Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018FRÉTTIR
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum
Ekkert af stærstu tæknifyrirtækjum
Kína, hvort sem þau eru skráð á
markað eður ei, hefur sloppið við þá
neikvæðu þróun sem að undanförnu
hefur litað markaðinn jafnt innan sem
utan kauphallar.
Sum þeirra virðast þó meira ber-
skjölduð en önnur um þessar mundir.
Þar á meðal eru fyrirtæki sem til-
heyra fyrstu kynslóð kínverskra
tæknirisa og virtust á sínum tíma
vera óstöðvandi.
Sú var tíð að þessi fyrirtæki komu
með þann skapandi neista sem þurfti
til að keyra áfram vélar atvinnulífsins,
um leið og þau stækkuðu sjálf ógn-
arhratt: mælt í markaðsvirði koma í
dag níu af tuttugu stærstu tækni-
samsteypum heims frá Kína. Þau þrjú
félög sem markaðurinn þekkir best
ganga undir skammstöfuninni BAT –
Baidu, Alibaba og Tencent – og hafa
þótt lýsandi fyrir þá tæknirisa sem
sprottið hafa upp á meginlandi Kína og
þykja sumir hafa alla burði til að verða
engir eftirbátar risanna í Kísildal.
Þessi fyrirtæki urðu jafnvel svo
áhrifamikil að margir markaðs-
greinendur óttuðust að rétt eins og
þau höfðu drifið áfram nýsköpun á
sínum tíma þá gætu þau farið að
standa í vegi frekari framþróunar.
Í dag virðast mörg þessara fyrir-
tækja ekki eins rismikil og þau voru
fyrir aðeins nokkrum misserum. Þau
glíma öll við alvarleg vandræði sem
spanna allt frá veikleikamerkjum í
viðskiptaáætlunum, yfir í árekstra við
stjórnvöld og erfiðleika við að finna
gott fólk til að taka við stjórnartaum-
unum.
Sprotarnir sækja í sig veðrið
Það sem meira er, þá standa þessi
fyrirtæki, sem eitt sinn þóttu dæmi-
gerð fyrir það hvernig nýjar lausnir
geta umturnað atvinnulífinu, núna
frammi fyrir því að ný kynslóð tækni-
fyrirtækja reyni að velta þeim úr
sessi. Við það vaknar sama spurning
og fyrsta kynslóð tæknirisa hinum
megin við Kyrrahafið stendur frammi
fyrir: hvernig stendur á því að sumum
fyrirtækjum tekst ekki að takast á við
breytingar? Og að hve miklu marki er
það stofnendum fyrirtækjanna að
kenna?
Umræðan snýst ekki hvað síst um
að hvaða marki þessi félög eru borin
uppi af einum manni og hvort þau geta
staðið á eigin fótum þegar stofnandans
nýtur ekki lengur við. Þegar stjórn
Uber í Kaliforníu vék Travis Kalanick
frá störfum sem stjórnanda skutl-
fyrirtækisins þá blossaði upp mikil um-
ræða, bæði á samfélagsmiðlum og á
meðal fjárfesta, um hvort eitthvað sam-
bærilegt gæti gerst í Kína.
Stór spurningarmerki svífa yfir
næstum öllum þeim fyrirtækjum sem
tilheyra fyrstu kynslóð kínverskra
tæknisamsteypa, vegna þess hve mik-
ið vald stjórnendur þeirra hafa.
Sem dæmi hefur Baidu þurft að
glíma við þann vanda að margir hátt
settir stjórnendur hjá fyrirtækinu
hafa horfið til annarra starfa, og fræg-
asta tilvikið þegar Lu Qi, fram-
kvæmdastjóri félagsins, hætti eftir að-
eins 18 mánuði í starfi til að ganga til
liðs við Y Combinator.
Robin Li, stofnandi Baidu, er sá eini
af stofnendum BAT-þríeykisins sem
hefur bakgrunn í bæði bandaríska og
kínverska tæknigeiranum og það
gerði honum fært að fá til starfa kín-
verskt afburðafólk með alþjóðleg sam-
bönd. En honum hefur ekki tekist að
halda í þetta fólk og í Kína talar varla
nokkur maður lengur um BAT.
Í staðinn er athygli fólks farin að
beinast að næstu kynslóð kínverska
tæknifyrirtækja, s.s. Meituan Dianp-
ing sem færir fólki mat heim að dyr-
um, og vefversluninni Pinduoduo en
bæði eru þau farin að ná í skottið á
gömlu risunum.
Óánægja stjórnvalda
Þá stendur Tencent frammi fyrir
verulegum áskorunum. Má þar nefna
að ráðamenn í Peking eru mjög
óhressir með að fyrirtækið hafi átt
þátt í að ýta undir leikjafíkn hjá börn-
um, sem leiddi til þess að Tencent
breytti stjórnmöguleikum í forritum
sínum svo að mætti reyna að koma
böndum á óhóflega leikjanotkun
barna. Annar alvarlegur vandi snýr að
nýju tæknifyrirtæki, ByteDance, sem
nýtur vaxandi vinsælda með frétta-
forriti sínu og myndskeiðaforriti og
hefur laðað til sín notendur á kostnað
Wechat-forritsins frá Tencent. Upp-
gangur ByteDance hefur verið svo
mikill að fyrirtækið var metið á 75
milljarða dala þegar það leitaði síðast
til fjárfesta.
Nýjasta áfallið var svo handtaka
Richard Liu, stofnanda JD.com vegna
meintrar nauðgunar. Liu, sem neitar
sök, á 15% hlut í netverslunar-
fyrirtækinu en ræður yfir 80% at-
kvæða samkvæmt tölum Credit Su-
isse, og er í margra huga hálfgerður
keisari fyrirtækisins. En jafnvel áður
en hann var handtekinn var hluta-
bréfaverð JD á niðurleið, ólíkt keppi-
nautnum Alibaba. Kemur það til af
því að JD þykir ekki standa sig eins
vel í að skipuleggja vöruflutninga og
að fjármagnsfrekt viðskiptamódel
fyrirtækisins höfðar ekki eins mikið
til fjárfesta og áður.
Á sama tíma sætir skutlþjónustan
DidiChuxing harðri gagnrýni en fyrir-
tækið þykir ekki hafa brugðist rétt við
þegar ökumenn gerðust ítrekað upp-
vísir að því að ráðast á farþega sína. Í
einu tilviki nauðgaði ökumaður far-
þega og myrti, aðeins degi eftir að
hann hafði reynt að gera það sama við
annan viðskiptavin sem tókst að flýja
ofbeldismanninn og lét fyrirtækið vita.
Síðan þá hefur Didi breytt því hvernig
það ræður ökumenn til starfa.
Með augastað á Ant Financial
Þegar Jack Ma tilkynnti fyrir
nokkrum mánuðum að hann myndi
smám saman draga úr afskiptum sín-
um af daglegum rekstri Alibaba virt-
ist sumum markaðsgreinendum að
hann væri að stíga til hliðar á tíma-
punkti þegar fyrirtæki hans virtist
standa mun betur að vígi en keppi-
nautarnir. En greiðslumiðlunarfyrir-
tækið Ant Financial, sem heyrir und-
ir Alibaba, hefur goldið fyrir
áhyggjur stjórnvalda af því að ýmis
fyrirtæki sem bjóða upp á bankaþjón-
ustu séu farin að grafa undan ríkis-
reknu bönkunum. Þykir það sýna vel
hve viðkvæmt viðskiptaveldi Ma er
fyrir þrýstingi frá Peking.
Leitun er að því kínverska tækni-
fyrirtæki þar sem tókst að láta nýja
kynslóð taka við stjórnartaumunum
með farsælum hætti, og dæmin
ennþá færri þar sem fjárfestar eða
stjórnendur komu þessum breyt-
ingum í kring. Það hvernig þeim
tekst að breytast og þróast mun hafa
mikið að segja um hvort þessi félög
eiga eftir að eflast þegar fram í
sækir eða veikjast.
Hver tekur við af kínversku jöfrunum?
Eftir Henny Sender
Fyrsta kynslóð kínverskra
tæknirisa glímir við fjölda
alvarlegra vandamála og
nýir tæknisprotar gera sig
líklega til að velta þeim úr
sessi.
AFP
Jack Ma, sem byggt hefur upp stórveldið Alibaba hefur gefið það út að hann hyggist draga úr afskiptum sínum af daglegum rekstri fyrirtækisins.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt