Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 5
Staða sérfræðings í fjármálum og rekstri
Dómsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á skrifstofu fjármála og rekstrar. Megin-
hlutverk skrifstofunnar er að sjá um undirbúning fjármálaáætlunar, fjárlaga og fjáraukalaga fyrir
þau málefnasvið sem undir ráðuneytið heyra. Í því felst m.a. að þróa fjárlagaverkferla og framkvæmd
fjárlaga þannig að greining fjárhagsupplýsinga sé fagleg og tímanlega fram sett og nýtist þannig til
stefnumótunar og ákvarðanatöku. Jafnframt að rekstrarþjónusta í innri málum ráðuneytisins þjóni
starfsfólki og yfirstjórn eins og best verður á kosið, m.a. með því að nýta viðskipta, fjárhags- og
ferðabókhaldskerfi eins vel og unnt er.
Helstu verkefni:
• Rekstrarúttektir og greiningar
• Greinargerð með fjárlögum og
fjármálaáætlun
• Eftirlit með framkvæmd fjárlaga
• Samstarf og samvinna við stofnanir
ráðuneytisins
• Stefnumótun og eftirfylgni stefna
• Árangursmælingar og skýrslugerð
• Samþætting opinberra stefna
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og
sjálfstæði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna
starfinu.
Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til 4. janúar nk. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Pétur U. Fenger, skrifstofustjóri, í síma 545 9000.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði viðskipta, hagfræði eða
sambærileg menntun
• Framhaldsmenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
• Mjög góð kunnátta í Excel
• Reynsla af stefnumótun og vinnu með fjárhagsupplýsingar
• Reynsla af upplýsingakerfi Oracle er kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Góð íslenskukunnátta og hæfni í framsetningu upplýsinga
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp
• Góð hæfni í samskiptum, árangursdrifni og skipulagshæfileikar
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Forfallakennari í dönsku
Forfallakennari í íslensku
Frístundaleiðbeinandi í Kársnesskóla
Frístundaleiðbeinandi í Salaskóla
Frístundaleiðbeinandi í Vatnsendaskóla
Stuðningsfulltrúi í Kópavogsskóla
Umsjónarkennari Salaskóla
Leikskólar
Aðstoðarleikskólastjóri í Marbakka
Aðstoðarmatráður í Furugrund
Deildarstjóri í Austurkór
Deildarstjóri í Kópahvol
Deildarstjóri í Núp
Leikskólakennari í Baug
Leikskólakennari í Álfaheiði
Leikskjólakennari í Efstahjalla
Leikskólakennari í Læk
Leikskólakennari í Kópahvol
Leikskólakennari í Læk
Leikskólakennari í Núp
Leikskólakennari í
Leikskólasérkennari í Austurkór
Leikskólasérkennari í Álfatún
Stjórnsýslusvið
Fulltrúi í bókhaldsdeild
Starfsmannastjóri
Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin
eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Bókari
Capacent — leiðir til árangurs
Lánasjóður íslenskra
námsmanna er félagslegur
jöfnunarsjóður sem hefur
það að markmiði að tryggja
námsmönnum í lánshæfu námi
jöfn tækifæri til náms án tillits
til efnahags. Hjá LÍN starfa um
30 starfsmenn. Gildi þeirra
eru fagmennska, samstarf og
framsækni.
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/12228
Menntunar- og hæfniskröfur:
Viðskiptafræðimenntun eða menntun sem viðurkenndur
bókari skilyrði.
Reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði.
Góð tölvukunnátta skilyrði.
Þekking á Navision kostur.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð samskiptahæfni, samstarfsvilji og álagsþol.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
8. janúar 2018
Starfssvið:
Ábyrgð og umsjón með uppáskrift reikninga og frágangi
þeirra til greiðslu.
Dagsuppgjör, uppgjör frá lögmönnum og umsýsla
fjárhagsbókhalds.
Vinna við frágang bókhalds fyrir endurskoðun
ársreiknings.
Afstemmingar bankareikninga og annarra reikninga.
Innskráning í innheimtukerfi sjóðsins.
Ýmis skýrslugerð.
Lánasjóður íslenskra námsmanna óskar eftir að ráða bókara til starfa í innheimtudeild. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfshlutfallið er 100%. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónulega ráðgjöf.