Morgunblaðið - 09.11.2018, Síða 2
1 Hornauga eftir Ásdísi Höllu BragadótturBókin er átakanleg saga um leit Ásdís-ar Höllu að föður sínum. Í bókinni lýsirhún því á persónulegan hátt hvað hún
gekk í gegnum, sem var langt frá því að vera
auðvelt. Í leiðinni segir hún sögu forfeðra sinna
sem upplifðu harða lífsbaráttu og tóku kannski
ekki alltaf réttar ákvarðanir.
2 Ungfrú Íslandeftir Auðu ÖvuÓlafsdótturBókin gerist í Reykjavík árið 1963
en hún fjallar um unga skáldkonu sem flytur
vestan úr Dölum með nokkur handrit í fórum
sínum. Sagan gerist á tímum þegar karlmenn
fæddust skáld en ungum konum var boðið að
taka þátt í fegurðarsamkeppni Fegrunarfélags
Íslands. Verðlaunahöfundurinn Auður Ava
fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir síðustu
skáldsögu sína, Ör.
3 LUNDI Sigurjóns PálssonarHvað er íslenskara enlundi? Þessi trélundi eftir
Sigurjón Pálsson er nýlegur og því
ekki til á mörgum heimilum. Hann
er mikið stofustáss og passar vel inn
á heimilið án þess að vera of pláss-
frekur og áberandi. Lundinn fæst í
Epal.
4 LakridsBy JohanBülowFlestum
finnst lakkrís góður
en það er þó varla
neinn lakkrís sem
toppar Salty Cara-
mel Choc Coated
Liqourice frá Lak-
rids By Johan
Bülow. Hann fæst í
Epal.
7jólagjafir fyrir vandláta
Hvað er hægt að gefa fólki sem á allt og vantar ekkert í jólagjöf? Góðar bækur eru til dæmis alltaf
góð gjöf. Hver nýtur þess ekki að leggjast upp í rúm á aðfangadagskvöld og lesa fram á nótt og
ekki er verra ef innihaldið er þannig að það hreyfi við fólki. Þeir sem eiga allt hafa yfirleitt gaman af
einhverju fínirí og þá koma skrautmunir og lekkert sælgæti vel til greina. Marta María | mm@mbl.is
5 Phoenix Christ-mas 2018 krist-alskertastjaki frá Reflections
Ef starfsmennirnir eru
glysgjarnir eru skrautmun-
irnir frá Reflections frábær
gjöf. Um er að ræða muni
úr kristal sem gera hvert
heimili að höll. Stjakarnir
fást í Snúrunni.
6 Áskrift að StorytelEf þú átt allt ogvantar ekkert geturáskrift að Storytel
verið eitthvað. Storytel er bóka-
búð með mikið úrval af hljóð-
bókum. Það að fara út í göngu-
túr eða þrífa heimilið getur
orðið að mestu skemmtun ef þú
færð tækifæri til að hlusta á
eitthvað skemmtilegt á meðan.
Hægt er að kaupa áskrift á
www.storytel.is.
7Sextíu kóló af sól-skini eftir Hall-grím Helgason Í bókinni segir
frá umbrotatímum á Ís-
landi um aldamótin 1900.
Nútíminn brestur á með
látum í litlu sjávarþorpi.
Bókin er vel heppnuð og
spennandi. Sérfræðingar
segja að Hallgrímur hafi
aldrei verið betri.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir
Blaðamenn Marta María Jónasdóttir
martamaria@mbl.is, Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Auglýsingar Bylgja Sigþórsdóttir
bylgja@mbl.is Jón Kristinn Jónsson jonkr@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumynd:
Thinkstock
Það er vandmeðfarið að gefa starfsfólki fyrirtækja jólagjafir. Jólagjafirnar þurfa
að henta fjöldanum, þurfa helst að kalla fram gleði og ákveðna stemningu og
mega alls ekki vera móðgandi.
Einu sinni voru fyrirtæki að gefa kjötskrokka í stórum stíl en eftir að annar hver
maður varð vegan hentar kannski betur að gefa fólki inneign í matvöruverslun
eða hafa gjafirnar þannig að fólk geti valið hvort það fær kjöt eða hnetusteik.
Ég hef til dæmis vanið mig á ef ég fæ inneignir eða gjafakort að nota það
strax því annars gleymi ég því. Það er spælandi að fatta það löngu síðar að inn-
eignin sem maður fékk einhvern tímann sé útrunnin. Eða allavega ef fólk er að
reyna að fara vel með peningana sína. Í fyrra fékk ég til dæmis inneign í útvistar-
verslun frá fyrirtækinu mínu og rauk beint í búðina og notaði mína jólagjöf til að
kaupa jólagjafir fyrir aðra. Það fannst mér bráðsniðugt því maður er einhvern
veginn alltaf að reyna að vera hagsýnn og sniðugur. Í desembermánuði hafa út-
gjöld tilhneigingu til að fara yfir fyrirfram ákveðin mörk og þá er alltaf gott að fá
óvæntan glaðning.
Birta Flókadóttir, markaðsráðgjafi og rýmishönnuður, segir að mikilvægt sé
að jólagjöfin nýtist vel og gleðji. Að sameina þetta tvennt getur verið snúið. Hún
bendir til dæmis á að það sé frekar taktlaust að gefa gjafabréf í verslun upp á
5.000 kr. þegar ódýrasta varan í versluninni kostar 15.000 kr. Hún segir að einu
sinni hafi hún fengið lofthreinsitæki frá vinnunni og hafi verið töluvert súr með
þá gjöf. Svo bendir hún á að innpökkunin og textinn í kortinu skipti máli. Mögu-
lega mættu fyrirtæki leggja meiri metnað í það.
Ég hef einu sinni verið mjög súr með jólagjöf. Það
var þegar ég fékk sérmerkta flíspeysu frá fyrirtækinu
sem ég vann hjá. Ástæðurnar fyrir því að ég var súr
voru nokkrar. Í fyrsta lagi nota ég flíspeysur lítið (lesist
aldrei). Í öðru lagi langar mig ekki að vera merkt fyr-
irtækinu sem ég vinn hjá nema ég sé á vettvangi þar
sem sérmerkingar eru nauðsynlegar og í þriðja lagi
var flíspeysan í XL. Líklega var ég mest móðguð yfir
stærðinni því ég taldi mig vera nálægt kjörþyngd.
Flíspeysa í XL passaði á 100 kílóa karl.
Ég gat auðvitað ekki legið á skoðunum mín-
um og þegar ég benti á að þessi jólagjöf væri
glötuð fékk ég að heyra að ég væri vanþakklát
forréttindatík. Það getur vel verið að ég hafi ver-
ið það fyrir meira en áratug en það breytir því
ekki að mér finnst þessi jólagjöf ennþá fárán-
leg. Sérmerktar flíspeysur í XL eru og hafa
aldrei verið töff.
Flíspeysa í XL
Marta María Jónasdóttir
Askalind 4 201 Kópavogur Sími 552 8400 www.valfoss.is
Glæsilegar gjafir
til starfsmanna
og viðskiptavina
Þú velur gjöfina
Við pökkum gjöfinni inn
Við komum gjöfinni til þín