Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson varð um helgina Íslands-
meistari í opnum flokki í kumite eftir sigur á Ólafi Engilbert
Árnasyni í úrslitabardaga. Íslandsmótið fór fram í Fylkis-
selinu í Norðlingaholti og var Ágúst að vinna sinn fyrsta Ís-
landsmeistaratitil í fullorðinsflokki.
Í kvennaflokki varð hin 17 ára gamla Azia Sól Adams-
dóttir Íslandsmeistari í fyrsta skipti í fullorðinsflokki eftir
öruggan sigur á Ólöfu Soffíu Eðvarðsdóttur í úrslitum. Azia
verður 18 ára á árinu og mátti því í fyrsta skipti keppa í opn-
um flokki.
Efnilegasta karatekona landsins, Iveta Ivanova, vann
sannfærandi sigur á Freyju Stígsdóttur í úrslitum í -61 kg
flokki. Iveta mátti hins vegar ekki keppa í opnum flokki þar
sem hún er á 17. aldursári, en 18 ára aldurstakmark er í
flokkinn. Aðeins tveir keppendur voru í flokknum og barðist
Iveta því aðeins einu sinni á mótinu.
Telma Rut Frímannsdóttir var best í +61 kg flokki en
hún hafnaði í þriðja sæti í opna flokknum eftir tap fyrir Aziu
í undanúrslitum. Ólafur Engilbert Árnason vann í +67 kg.
flokki hjá körlunum eftir sigur á Ágústi Heiðari í úrslitum.
Máni Karl Guðmundsson vann svo -67 kg flokk karla.
Fylkir vann sannfærandi sigur í liðakeppninni, eins og svo
oft áður, og kom Þórshamar þar á eftir. Afturelding hafnaði
í þriðja sæti liðakeppninnar. johanningi@mbl.is
Meistarar í
fyrsta sinn
Morgunblaðið/Eggert
Vörn Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson og Ólafur Engilbert Árnason takast á í úrslitaeinvíginu.
leikirnir tveir hefðu verið afar kær-
komnir til þess að kanna styrkleika
íslenska liðsins gegn einu af allra öfl-
ugustu liðum heims í þessum aldurs-
flokki.
„Síðasta vika nýttist okkur afar vel
við æfingar og leikina tvo en einnig
var hún kærkomin fyrir mig og Sig-
urstein Arndal sem er með mér í
þjálfarateyminu til þess að kynnast
strákunum og setja þá inn í þær
áherslur sem við erum með,“ sagði
Einar Andri.
„Okkur tókst að sjá vel hver styrk-
ur okkar er, ekki síst í samanburði við
eitt sterkasta lið Evrópu í þessum
aldursflokki.
Við lögðum höfuðáherslu á varn-
arleikinn á þeim æfingum sem við
vorum með liðið. Markmiðið var að
koma leikmönnum inn í þann varn-
arleik sem A-landsliðið leikur og ná
þannig að samræma varnarleikinn á
milli yngra og eldra landsliðsins. Sú
vinna gekk vel þrátt fyrir stuttan
tíma saman. Varnarleikurinn gekk
ótrúlega vel í þessum tveimur leikj-
um,“ sagði Einar Andri og bætti við.
„Vegna þeirrar áherslu sem við
lögðum á varnarleikinn sat sókn-
arleikurinn á hakanum að þessu
sinni. Okkur tókst lítið að vinna við
hann.“
Einar Andri og Sigursteinn völdu
20 leikmenn til æfinganna og leikj-
anna. Einar Andri segir mikinn efni-
við vera fyrir hendi í þessum aldurs-
flokki. Þess vegna hafi það verið
talsverð kúnst að velja hópinn. „Utan
þess 20 mann hóps eru þónokkrir
leikmenn sem kom til greina sem við
munum fylgjast með áfram. Þeir
koma alveg til álita næst þegar við
köllum saman æfingahóp,“ sagði Ein-
ar Andri en meðal þeirra sem ekki
voru í liðinu að þessu sinni er Gísli
Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Kiel
í Þýskalandi. Gísli Þorgeir hefur und-
anfarna daga verið í A-landsliðinu og
tók m.a. þátt í viðureigninni við Tyrki
í undankeppni EM í gær.
„Næstu skref hjá okkur á komandi
mánuðum eru að halda áfram að hóa
saman hópnum þegar tækifæri gefst í
kringum landsliðsvikurnar,“ sagði
Einar Andri Einarsson, þjálfari U21
ár landsliðsins í handknattleik karla.
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Landslið Íslands í handknattleik
karla, skipað leikmönnum 21 árs og
yngri, tapaði síðari vináttulandsleik
sínum við franska jafnaldra sína í
Schenker-höllinni á Ásvöllum á laug-
ardaginn, 26:21. Íslenska liðið vann
fyrri viðureignina á sama stað á
föstudag, 28:24. Leikirnir voru fyrsti
liður í undirbúningi íslenska lands-
liðsins fyrir heimsmeistaramótið sem
fram fer í þessum aldursflokki á
Spáni á næsta sumar. Einar Andri
Einarsson, þjálfari U21 árs landsliðs-
ins, sagði við Morgunblaðið í gær að
Morgunblaðið/Eggert
Sókn Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék báða leikina við Frakka um helgina. Hér sækir hann að frönskum varnarmanni í síðari leiknum á laugardag.
Mikill efniviður fyrir hendi
Tap og sigur í leikjum U21 árs landsliðsins við Frakka Megináherslan lögð á
að samræma varnarleikinn milli eldri og yngri liðanna HM á Spáni er framundan
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66 deildin:
Varmá: Afturelding – Fjölnir................... 18
Í KVÖLD!
1. deild karla
Vestri – Sindri .................................. 97:70
Vestri – Sindri .................................. 96:74
Staðan:
Vestri 5 4 1 454:376 8
Hamar 4 4 0 378:325 8
Þór Ak. 4 3 1 367:309 6
Höttur 4 3 1 364:318 6
Fjölnir 4 3 1 372:325 6
Selfoss 4 0 4 299:358 0
Snæfell 4 0 4 255:360 0
Sindri 5 0 5 388:506 0
1. deild kvenna
Tindastóll – ÍR.................................. 61:52
Þór Ak. – Njarðvík ........................... 85:57
Staðan:
Fjölnir 3 3 0 272:204 6
Þór Ak. 3 2 1 183:165 4
Grindavík 3 2 1 247:235 4
Njarðvík 4 2 2 276:293 4
Hamar 2 1 1 137:129 2
Tindastóll 3 1 2 214:243 2
ÍR 4 0 4 202:262 0
Spánn
Breogan – Obradoiro ..................... 69:56
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 1 stig
fyrri Obradorio og tók 3 fráköst.
B-deild karla:
Barcelona B – Granada................... 78:60
Kári Jónsson lék ekki með Barcelona
B að þessu sinni.
B-deild kvenna:
Celta Zorka – Patatas Hijolusa...... 92:79
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði
23 stig og tók 4 fráköst fyrri Celta
Zorka.
Frakkland
Nanterre – Le Mans ........................ 98:77
Haukur Helgi Pálsson skoraði 6 stig
og tók 1 frákast fyrir Nanterre.
Ungverjaland
Ceglédi – Györ ................................. 65:63
Helena Sverrisdóttir lék ekki með
Ceglédi að þessu sinni.
NBA-deildin
Charlotte – Chicago...................... 135:106
New York – Golden State ............ 100:128
Toronto – Dallas ........................... 116:107
Houston – LA Clippers ................ 113:133
Minnesota – Milwaukee ................. 95:125
New Orleans – Brooklyn.............. 117:115
Sacramento – Washington ........... 116:112
Detroit – Boston ............................. 89:109
New Orleans – Utah..................... 111:132
Atlanta – Chicago ............................. 85:97
Cleveland – Indiana...................... 107:119
Philadelphia – Charlotte .............. 105:103
Miami – Portland.......................... 120:111
Memphis – Phoenix ........................ 117:96
Milwaukee – Orlando ..................... 113:91
San Antonio – LA Lakers............ 110:106
KÖRFUBOLTI