Fylkir - 25.05.2018, Side 1
°
°
Vestmannaeyjum 25. maí 201870. árgangur 3. tölublað
Vinnum
saman fyrir
Vestmanna-
eyjar
Vissir þú...
...að Vestmannaeyjabær
er stærsti vinnustaður í
Vestmannaeyjum.
...að hjá Vestmannaeyjabæ
starfa um 380 manns að
jafnaði. Á síðasta ári voru
gefnir út launaseðlar fyrir
yfir 500 manns.
...að gerðir hafa verið 312
ráðningarsamningar við
starfsmenn í fastráðningu
og sennilega milli 700 og
800 í tímabundnar ráðn-
ingar og lausastörf frá því
að Sjálfstæðisflokkurinn tók
við stjórnun bæjarins árið
2006.
...að Vestmannaeyjabær
greiðir laun eftir 18 kjara-
samningum.
Frábær
árangur
frá 2006
Skuldir hafa lækkað
Skuldir við lánastofnanir og
leiguskuldbindingar hafa lækkað
um 4 milljarða frá 2006 og námu í
árslok 2017 um 400 milljónum.
Fé fyrir erfiða tíma
Í lok árs 2017 var handbært fé 3,4
milljarðar. Fé þetta ber góða
ávöxtun og verður til staðar þegar
verr árar í samfélaginu.
Fjárfest til framtíðar
Frá 2006 hefur verið fjárfest fyrir
4,5 milljarða í varanlegum
rekstrarfjármunum.
Komandi kosningar eru þær
tvísýnustu sem farið hafa fram í
Vestmannaeyjum í langan tíma.
Það eru tveir valkostir í boði,
áframhaldandi meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins eða samstarf þeirra
tveggja framboða sem nú bjóða
fram gegn okkur. Valið stendur á
milli reynslu og reynsluleysis.
Í ljósi reynslunnar
Meirihluti Sjálfstæðismanna kemur
til með að búa yfir yfirgripsmikilli
reynslu af stjórnun bæjarfélagsins í
sambland við þarfa endurnýjun.
Samtals hefur meirihluti Sjálf-
stæðismanna að baki 266 bæjar-
stjórnarfundi og 323 bæjarráðs-
fundi, auk eins reyndasta
bæjarstjóra á landinu. Enginn af
bæjarfulltrúum meirihluta
andstæðinga okkar á að baki svo
mikið sem einn einasta bæjar-
stjórnar- né bæjarráðsfund.
Bæjarstjóraefni þeirra er með öllu
óreynt í stjórnun.
Betra samfélag
Undir forystu Sjálfstæðisflokksins
hafa verið stigin afar stór skref í átt
til betra samfélags. Þjónusta við
íbúa hefur verið verulega aukin og
stenst hún vel samanburð við
önnur sveitarfélög og er í öllum
tilfellum ein sú besta á landinu.
Stórir áfangasigrar hafa verið unnir
sem við erum stolt af.
Uppbygging og sterkur rekstur
Seinustu kjörtímabil hafa ein-
kennst af gríðarlegri uppbyggingu.
Reist hafa verið mannvirki til að
auka þjónustu við bæjarbúa,
áhersla lögð á viðhald eigna og
þjónustuúrræði efld. Allt þetta
hefur verið gert um leið og rekstur
hefur verið bættur og skuldir
greiddar upp.
Ætlum að gera enn betur
Á næsta kjörtímabili viljum auka
gæði samfélagsins með því að
bæta enn frekar í þjónustuna, en á
sama tíma halda rekstrinum í
öruggum höndum. Við vitum að
öruggur rekstur er forsenda góðrar
þjónustu. Við höfum kynnt
vandaða stefnuskrá okkar og þar
sést bersýnilega hversu mikla trú
frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins hafa á framtíð Eyjanna.
Setjum X við D
Það er því mikilvægt fólk mæti á
kjörstað og velji það fólk sem það
treystir best til að stjórna Vest-
mannaeyjum næstu 4 árin. Við
höfum látið verkin tala og við
ætlum að gera það áfram hljótum
við umboð til. Við óskum eftir
þínum stuðningi og biðjum þig
um að setja X við D í kosningunum
þann 26. maí nk.
Hvorn meiri-
hlutann vilt þú?
Hverjum treystir þú best?
Þessi árangur er ekki sjálfgefinn,
heldur kemur hann til með góðu
skipulagi, dugnaði og umhyggju
fyrir bænum.