Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Skógarhlíð 6, 105 ReykjavíkHEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Ráðuneytisstjóri í nýtt
heilbrigðisráðuneyti
Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Leitað er að reyndum leiðtoga
sem býr yfir framsýni og krafti og er tilbúinn að leiða mótun og uppbyggingu nýs heilbrigðis-
ráðuneytis í samvinnu við frábæran hóp reynslumikils starfsfólks.
Nýtt heilbrigðisráðuneyti tekur til starfa 1. janúar 2019. Verkefni þess eru viðamikil og
fjölbreytt og varða alla þætti heilbrigðiskerfisins og heilbrigðisþjónustu landsmanna,
lyfjamál auk verkefna á sviði lýðheilsu og forvarna. Hjá heilbrigðisráðuneytinu starfar
fjölbreyttur hópur vel menntaðra sérfræðinga á ýmsum sviðum með mikla þekkingu og
reynslu á málefnasviðum þess.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2019.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins,
www.starfatorg.is
Undir heilbrigðisráðuneytið heyrir fjöldi stofnana, þar á meðal Landspítalinn,
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðisstofnanir um land allt, Sjúkratryggingar
Íslands og Embætti landlæknis. Ráðuneytið gegnir veigamiklu hlutverki er varðar
undirbúning lagasetningar og annarra stjórnvaldsfyrirmæla og stefnumótandi áætlana
á málefnasviðum þess. Vegna þeirra verkefna er rík áhersla lögð á nána samvinnu við
Alþingi, önnur ráðuneyti, hagsmunaaðila og notendur þjónustunnar. Ráðuneytið fer
einnig með alþjóðlegt samstarf í samvinnu við utanríkisráðuneytið.
Skipulags- og byggingafulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar
Auglýst er eftir Skipulags- og byggingafulltrúa fyrir Seyðisfjarðarkaupstað.
Um er að ræða fullt starf. Við leitum eftir öflugum, lausnamiðuðum einstaklingi
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Laun og önnur starfskjör samkvæmt kjarasamningi.
Hægt er að sækja um rafrænt á www.seydisfjordur.is,
umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2018.
Með umsókninni skal fylgja ferilskrá.
Upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 470-2304 netfang
adalheidur@sfk.is
Seyðisfjarðarkaupstaður er spennandi staður að búa á, stórbrotin náttúrufegurð, fyrirtaks þjónusta við íbúa, gott atvinnuástand, alþjóðlegt yfirbragð
og blómlegt menningarlíf er það sem einkennir staðinn einna helst. Stutt er í Egilsstaði, þjónustukjarna Austurlands og fjölmargar náttúruperlur .
Starfssvið:
• Yfirferð sérteikninga, aðaluppdrátta, og annarra
hönnunargagna
• Umsjón með áfanga- og stöðuúttektum
• Umsjón með öryggis- og lokaúttektum
• Undirbúningur og eftirfylgni funda umhverfisnefndar
• Skráning fasteignaupplýsinga og viðhald
fasteignagjaldagrunna
• Skráningar í gagnagrunna
• Umsjón með skjalavistun er varðar skipulags- og bygging-
armál og tryggja virkni gæðakerfis byggingarfulltrúa.
• Annast almenna upplýsingagjöf varðandi byggingarmál
• Vinna við áætlunargerð og eftirfylgni áætlana
• Aðkoma að skipulagsmálum
Almenn störf á skipulags- og byggingasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Nám í arkitektur, byggingarfræði, i verk- eða tæknifræði á
byggingarsviði.
• Reynsla af byggingarmálum
• Æskilegt að búa yfir reynslu af opinberri stjórnsýslu og
skjalavörslu
• Færni og góð þekking í word og excel
• Æskilegt að búa yfir þekkingu á AutoCAD
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
Mjólkursamsalan leggur fyrir
þessi jól, líkt og undanfarin
ár, hjálparstofnunum lið. Að
þessu sinni var tveimur millj-
ónum króna í formi vöruút-
tektar úthlutað til fimm góð-
gerðarfélaga og skiptist
styrkurinn á milli Fjöl-
skylduhjálpar Íslands og
mæðrastyrksnefnda í Reykja-
vík, Kópavogi, Hafnarfirði og
á Akureyri.
Til Mæðrastyrksnefndar
Kópavogs berast að jafnaði að
jafnaði 160-170 umsóknir fyrir
jólin og á bak við hverja um-
sókn er 3-6 manna fjölskylda.
„Við gerum allt hvað við get-
um til að vísa engum frá og er-
um þakklát fyrirtækjum eins
og Mjólkursamsölunni, sem
og einstaklingum sem leggja
okkur, og þar með fjöl-
skyldum í neyð, lið með bæði
vöru- og fjárstyrkjum,“ segir í
fréttatilkynningu, haft eftir
Ragnheiði Sveinsdóttur,
gjaldkera nefndarinnar.
„Hjálparstofnanir eru
starfræktar allan ársins hring
en þörfin er hvað mest í kring-
um jólahátíðina og vill MS
með þessum styrkjum leggja
sitt af mörkum til að styðja við
bakið á þeim einstaklingum
sem leita sér aðstoðar í formi
matarúthlutunar fyrir jólin,“
segir Guðný Steinsdóttir,
markaðsstjóri Mjólkursam-
sölunnar. Hún segir MS
styðja góðgerðarmál af ýmsu
tagi árið um kring enda sé
samfélagsleg ábyrgð hluti af
stefnu fyrirtækisins. Þetta
séu til að mynda íþrótta-, heil-
brigðis-, menningar og vel-
ferðarmál og von MS sé að
styrkirnir nýtist sem best í
hverju tilfelli fyrir sig.
sbs@mbl.is
Kópavogur Konur í Mæðrastyrksnefnd hampa mjólkurvörum.
Fá úttekt í mjólk
Tvær milljónir kr. frá MS Fjöl-
skylduhjálp og mæðrastyrksnefndir
Í vikunni afhenti Jón Atli
Benediktsson, rektor Há-
skóla Íslands, fyrir hönd skól-
ans fulltrúum Rauða krossins
á Íslandi tíu tölvur sem nýt-
ast munu í margvísleg verk-
efni félagsins til stuðnings
flóttafólki. Við sama tækifæri
undirrituðu rektor og Kristín
S. Hjálmtýsdóttir, fram-
kvæmdastjóri RKÍ, sam-
komulag um að Háskólinn láti
samtökunum árlega í té tölv-
ur sem hætt er að nota í skól-
anum.
Háskólinn hefur að und-
anförnu tekið til hliðar bæði
borð- og fartölvur sem fallið
hafa til við endurnýjun. Upp-
lýsingatæknisvið skólans hef-
ur svo séð um að uppfæra
tölvurnar og laga svo þær
verði sem nýjar þannig að
þær geti nýst áfram í sam-
félaginu. Vonir standa til að
tölvurnar geti nýst því flótta-
fólki sem Rauði krossinn
vinnur með, til dæmis í ís-
lenskunámi, almennu námi og
við atvinnu- og húsnæðisleit.
„Það er afar mikilvægt að
stutt sé við nám flóttafólks og
ekki síst unga fólksins í
þeirra hópi. Mannauður sam-
félagsins verður meiri og fjöl-
breyttari með komu flótta-
fólks og annarra innflytjenda
og við þurfum að veita þeim
tækifæri til að eflast og
blómstra í nýjum heimkynn-
um. Við erum afar ánægð
með þetta samstarf við HÍ,“
segir Kristín S. Hjálmtýs-
dóttir.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Tölvufólk Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og
Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri RRÍ, ganga frá
samningum. Samstarfsfólkið stendur á bak við þau.
Tölvurnar nýtast
Stuðningur HÍ við Rauða
krossinn Stutt við flóttafólk
Á síðasta ári voru yfir 30
þúsund virk fyrirtæki á Ís-
landi með rúmlega 134 þús-
und starfsmenn og rekstr-
artekjur þeirra voru rúmir
4.000 milljarðar kr. Þetta
kemur fram í nýjum tölum
Hagstofunnar. Rúmlega 28
þúsund fyrirtæki voru með
færri en 10 starfsmenn, eða
94% af heildinni. Hjá þessum
litlu fyrirtækjum störfuðu
tæplega 38 þúsund manns,
rekstrartekjur þeirra námu
um 908 milljörðum kr. og
skiluðu þau 188 milljörðum
kr. í vergan rekstrarafgang.
Til samanburðar voru ein-
ungis 179 fyrirtæki með 100
starfsmenn eða fleiri, hjá
þeim störfuðu 51 þúsund
starfsmenn, eða 38% af heild-
arfjölda fólks á vinnumark-
aði. sbs@mbl.is
Flestir starfa hjá litlum fyrirtækjum