Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 14

Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga, fjölskyldu og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Þrjár mismunandi steikur ásamt meðlæti. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Konunglegar kræsingar. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Hátíðlegir smáréttir. Jólasteikur Jólahlaðborð 1&2 Jólasmáréttir Jólahlaðborð Jólin 2018 Þ egar tekur að styttast í jólin kemur sælkerinn upp í landsmönnum, og þeir láta eftir sér alls kyns góðgæti. Þeir eiga það líka til að vilja gleðja vini, vandamenn og vinnufélaga með matargjöfum, vitandi sem er að leiðin að hjartanu liggur í gegnum magann. Jóhann Jónsson, matreiðslumað- ur og eigandi Ostabúðarinnar á Skólavörðustig, segir mikið líf og fjör skapast bæði í sælkeraversl- uninni og veitingastaðnum sem hann rekur í sama húsi. Er fastur liður í jólahaldinu hjá mörgum að líta við í Ostabúðinni og versla þar ýmsa klassíska rétti sem Jóhann og starfsmenn hans hafa í búðar- borðinu í desember. „Með hverju árinu fjölgar þeim sem kaupa hjá okkur ljúffenga forrétti til að bera fram í matarboðunum yfir jólin. Heitreykta gæsin er alltaf jafn vin- sæl, sem og gæsalifrar-terrine sem við búum til frá grunni. Grafið ær- fíle, grafið hrossafíle, villibráðar- paté og geitarúlla með hráskinku er líka í uppáhaldi,“ segir hann. „Fólk sækir forréttinn einfaldlega til okkar, kaupir nákvæmlega það magn sem þarf að nota og léttir matseldina í öllum asa jólanna.“ Að mati Jóhanns eru Íslending- ar nú til dags viljugri en oft áður að prófa nýja hluti í jólamat. „Í gamla daga var það hér um bil heilagt að hafa bara aðalrétt og eftirrétt, en smám saman erum við að sjá þá hefð koma inn að snæða góðan forrétt en hafa þá aðalrétt- inn minni. Er þá borðhaldið líka með öðrum hætti, og fólk ekki að sprengja sig gjörsamlega á aðal- réttinum svo það geti varla haldið sér vakandi á meðan verið er að opna jólapakkana.“ Sækja í fiskrétti fram að jólum Ostabúðin hefur verið kennileiti á Skólavörðustíg um margra ára skeið og uppáhald fjölda sælkera, en auk verslunarinnar býður Osta- búðin upp á vinsæla veisluþjónustu fyrir hin ýmsu tilefni. Árið 2015 stækkaði reksturinn yfir í næsta hús við hliðina og var þar opnaður veitingastaður sem deilir nafni sælkeraverslunarinnar. Jóhann segist, merkilegt nokk, ekki vera með sérstakan jólamatseðil á að- ventunni: „Hjá veisluþjónustunni má vita- skuld fá jólamat en almenningur virðist kunna að meta það í desem- Vinsælustu vörurnar gera matarkörfuna að skotheldri jólagjöf Jói í Ostabúðinni segir æ algengara að fólk létti sér matseldina í kringum jól- in með því að kaupa tilbúinn forrétt eins og heitreykta gæs eða grafið ærfíle. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Flestir finna eitthvað sem þeim líkar í körfu af sælkeramat.. Jói segir gott ráð til að létta jólastússið að kaupa tilbúinn for- rétt eins og villibráð- arpaté eða ærfíle.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.