Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 2

Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 2
Í HÖLLINNI Kristján Jónsson kris@mbl.is Undirbúningur karlalandsliðsins í handknattleik fyrir heimsmeistara- mótið í Þýskalandi og Danmörku í janúar hófst með formlegum hætti í Laugardalshöllinni í gær. Ísland mætti þá Barein í fyrri vináttuleik þjóðanna og höfðu Íslendingar betur 36:24. Staðan að loknum fyrri hálf- leik var 15:13 fyrir Ísland en grunn- urinn að öruggum sigri var lagður í upphafi þess síðari. Þá gerðu gest- irnir mörg mistök í sókninni og okk- ar menn refsuðu með mörkum úr hraðaupphlaupum en þar höfðu hornamennirnir Óðinn Þór Rík- harðsson og Stefán Rafn Sigur- mannsson sig mikið í frammi. „Við sýndum fína spretti í dag, já- kvæða kafla, en það var rosalegur æfingaleiksfnykur af þessu. Eðlilega má segja. Engu að síður er fínt að vinna með tólf marka mun. Ég var sérstaklega ánægður með seinni bylgjuna hjá okkur og hraðaupp- hlaupin í byrjun síðari hálfleiks. Þá keyrðum við yfir andstæðingana og þeir fundu þá að þeir áttu ekki leng- ur möguleika,“ sagði fyrirliðinn Ar- on Pálmarsson í samtali við Morgun- blaðið að leiknum loknum. Hraðaupphlaupin hafa einmitt verið sterkt vopn íslenska landsliðsins í vel á annan áratug og væntanlega traustvekjandi að sjá skömmu fyrir stórmót að sá þáttur sé í lagi. „Já algerlega og því ætlum við að halda áfram. Það eru auðveldustu og þægilegustu mörkin að skora. Best er þegar við þurfum ekki að stilla upp í sókn. Við þurftum ekki að skipta á milli varnar og sóknar fyrstu sjö mínúturnar í seinni hálf- leik, minnir mig, vegna þess að við keyrðum alltaf hratt fram. Það er jákvætt en einnig má segja að leið- inlegt sé þegar leikir eru svona kaflaskiptir. Við hleyptum þeim inn í leikinn þegar leið á fyrri hálfleik. Þar var hugarfarið kannski ekki nógu gott en við getum lagað það og á ekki að vera stórmál.“ Dæmigerður vináttuleikur Eins og Aron kom inn á þá var leikurinn í gær eins og dæmigerður vináttuleikur. Baráttan er ekki eins mikil og í leikjum þar sem mikið er undir og fyrir vikið er erfiðara að taka út frammistöðu manna í vörn- inni. Bæði lið gerðu mistök í sókn- inni en gestirnir mun fleiri. Barein er á leið á HM rétt eins og Ísland og er undir stjórn Arons Kristjáns- sonar. Aron tjáði greinarhöfundi fyr- ir leikinn að lið Barein væri án eig- inlegs leikstjórnanda í leiknum og hefur það vafalaust haft slæm áhrif á sóknina. Leikstjórnandi liðsins er einn besti maður Barein en hann kom ekki til Íslands af persónu- legum ástæðum og kom það seint upp. Sá sem iðulega leysir hann af meiddist í upphitun í gær og höfðu gestirnir því engan tíma til að bregðast við. Nánast allir leikmenn fengu að spreyta sig í íslenska liðinu en eins og ávallt á þessum árstíma eru leikmenn að berjast um sæti í lokahópnum sem fer á HM. Íslenska liðið er spennandi Íslenska liðið er mjög spennandi um þessar mundir. Margir leikmenn eru í yngri kantinum og eiga fram- tíðina fyrir sér ef þeir spila vel úr sínum hæfileikum. Íslenskir hand- boltaunnendur eru vafalaust til í að sjá þá fá tækifæri á HM en Guð- mundur Guðmundsson hefur haldið áfram þeim kynslóðaskiptum sem hófust hjá Geir Sveinssyni. Einn þessara ungu manna er Gísli Þorgeir Kristjánsson og hann spilaði talsvert í gær. Ekki var annað að sjá en að hann sé fær í flestan sjó en keppnis- Hraðaupphlaupin virðast í góðu lagi  Ísland spólaði fram úr Barein í upphafi síðari hálfleiks Eitt ogannað 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Það verður spennandi að sjá hvaða íþróttamaður verður fyrir valinu sem íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna en kjörinu verður lýst í hófi í Hörpu í kvöld. Þetta er í 63. sinn sem Sam- tök íþróttafréttamanna útnefna íþróttamann ársins en nöfn þeirra tíu sem urðu í efsta sæti í kjörinu voru opinberuð rétt fyrir jólin. Eins og jafnan áður eru skiptar skoðanir um það hvaða íþrótta- maður eigið skilið að hljóta þessa eftirsóttu viðurkenningu og í sam- tölum mínum við vini og kunningja á undanförnum dögum þá hafa þeir ekki getað nefnt líklegan kandítat. Ég get upplýst hverjir urðu í þremur efstu sætunum á mínum atkvæðaseðli. Í stafrófsröð voru það knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, kraftlyftingamað- urinn Júlían J.K. Jóhannsson og knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir. Handboltakappinn Guðjón Valur Sigurðsson er í tíunda sinn á meðal tíu efstu í kjörinu og það verður að teljast frábært afrek. Guðjón Valur er einstakur íþrótta- maður og það er ekki sjá að hann sé orðinn 39 ára gamall. Ég fylgdist með leik Kiel og Rhein-Neckar Löwen í toppslag þýsku A-deildarinnar í handbolta í fyrrakvöld og sá þar Guðjón fara á kostum einu sinni sem oftar. Hann er enn að stinga af miklu yngri leikmenn í hlaupum fram völlinn og er enn í heimsklassa. Guðjón Valur er frábær fyrirmynd. Ég vil nota tækifærið og óska lesendum gleðilegs nýárs og vona að íþróttaárið 2019 verði farsælt. Strákarnir okkar í handboltalands- liðinu ríða á vaðið þegar þeir hefja keppni á HM í þessum mánuði og okkar drengjum óska ég góðs gengis. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Vináttulandsleikir karla Pólland – Japan....................... (25:25) 29:28  Eftir vítakeppni.  Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans. Egyptaland – Belgía ............................ 28:19 Lettland – Úkraína............................... 26:33 Tékkland – Rúmenía ............................ 26:27 Ísland – Barein ..................................... 36:24 Svíþjóð IFK Ystad – Kristianstad ................... 23:29  Ólafur A. Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad, Arnar Freyr Arnarsson 3. og Teitur Einarsson 2. Lugi – Sävehof......................................32:28  Ágúst Elí Björgvinsson varði 11 skot í marki Sävehof. Höör – Kristianstad ............................ 36:20  Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk fyrir Kristianstad. HANDBOLTI NBA-deildin Houston – Boston ............................. 127:113 Milwaukee – New York...................... 112:96 Sacramento – LA Lakers ................ 117:116 Utah – Philadelphia............................ 97:114 Golden State – Portland.......... (frl.) 109:110 Staðan í Austurdeild: Toronto 26/10, Milwaukee 24/10, Indiana 23/12, Philadelphia 23/13, Boston 20/14, Detroit 16/16, Charlotte 16/17, Miami 16/ 17, Brooklyn 17/19, Orlando 14/19, Wash- ington 13/22, Atlanta 9/24, Chicago 9/26, New York 9/27, Cleveland 8/27. Staðan í Vesturdeild: Denver 21/11, Golden State 23/13, Okla- homa City 21/12, LA Clippers 20/14, LA Lakers 20/15, Portland 20/15, Houston 19/ 15, Sacramento 19/16, San Antonio 19/16, Memphis 18/16, Dallas 16/17, Utah 17/19, Minnesota 16/18, New Orleans 15/20, Phoe- nix 9/26. KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Vináttulandsleikur karla: Laugardalshöll: Ísland – Barein............ S16 UM HELGINA! ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Samtök íþróttafréttamanna hafa valið íþróttamann ársins í 63. skipti og kjöri hans verður lýst í Hörpu í kvöld. Tíu íþróttamenn koma til greina en op- inberað var fyrir viku hverjir hefðu endað í tíu efstu sætum kosning- arinnar og þeir eru eftirtaldir, í staf- rófsröð: Alfreð Finnbogason (knattspyrna), Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (frjáls- íþróttir), Guðjón Valur Sigurðsson (handknattleikur), Gylfi Þór Sigurðs- son (knattspyrna), Haraldur Franklín Magnús (golf), Jóhann Berg Guð- mundsson (knattspyrna), Júlían J.K. Jóhannsson (kraftlyftingar), Martin Hermannsson (körfuknattleikur), Sara Björk Gunnarsdóttir (knatt- spyrna) og Valgarð Reinhardsson (fimleikar). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hreppti titilinn árið 2017, fyrst kylf- inga, en hún er ekki á meðal tíu efstu manna í þetta skiptið. Samtökin hafa kosið íþróttamann ársins samfleytt frá 1956. Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttamaður og silf- urverðlaunahafi í þrístökki á Ólymp- íuleikunum 1956, er enn sá sem oftast hefur verið valinn en hann fékk tit- ilinn fimm sinnum á fyrstu sex árum kjörsins. Ólafur Stefánsson handknattleiks- maður var kosinn fjórum sinnum og þeir Hreinn Halldórsson kúluvarpari, Einar Vilhjálmsson spjótkastari og Örn Arnarson sundmaður voru kosnir þrisvar hver. Þá hafa sjö íþróttamenn til viðbótar verið valdir tvisvar. Eftirtalið íþróttafólk hefur fengið þennan eftirsótta titil: Vilhjálmur Einarsson, 1956, 1957, 1958, 1960, 1961. Valbjörn Þorláksson 1959, 1965. Guðmundur Gíslason 1962, 1969. Jón Þ. Ólafsson 1963. Sigríður Sigurðardóttir 1964. Kolbeinn Pálsson 1966. Guðmundur Hermannsson 1967. Geir Hallsteinsson 1968. Erlendur Valdimarsson 1970. Hjalti Einarsson 1971. Guðjón Guðmundsson 1972. Guðni Kjartansson 1973. Ásgeir Sigurvinsson 1974, 1984. Jóhannes Eðvaldsson 1975. Hreinn Halldórsson 1976, 1977, 1979. Skúli Óskarsson 1978, 1980. Jón Páll Sigmarsson 1981. Óskar Jakobsson 1982. Einar Vilhjálmsson 1983, 1985, 1988. Eðvarð Þór Eðvarðsson 1986. Arnór Guðjohnsen 1987. Alfreð Gíslason 1989. Bjarni Friðriksson 1990. Ragnheiður Runólfsdóttir 1991. Sigurður Einarsson 1992. Sigurbjörn Bárðarson 1993. Magnús Scheving 1994. Jón Arnar Magnússon 1995, 1996. Geir Sveinsson 1997. Örn Arnarson 1998, 1999, 2001. Vala Flosadóttir 2000. Ólafur Stefánsson 2002, 2003, 2008, 2009. Eiður Smári Guðjohnsen 2004, 2005. Guðjón Valur Sigurðsson 2006. Margrét Lára Viðarsdóttir 2007. Alexander Petersson 2010. Heiðar Helguson 2011. Aron Pálmarsson 2012. Gylfi Þór Sigurðsson 2013, 2016. Jón Arnór Stefánsson 2014. Eygló Ósk Gústafsdóttir 2015. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2017. Kjörinn í 63. skipti  Kjöri íþróttamanns ársins 2018 lýst í kvöld  Tíu koma til greina  Vilhjálmur Einarsson hefur oftast verið valinn Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Fyrstur Vilhjálmur Einarsson varð fyrstur kjörinn íþróttamaður ársins og ræðir hér við Sigurð Sigurðsson, íþróttafréttamann Ríkisútvarpsins, eftir heimkomuna frá Melbourne þar sem hann fékk silfur á ÓL 1956. Laugardalshöll, vináttulandsleikur karla, föstudag 28. desember 2018. Gangur leiksins: 3:1, 9:4, 11:7, 12:9, 14:12, 15:13, 19:14, 24:14, 27:17, 31:19, 34:21, 36:24. Mörk Ísland: Óðinn Þór Ríkharðsson 8, Stefán Rafn Sigurmannsson 7, Heimir Óli Heimisson 5, Ómar Ingi Magnússon 4, Rúnar Kárason 3, Aron Pálmarsson 2, Aron Rafn Eðvarðsson 1, Ágúst Birgisson 1, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Ólafur Gústafsson 1, Haukur Þrastarson 1, Elvar Örn Jóns- son 1, Arnar Birkir Hálfdánsson 1. Ísland – Bar  Haukur Helgi Pálsson landsliðs- maður í körfuknattleik er í fimm manna úrvalsliði 14. umferðar frönsku A-deildarinnar hjá netmiðlinum Be- Basket eftir frammistöðu sína í sigur- leik Nanterre gegn Le Portel. Haukur skoraði 22 stig í leiknum.  Elvar Örn Jónsson og Perla Ruth Albertsdóttir, handknattleiksfólk úr liðum Selfyssinga, voru útnefnd íþróttafólk Árborgar fyrir árið 2018 í fyrrakvöld. Þau hafa bæði unnið sér sæti í A-landsliðum Íslands og verið í lykilhlutverkum hjá Selfyssingum.  Bjarki Baldvinsson knatt- spyrnumaður og Dagbjört Ingvars- dóttir knattspyrnukona voru kjörin íþróttamaður og íþróttakona Völsungs á Húsavík fyrir árið 2018 á samkomu sem félagið stóð fyrir í fyrrakvöld.  Knattspyrnumaðurinn Albert Haf- steinsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, ÍA. Albert var samningslaus en ákvað að vera áfram hjá ÍA, sem leikur á ný í úrvalsdeildinni á næsta ári.  Haukar gengu í gær frá samningi við Bandaríkjamanninn Russell Woods um að leika með karlaliði félagsins í körfuknattleik það sem eftir lifir leik- tíðar. Hann kemur í stað Marques Oli- ver sem fór frá Haukum fyrir skömmu. Woods lék síðast í Tékklandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.