Morgunblaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018 kopavogur.is Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 104 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er hann staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Leikskólastarfið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Menntunar- og hæfniskröfur · Leikskólakennaramenntun · Reynsla af starfi í leikskóla · Reynsla af stjórnun æskileg · Reynsla og þekkingin af starfi hugmyndafræði Reggio Emila æskileg · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi · Gott vald á íslenskri tungu · Góð tölvukunnátta Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða fullt starf frá og með 2. janúar 2019 eða samkvæmt samkomulagi. Frekari upplýsingar Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL. Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags stjórnenda í leikskóla. Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga af sakaskrá. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2018. Nánari upplýsingar veita Hólmfríður K Sigmarsdóttir, leikskólastjóri s. 840-2682 og Sigurlaug Bjarna- dóttir (sigurlaugb@kopavogur.is) deildarstjóri leikskóladeildar, s. 441-2855. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Aðstoðarleikskólastjóri í Marbakka Upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbær óskar eftir að ráða upplýsinga- og markaðsfulltrúa til starfa. Um er að ræða 100% starf. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi ber ábyrgð á innri og ytri upplýsinga- og markaðsmálum Grindavíkurbæjar, þar með talið ferðamálum. Hann hefur umsjón með vef bæjarins www.grindavik.is, gerð og útgáfu kynningar- efnis og sér um textagerð því tengdu. Tekur þátt í stefnumótun upplýsinga- og markaðs- og ferðamála og er tengiliður Grindavíkurbæjar við hagsmunaaðila og stofnanir því tengdu. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi starfar með umhverfis- og ferðamálanefnd. Helstu verkefni: • Umsjón með vef Grindavíkurbæjar, innri vef starfsmanna, innra fréttaritinu Þórkötlu og fréttabréfinu Járngerði. • Umsjón með tjaldsvæði Grindavíkurbæjar • Umsjón með Kvikunni • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri upplýsinga- og markaðsmála • Tekur þátt í uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu, innleiðingu upplýsingakerfa og hugbúnaðar, þróun verklags og verkferla Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla af upplýsinga-, markaðs- og ferðamálum • Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er kostur • Reynsla og þekking á rekstri og verkefnastjórnun er kostur • Góð þekking á notkun samfélagsmiðla er æskileg. • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Geta til að sýna frumkvæði og rík skipulagshæfni • Framúrskarandi tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum • Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti • Hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt í töluðu og rituðu máli Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Þórisson í síma 420-1103 eða í tölvupósti jont@grindavik.is. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið jont@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2018. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Frumvarp um Þjóðgarða- stofnun sem nú liggur fyrir Alþingi er ekki til þess fallið að skapa sátt um verndun náttúru og eignarréttindi að landi. Í frumvarpsdrögunum virðist hvergi gert ráð fyrir aðkomu landeigenda og ein- ungis er gert ráð fyrir sam- ráði við sveitarfélög sem hlut eiga að máli en ekki samþykki þeirra. Þetta segir í ályktun sem stjórn Landssamtaka landeigenda samþykkti nú í vikunni. Samtökin telja óþarft og það auki flækjustig að setja á fót nýja stofnun til að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða og annarra frið- lýstra svæða. Nær væri að sameina þær stofnanir sem þegar eru fyrir hendi og fela einni framkvæmdastofnun verkefni þeirra, ásamt verk- efnum þjóðgarðanna. Landeigendur hafa ekki aðkomu Í frumvarpinu er, segir í ályktun, gert ráð fyrir beinni eignarnámsheimild Þjóð- garðastofnunar, að fengnu leyfi ráðherra. Nær heimildin til þess að taka eignarnámi lönd, mannvirki og réttindi til þess að framkvæma friðun. Þetta segja landeigendur að þýði að þjóðgarðsstofnun sé veitt heimild, til dæmis til að kaupa stjórnarskrárvarin eignarréttindi meðal annars innan þjóðlenda, sem að gild- andi lögum verður ekki hnik- að, nema með eignarnámi. „Þessi hugmyndafræði er andstæð hagsmunum land- eigenda og þá sérstaklega til- vísun til þess að um fram- kvæmd eignarnáms og ákvörðun bóta fari eftir al- mennum reglum, enda við því að búast að verðmat þessara eignarréttinda yrði á ein- stökum tímabilum langt undir raunverulegu verðmæti þeirra þegar til lengri tíma er litið,“ segja landeigendur í ályktun sinni. Þeir telja hug- myndir um umdæmisráð sett- ar fram frekar til málamynda og til þess að reyna að ná samráðssáttum við hags- munaaðila frekar en að þessi ráð eigi að hafa einhver raun- veruleg völd. Hugmyndin virðist tiltölulega lítt á veg komin í þróunarferli og lögð í dóm ráðherra að fengnum til- lögum Þjóðgarðastofnunar. Ekki er að sjá að landeig- endur hafi neina aðkomu að þessum ráðum þrátt fyrir að eiga ríka hagsmuna að gæta. Eflir ekki trúnað „Þessi frumvarpsdrög eru að mati Landssamtaka land- eigenda ekki til þess fallin að efla trúnað og traust milli rík- isins og landeigenda. Það sem veldur mestum áhyggjum er að hvarvetna er sneitt framhjá landeigendum og yf- irleitt ekki gert ráð fyrir að- komu þeirra með nokkrum hætti. Á hinn bóginn eru til- greindar einhliða heimildir Þjóðgarðastofnunar til að taka eignir og réttindi þeirra eignarnámi. Ekkert er litið til þeirrar alkunnu og raun- sönnu reglu að landeigendur eru bestu vörslumenn lands- ins og hafa verið frá alda öðli,“ segir í ályktun. Þar segjast samtökin fylgjandi vernd náttúrunnar og sjálf- bærri nýtingu hennar. Þeim markmiðum sem að virðist stefnt með frumvarpi um þjóðgarðastofnun verði hins vegar ekki náð fram nema með þátttöku landeigenda, samstarfi og samþykki þeirra en ekki valdboði og flókinni stjórnsýslu sem landeigendur eiga enga aðild að. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Herðubreið Þjóðarfjallið setur sterkan svip á hálendið. Veikir vernd  Landeigendur mófallnir þjóð- garðsstofnun  Flækjustig mun hækka  Vilja hafa samráð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvellir Öxarárfoss frá óvenjulegu sjónarhorni. Hrannar Björn Arnarsson hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og hefur þegar hafið störf. Síðastliðin fimm ár hefur hann verið framkvæmdastjóri þingflokks jafnaðarmanna í Norður- landaráði, en áður starfaði hann m.a. sem aðstoðarmaður ráðherra, borgarfulltrúi, sölu-, þjónustu- og markaðsstjóri auk þess að hafa stofnað og stýrt eigin fyrirtækjum um árabil. Hrannar Björn hefur MBA- gráðu frá Háskóla Íslands. Til ADHD sam- takanna var Hrannar Björn valinn úr stórum hópi umsækjenda og var ráðningarferlið í höndum In- tellecta. „ADHD samtökin fagna 30 ára starfsafmæli um þessar mundir. Samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir sem og fjöl- skyldum þeirra en tæplega 3.000 fjölskyldur eiga aðild að samtökunum. ADHD samtökin eru aðilar að Öryrkjabanda- lagi Íslands og einn fjögurra stofnaðila Ráðgjafamiðstöðv- arinnar Sjónarhóls,“ segir í tilkynningu. Hrannar Björn ráðinn til ADHD Hrannar Björn Arnarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.