Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 6

Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 6
S tjórnendur eru ekki öfundsverðir af því hlutskipti að þurfa að velja hina fullkomnu jólagjöf fyrir heil- an vinnustað. Ef gjöfin heppnast vel má reikna með að hún auki starfsánægju og komi starfsfólkinu í jóla- skap, en mislukkist gjafavalið má eiga von á gremju og fýlu. Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, segir ágætt að minna á það að fyrirtækjum og stofnunum ber engin skylda til að gefa starfsfólki jólagjafir. „Séð frá því sjónarhorni er ekkert til sem heitir léleg gjöf, og ætti að þakka fyrir allar gjaf- ir. En flestir líta ekki lengur á fyrirtækja- gjafirnar með þessum hætti, heldur vænta þess að fá gjöf sem n.k. jólabónus.“ Guðríður myndi ráðleggja stjórnendum fjölmennra vinnustaða að gera sér fyrst af öllu grein fyrir því að það mun seint takast að finna gjöf sem allir verða hæstánægðir með. Óskir fólks, þarfir og smekkur séu ein- faldlega of fjölbreytt til að gera megi öllum til geðs. Er þó hægt að hafa nokkur atriði til hliðsjónar til að auka líkurnar á að gjöfin gleðji: Varist merkingar og heimilisskraut „Það virðist t.d. ekki mælast mjög vel fyr- ir þegar fyrirtæki gefa gjafir og merkja þær með áberandi hætti. Mögulega sjá fyr- irtækin það sem góða kynningu að gefa starfsfólkinu treyju eða yfirhöfn með nafni fyrirtækisins prentað stórum stöfum, eða að það efli liðsheildina að hafa alla í eins flík, en útkoman er æði oft sú að starfsfólkið er óánægt með þess háttar gjafir og líkar illa að eiga að vera gangandi auglýsing. Það má setja merki einhvers staðar, en það ætti þá að hafa merkinguna smáa og smekklega.“ Guðríður segir einnig snúið að velja hönn- unar- eða nytjavöru fyrir heimilið. Hún seg- ir vissulega gaman að gefa flotta hönnun sem þiggjandinn stillir upp á besta stað í stofunni, eða áhald sem kemur í góðar þarf- ir í eldhúsinu, en sá stíll sem fólk vill hafa á heimilum sínum sé mjög breytilegur og það sem einum þyki til prýði vilji annar ekki sjá. En hvað með að gefa þá matvöru? Er ein- hver sem myndi fúlsa við körfu af sælkera- mat og jólakræsingum? „Matarkarfan er öruggari kostur en margt annað, en getur samt verið vandmeðfarin enda ófáir sem velja að vera á sérstöku fæði, hvort sem fólk vill sleppa dýraafurðum, kolvetnum eða vera á einhverri annarri línu varðandi mat. Flestir geta þó nýtt gjafakörfurnar, ef ekki fyrir sig sjálfa þá fyrir fjölskyldumeðlimi og gesti. Þá bætir líttillega við flækjustigið að matur er ferskvara og stundum áskorun að dreifa matarkörfum í stórum fyrirtækjum án þess að hætta á að maturinn skemmist.“ Gjafakort og eitthvað sætt Mögulega er öruggast af öllu að gefa gjafakort en Guðríður segir að mörgum þyki umslag með greiðslukorti eða inneign- arnótu ekkert sérstaklega hátíðleg gjöf, og óneitanlega skemmtilegra að gefa pakka. „Það er orðið vinsælt að gefa gjafakort hvort sem það er gefið út af banka, eða af verslunarmiðstöð. Bankakortunum hefur vaxið ásmegin enda hafa þau þann kost að þau má nota hvar sem er,“ útskýrir hún. „Margir fara þá leið að láta litla, sæta og táknrækna jólagjöf fylgja kortinu, svo að úr verði meiri pakki, og gæti t.d. askja með konfekti og gjafakort verið góð blanda.“ Ræður Guðríður stjórnendum frá því að gefa starfsmönnum misdýrar gjafir, eða gjafakort með misháum upphæðum. Það geti verið viðkvæmt mál að nota jólagjöfina sem umbun fyrir vel unnin verk á árinu ef það á ekki við allan hópinn, og ef það skyldi spyrjast út að sumir fengu meira en aðrir er næsta víst að það hefði neikvæð áhrif á gleði hinna. „Ég mæli svo heilshug- ar með gjöfum sem fela í sér stuðning við gott málefni, s.s. með því að láta fylgja með gjafakorti til starfsmanna einhvers konar styrk til góðagerðarmálefnis. Góð- gerðarfélögin bjóða nú orðið upp á ýmsar vörur eða styrktarleiðir sem væru flottar í jólapakkann og fylgir þeim hinn sanni andi jólanna.“ Jólasveininum í fyrirtækinu getur verið vandi á höndum Hvað gjöf á að kaupa handa starfsfólkinu svo að sem flestir verði ánægðir? Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Flestum þykir konfekt gott og óvitlaust að blanda saman konfekti og gjafakorti. Morgunblaðið/Hari Guðríður segir gjafkort frá bönkum og verslunarmiðstöðum nýtast flestum vel. En umslag með plastkorti er ekki mjög hátíðleg gjöf og því ágætt að eitthvað lítið, sætt og táknrænt fylgi með. 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Það skiptast á skin og skúrir í öllum rekstri og sum árin þarf að herða sultarólina með því ýmist að sleppa því að gefa starfsfólki jólagjöf, eða þá gefa ódýrari gjöf en venjulega. Guðríður segir þessa stöðu hafa t.d. komið upp hjá mörgum fyrirtækjum í kjölfar banka- hrunsins og valdið óánægju á sumum stöðum. „Ef verður skyndileg stefnubreyting í jóla- gjafamálum sýnir reynslan að góð upplýsingagjöf skiptir máli. Ég man eftir fyrirtækjum þar sem það kom starfsfólkinu í opna skjöldu að fá ekki jafn veg- lega gjöf og venjulega, með til- heyrandi kvörtunum, en á öðr- um stöðum tókst að skapa samstöðu og skilning á því að aðhaldsaðgerða væri þörf. Það er vel hægt að minnka jólagjöf- ina án þess að allt verði brjál- að.“ Ráðleggur Guðríður líka að upplýsa starfsmenn um það fyr- irfram ef að stendur til að víkja frá rótgrónum hefðum í gjafaval- inu. Ef starfsfólkið hefur t.d. van- ist því, ár eftir ár, að fá matar- körfu með hangikjöti eða hamborgarhrygg til að elda of- an í heimilismeðlimi, geti það komið því óþægilega á óvart að fá allt í einu eitthvað allt annað að gjöf. Gildir þá það sama: að upplýsa starfsmenn fyrirfram. Viti af breytingum fyrirfram Morgunblaðið/Golli Ef starfsfólkið er vant að fá jólasteikina að gjöf frá vinnuveitand- anum þarf að fara varlega ef til stendur að breyta út af hefðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.