Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 4

Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 Ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins Kosning og nánari upplýsingar á Facebook.com/bilafrettir Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara: • Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is • Frestur til að skila inn myndum í keppni október er til kl. 23:59 laugardaginn 6. okt. • Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn • Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu • Keppnin fer fram í fjórum lotum og verður sú síðasta haldin í nóvember. • Fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum • Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði • Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember Fyrsti vinningur er ferð fyrir tvo á bílasýning- una í Genf í mars í boði Toyota á Íslandi. www.mbl.is/bill 3. UMFERÐ Ívar Benediktsson iben@mbl.is Eftir nærri hálfs mánaðar hlé vegna landsleikja og æfinga landsliðsins tóku leikmenn Olísdeildar kvenna í handknattleik upp þráðinn á nýjan leik á fimmtudagskvöldið þegar þriðja umferð hófst með viðureign KA/Þórs og ÍBV í KA-heimilinu. Þrír síðustu leikir umferðarinnar voru háðir um nýliðna helgi og ekki síðar en í kvöld verður flautað til leiks í fjórðu umferð þegar Stjarnan og HK leiða saman hesta sína í TM- höllinni í Garðabæ. Stjarnan og HK eru á athyglis- verðum stað í deildinni. Eftir miklar breytingar á leikmannahópnum hef- ur ekki tekist að stilla saman streng- ina í upphafsleikjunum með þeim af- leiðingum á Garðabæjarliðið rekur lestina af átta liðum deildarinnar með eitt stig. Um er að ræða harla nýja stöðu fyrir Stjörnuna sem ára- tugum saman hefur verið í fremstu röð handknattleiksliða hér á landi í kvennaflokki. Á laugardaginn fékk Stjarnan slæma útreið þegar Ís- landsmeistarar Fram komu í heim- sókn í TM-höllina í Garðabæ. Fram- liðið skoraði 47 mörk, þar af 27 í síð- ari hálfleik þegar Stjörnuliðið virtist hafa lagt niður vopnin. Rúm þrjú ár eru síðan lið fékk á sig fleiri en 40 mörk í kappleik í efstu deild kvenna eða síðan Afturelding tapaði fyrir ÍBV í Eyjum með 20 marka mun, 41:21. Ljóst er að varnarleikur Stjörn- unnar var og er e.t.v. í molum og sennilega sóknarleikurinn einnig sem er skýringin á að að Fram-liðið skoraði talsverðan fjölda af mörkum eftir hraðaupphlaup. Vissulega var skarð fyrir skildi hjá Stjörnunni að markvörðurinn Guðrún Ósk Marías- dóttir var ekki með í leiknum á laugardaginn gegn sínum gömlu fé- lögum. Eins og staðan er í Garðabæ um þessar mundir virðist sem Sebastian Alexandersson, þjálfari liðsins, sé nánast að byggja lið upp frá grunni. Að fá á sig 47 mörk í einum leik er svo sannarlega eitthvað sem má vinna út frá. Hvað sem hver segir er ljóst að það ríkir kreppa í meistara- flokksliði Stjörnunnar um þessar mundir. Kreppa sem má ekki standa lengi yfir ef ekki á illa að fara því nú standa fyrir dyrum tveir leikir hjá liðinu sem verða að vinnast ætli liðið að spyrna sér frá botninum, HK í kvöld og gegn KA/Þór nyrðra eftir viku. Nýliðarnir gefa ekkert eftir Nýliðar HK unnu annan leik sinn í röð þegar þeir lögðu Selfoss, 27:25, í Digranesi á laugardaginn í leik sem Selfoss-liðið mátti helst ekki tapa ætli liðið sér að forðast að vera í kjallarabaráttu. Erfið byrjun HK í deildinni, með tapi fyrir Haukum, sló svo sannarlega ekki kjarkinn úr leik- mönnum. Síður en svo. Sætur sigur á ÍBV í annarri umferð hefur styrkt liðið sem var betra liðið gegn Selfossi og vann sanngjarnan sigur. HK-liðið er svo sannarlega ekki mætt í deild- ina til þess eins að vera með. Hið sama má segja um hina nýliðana í KA/Þór. Þrátt fyrir aðeins einn sigur í þremur leikjum þá má segja sömu sögu um liðið og HK. Heildarbragur beggja liða er þannig að þau ætla sér að leggja allt í sölurnar til þess að halda sæti sínu í deildinni. Rútuferð í ófærð KA/Þór tapaði með átta marka mun fyrir ÍBV á fimmtudagskvöldið í upphafsleik umferðarinnar. Eyja- liðið sýndi mikla seiglu jafnt utan vallar sem innan. Liðið kom til Reykjavíkur snemma á fimmtudag- inn enda stóð til að fara með flugvél norður. Vegna veðurs var ekki flug- fært fyrri hluta dagsins. Þar með var ákveðið að fara norður með fólks- flutningabíl. Ekki var tvínónað held- ur lagt af stað í ferð sem gekk hægt vegna leiðindaveðurs og komu Eyja- konur ekki á leiðarenda fyrr en um klukkustund fyrir leik. Þær létu það ekki slá sig út af laginu þegar á leik- völlinn var komið heldur léku fínan leik fyrir framan á þriðja hundrað stuðningsmenn Þórs/KA í fínni stemningu í KA-heimilinu. Lands- liðskonan Arna Sif Pálsdóttir, sem verið hefur í atvinnumennsku í Dan- mörku, Frakklandi og í Ungverja- landi síðustu 10 ár, kynntist nýjum heimi í kringum íslenskan handbolta með ferðalaginu. Hún fór mikinn í leiknum og skoraði 12 mörk og fór fyrir Eyjaliðinu á vellinum. Átta marka sigur, 34:26, og ÍBV komið á sigurbraut á nýjan leik. Meistaraefnin í Val, undir stjórn hins þrautreynda þjálfara Ágústs Þórs Jóhannssonar, komst inn á sigurbraut á nýjan leik með afar heilsteyptri frammstöðu gegn Hauk- um á heimavelli síðdegis á sunnu- daginn, lokatölur 27:20. Fram- úrskarandi varnarleikur Vals með Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur og Gerði Arinbjarnar í aðalhlutverki lagði grunninn að sigrinum. Leik- menn Hauka virðast hinsvegar vera miður sín. Þeir hafa tapað tveimur leikjum í röð eftir lofandi upphafs- leiki, fyrst í meistarakeppninni og svo í fyrstu umferð deildarinnar. Kreppa ríkir í Garðabæ  Stjarnan rekur lestina í Olísdeildinni eftir þrjár umferðir  Íslandsmeistar- arnir skoruðu 47 mörk  HK getur unnið þriðja leikinn í röð í kvöld Morgunblaðið/Valli Öflug Landsliðskonan Arna Sif Pálsdóttir er komin heim úr atvinnu- mennsku og skoraði 12 mörk fyrir ÍBV á Akureyri um helgina. 3. umferð í Olís-deild kvenna 2018-2019 Markahæstir Lið umferðarinnar Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi 25 Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram 24 Arna Sif Pálsdóttir, ÍBV 23 Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Stjörnunni 23 Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi 22 Martha Hermannsdóttir, KA/Þór 20 Berta Rut Harðardóttir, Haukum 19 Greta Kavaliuskaite, ÍBV 15 Lovísa Thompson, Val 15 Sigríður Hauksdóttir, HK 15 Sólveig Lára Kristjánsdóttir, KA/Þór 15 Maria Ines Da Silva Pereira, Haukum 14 Steinunn Björnsdóttir, Fram 14 Kristrún Steinþórsdóttir, Selfosi 13 Þórhildur Gunnarsdóttir, Stjörnunni 13 Díana Kristín Sigmarsdóttir, HK 12 Karen Knútsdóttir, Fram 12 Katrín Vilhjálmsdóttir, KA/Þór 12 Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram 12 Íris Björk Símonardóttir Val Arna Sif Pálsdóttir ÍBV Lovísa Thompson Val Berglind Benediktsdóttir Fram Greta Kavaliuskaite ÍBV Þórey Rósa Stefánsdóttir Fram Perla Ruth Albertsdóttir Selfossi Varamenn: Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK Dajana Jovanovska, HK Elva Arinbjarnar, 2 HK Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val Sólveig Lára Kristjánsdóttir, 2 KA/Þór 2 2 2 2 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar Eitt allra vinsælasta efni í íþróttaumfjöllun Morgunblaðsins um langt árabil er án efa M-gjöfin. Einkunnagjöf blaðsins fyrir frammistöðu leikmanna í íslenska fótboltanum. Íþróttafréttamenn blaðsins gefa leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína í leikjum á Ís- landsmótinu. Hingað til í efstu deild karla, og frá og með nýliðnu keppnistímabili einnig í efstu deild kvenna. Eitt, tvö eða þrjú M eftir atvikum. Ekki fer á milli mála að vel er fylgst með M-gjöfinni, af lesendum blaðsins, leikmönnum og almennu áhugafólki um íslenskan fótbolta. Viðbrögðin sem blaðið fær jafnan við henni segja allt um það. Hvort sem þau eru jákvæð eða neikvæð. M-gjöfin er ekkert endilega hinn eini og sanni mælikvarði á getu og frammistöðu fótbolta- fólks. En hún gefur ágæta mynd af heildarframmistöðu liða og leik- manna á heilu tímabili. Á hverju tímabili eru það í kringum 20 manns sem skrifa um leikina fyrir Morgunblaðið og breiddin í umfjöll- uninni er því góð. Vangaveltur um hvers vegna þessi eða hinn fékk eða fékk ekki M eru einmitt það sem gefur þessu gildi. Fólk hefur mismunandi skoð- anir og M-gjöfin kveikir umræður. Kveikir líka í sumum. Við fáum reglulega skemmti- legar athugasemdir frá lesendum, eða sjáum og heyrum umræður í öðrum miðlum. Í sérstöku uppáhaldi hjá okkur er athugasemd sem kom í hlað- varpsþætti, þess efnis að „Dabbi Odds“ þyrfti að fara að halda starfsmannafund og fara yfir málin með íþróttadeildinni. Sá sami spáði að það „verði ekki M á næsta ári“. Þetta er skemmtilegt! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.