Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 2

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Grill 66 deild kvenna Valur U – Grótta .................................. 30:25 Staðan: ÍR 6 6 0 0 186:128 12 Fram U 7 5 0 2 189:147 10 FH 6 4 1 1 161:124 9 Fylkir 6 4 1 1 153:119 9 Valur U 7 4 0 3 165:160 8 Afturelding 5 3 0 2 124:98 6 HK U 6 2 0 4 130:163 4 Grótta 6 2 0 4 122:149 4 Víkingur 7 2 0 5 134:183 4 Fjölnir 6 1 0 5 134:150 2 Stjarnan U 6 0 0 6 98:175 0 Undankeppni EM karla 1. riðill: Ísrael – Pólland .................................... 25:24 Kósóvó – Þýskaland............................. 14:30  Þýskaland 4 stig, Pólland 2, Ísrael 2, Kó- sóvó 0. 2. riðill: Belgía – Króatía ................................... 25:30 Sviss – Serbía ....................................... 29:24  Króatía 4 stig, Sviss 2, Belgía 1, Serbía 1. 3. riðill: Tyrkland – Ísland................................. 22:33 Grikkland – Makedónía ....................... 28:26 Staðan: Ísland 2 2 0 0 68:43 4 Makedónía 2 1 0 1 57:55 2 Grikkland 2 1 0 1 49:61 0 Tyrkland 2 0 0 2 49:64 0  Þriðja og fjórða umferð eru leiknar 10. til 14. apríl og tvær síðustu umferðirnar fara fram dagana 12. til 16. júní.  Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast á EM 2020 og einnig fjögur lið með bestan árangur í þriðja sæti. 4. riðill: Lettland – Holland .............................. 29:25  Erlingur Richardsson þjálfar lið Hol- lands. Eistland – Slóvenía .............................. 20:31  Slóvenía 4 stig, Holland 2, Lettland 2, Eistland. 5. riðill: Finnland – Hvíta-Rússland................. 20:27 Bosnía – Tékkland ............................... 20:25  Tékland 4 stig, Hvíta-Rússland 2, Bosnía 2, Finnland 0. 6. riðill: Rúmenía – Frakkland.......................... 21:31 Litháen – Portúgal............................... 23:24  Frakkland 4 stig, Portúgal 4, Litháen 0, Portúgal. 0. 7. riðill: Slóvakía – Rússland............................. 21:22 Ítalía – Ungverjaland .......................... 22:30  Ungverjaland 4 stig, Rússland 4, Sló- vakía 0, Ítalía 0. 8. riðill: Færeyjar – Danmörk .......................... 17:35 Úkraína – Svartfjallaland.................... 29:24  Danmörk 4 stig, Úkraína 2, Svartfjalla- land 1, Færeyjar 1. EHF-Evrópubikar karla Austurríki – Svíþjóð ........................... 31:34  Patrekur Jóhannesson þjálfar lið Aust- urríkis.  Kristján Andrésson þjálfar lið Svíþjóð- ar. Spánn – Noregur.................................. 30:27  Spánn 4 stig, Svíþjóð 2, Noregur 2, Aust- urríki 0 Vináttulandsleikur karla Svíþjóð B – Japan................................ 32:24  Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans. Þýskaland Bensheim-Auerbach – Dortmund..... 27:28  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1 mark fyrir Dortmund. Danmörk Aarhus United – Odense .................... 25:26  Birna Berg Haraldsdóttir hjá Aarhus er frá keppni vegna meiðsla. Noregur Byåsen – Storhamar ........................... 19:24  Helena Rut Örvarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Byåsen. HANDBOLTI HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik karla vann öruggan 11 marka sigur á Tyrkjum, 33:22, í annarri umferð 3. riðils undankeppni EM í hand- knattleik karla í Ankara í gær. Sig- urinn var aldrei í hættu þótt aðeins hefði munað þremur mörkum á lið- unum að loknum fyrri hálfleik, 16:13, eftir að Tyrkir skoruðu þrjú síðustu mörk hálfleiksins. Eftir tvo sigurleiki í upphafs- leikjum undankeppninnar situr ís- lenska landsliðið eitt á toppi riðilsins með fjögur stig og víst er að líkurnar á að liðið tryggi sér þátttökurétt í lokakeppni EM 2020 eru afar góðar þótt enn séu fjórar viðureignir eftir. Beygur var í Guðmundi Þórði Guðmundssyni landsliðsþjálfara fyr- ir leikinn. Fljótlega eftir að flautað var til leiks í THF Spor Complex- íþróttahöllinni í Ankara í gær var ljóst að sá ótti var ástæðulítill. Ís- lenska liðið mætti afar ákveðið og vel búið inn í leikinn. Varnarleikur- inn var góður og sóknarleikurinn skipulagður. Eftir aðeins 12 mínútur var forskot íslenska liðsins orðið fimm mörk, 9:4, eftir að Arnór Þór Gunnarsson skoraði gott mark eftir hraðaupphlaup. Tyrkir reyndu hvað þeir gátu en fundu fá svör við varnarleik íslenska liðsins. Þeim tókst þó að minnka muninn í tvö mörk um skeið, 10:8. Nær komust þeir ekki það sem eftir lifði leiksins. Varnarleikur íslenska landsliðsins batnaði enn í upphafi síðari hálfleiks og einnig vaknaði Björgvin Páll Gústavsson til lífsins í markinu eftir að hafa verið daufur í fyrri hálfleik. Tyrkir skoruðu aðeins þrjú mörk á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálf- leiks og íslenska liðið náði tíu marka forskoti. Úrslitin voru þar með ráð- in. Frábær varnarleikur skilaði ís- lenska liðinu 13 mörkum eftir hraða- upphlaup að þessu sinni og munar um minna. Uppstilltur sóknarleikur gekk einnig afar vel sem er breyting til batnaðar en ekki er nema tæpt ár liðið síðan því var haldið fram að sóknarleikurinn væri Akkielsarhæll landsliðsins. Vörn Tyrkja var leikin sundur og saman hvað eftir annað og var gam- an að sjá hve Aron Pálmarsson féll betur inn í leik liðsins með yngri leikmönnum að þessu sinni en gegn Grikkjum á miðvikudagskvöldið. Engum vafa er undirorpið að heildarbragurinn á íslenska landslið- inu hefur tekið stakkaskiptum til hins betra á síðustu mánuðum. Hvort geta Tyrkja og Grikkja var ofmetin fyrir leikina tvo sem um garð eru gengnir var ofmetin eða ekki þá er ljóst að á stundum hefur íslenska landsliðið átt í mestu vand- ræðum með að vinna lakari landslið á sannfærandi hátt. Það hefur nú tekist í tvígang og er vonandi góðs viti. Morgunblaðið/Eggert Efstir Aron Pálmarsson, Rúnar Kárason, Ýmir Örn Gíslason og Elvar Örn Jónsson voru ánægðir eftir sigurinn á Grikkjum í síðustu viku. Þeir gátu einnig glaðst í gær eftir stórsigur á Tyrkjum í Ankara og að vera áfram í efsta sæti í sínum riðli í undankeppni EM 2020. Næstu leikir fara fram í apríl. Enginn beygur í Ankara THF Spor Complex, Ankara, und- ankeppni EM karla, sunnudag 28. október 2018. Gangur leiksins: 0:1, 3:4, 4:7, 7:10, 8:13, 10:16, 13:16, 14:19, 15:23, 16:25, 18:28, 19:29, 22:33. Mörk Tyrklands: Onur Ersin 5, Doruk Pehlivan 3, Özgür Sarak 3, Mehmet Demirezen 3, Caglayan Öztürk 2, Gör- kem Bicer 2, Taner Günay 1, Can Ce- lebi 1, Yasar Erdem Ates 1, Hali Ibra- him Öztürk 1. Varin skot: Taner Günay 5, Coskun Göktepe 4/1. Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Íslands: Elvar Örn Jónsson 9, Aron Pálmarsson 6, Bjarki Már El- ísson 5, Arnór Þór Gunnarsson 4, Rúnar Kárason 3, Björgvin Páll Gúst- avsson 1, Stefán Rafn Sigurmannsson 1/1, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Arnar Freyr Arnarsson 1, Sigvaldi Björn Guð- jónsson 1, Haukur Þrastarson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Ivan Cacador og Eurico Nicolau frá Portúgal. Áhorfendur: 1.570 og fremur daufir í dálkinn. Tyrkland – Ísland 22:33  Tyrkir voru snúnir niður strax í upphafi og þeir náðu sér aldrei á strik  Fram- úrskarandi varnarleikur og léttleikandi sóknarleikur aðal íslenska liðsins Grikkir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Makedóníumenn með tveggja marka mun, 28:26, í borginni Koz- ani í norðurhluta Grikklands í gær en liðin eru með Íslendingum og Tyrkjum í riðli undankeppni EM 2020. Makedóníumenn, sem fyrirfram þóttu sigurstranglegri, voru einu marki yfir í hálfleik, 13:12. Þeir réðu ekki við Grikki í síðari hálfleik og heimamenn fögnuðu sínum fyrsta sigri í undankeppninni og það frekar óvæntum. iben@mbl.is Grikkir skelltu Makedónum „Það gekk allt upp hjá mér og ekki spillti fyrir að mennirnir við hliðina á mér, Aron Pálmarsson og Rúnar Kárason, opnuðu mjög mikið fyrir mig,“ sagði Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik, eftir sigurinn á Tyrkjum í gær, 33:22, í undankeppni EM. Elvar Örn átti stórleik, skoraði níu mörk og lét mjög til sín taka í vörninni. „Fyrst og fremst var þetta góð liðsheild,“ sagði Elvar Örn hæverskur þegar Morgunblaðið náði tali af honum í leikslok í Ankara. „Við fengum færi nánast í hverri einustu sókn. Varnarleikurinn var flottur og Björgvin Páll Gústavsson góður í markinu. Það kom stuttur kafli í fyrri hálfleik þar sem við átt- um í smá basli en þegar kom fram í síðari hálfleik tókst okkur sífellt að loka betur og betur á sóknarmenn Tyrkja,“ sagði Elvar. „Mér leið bara mjög vel og það er gaman að leika með þessum strákum. Í þessum hóp vil ég vera. Reynslan kemur jafnt og þétt,“ sagði Elvar Örn sem stefnir ótrauð- ur á að vinna sér inn sæti í landslið- inu sem tekur þátt í HM í janúar en hann hefur átt sæti liðinu í síðustu landsleikjum. iben@mbl.is Það gekk allt upp hjá mér í leiknum  Elvar Örn átti stórleik í Ankara Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framfarir Elvar Örn Jónsson hefur sótt í sig veðrið með hverjum lands- leiknum sem hann leikur siðan hann lék sinn fyrsta leik í apríl í Bergen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.