ÍR 4 1 0 3 104:113 2 Stjarnan 4 0 0 4 102:127 0 Svíþjóð AIK – Sävehof.......................................18:19  Ágúst Elí Björgvinsson varði 12/1 skot í marki Sävehof.  Efstu lið: Skövde 10, Kristianstad 10, Malmö 10, Alingsås 8, Sävehof 8. Danmörk Silkeborg-Voel – Esbjerg................... 26:28  Rut Jónsdóttir var ekki í leikmannahópi Esbjerg.  Efstu lið: Nyk 14, Odense 14, Esbjerg 12, Aarhus United 11, Herning-Ikast 9. HANDBOLTI HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: TM-höllin: Stjarnan – HK ................... 19.30 1. deild kvenna, Grill 66 deildin: Kaplakriki: FH U – HK............................ 20 Í KVÖLD!  Skotíþróttafélag Kópavogs átti tvo keppendur á heimsmeistaramóti ISSF í Changwon í Suður-Kóreu. Bára Ein- arsdóttir skaut með afburðum vel og náði að komast upp úr sínum riðli og tók þátt í úrslitum. Bára keppti í sinni aðalgrein, 50 m riffli, liggjandi. Þar hafnaði hún í 36. sæti af 86 kepp- endum. Jón Þór Sigurðsson keppti bæði í 50 m riffli, liggjandi, og einnig 300 m riffli, liggjandi. Í fyrri greininni hafnaði hann í 20. sæti í sínum riðli, en komst ekki áfram í úrslit. Jón Þór varð í 80. sæti í 50 m riffli, liggjandi. „Það er virkilega frábært að sjá þessa tvo íþróttamenn komast á stærsta mótið í sinni íþróttagrein þar sem besta skotfólk í heimi er saman- komið,“ segir í fréttatilkynningu frá fé- laginu.  Ágúst Elí Björgvinsson var öflugur í marki Sävehof þegar liðið heimsótti AIK í sænsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik í gær. Ágúst Elí varði 12 skot í markinu, þar af eitt vítakast, og var með um 41% markvörslu í eins marks sigri 19:18. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.