Framsókn - 21.04.1933, Qupperneq 2

Framsókn - 21.04.1933, Qupperneq 2
2 PRAMSÓKN Það voru ekki nema tvö skot til í Grindavík. Mennirnir, sem björguðust af »Skúla fógeta* birtu í gær þakk- • arávarp í Morgunblaðinu, til allra þeirra er ljeðu lið sitt við hina frækilegu björgun. í þessu þakkar- ávarpi er eitt, sem mun vekja bæði undrun og gremju um land alt. Þar segir nefnilega, að aðeins tvö línu- skot hafi verið til í Grindavfk, er hið hörmulega slys vi'di til. Eins og menn munu reka minni til, mistókst fyrsta skotið, en hið síð- ara hepnaðist. Samkvæmt yfirlýs ingu skipbrotsmannanna var þetta líka s ð sta skot ð. það er: Ekki fleiri til. dvernig hefði farið, hefði það líka mistekist? Að líkindum hefði þá mennirnir farist allir. Mikil hefði sorg landsmanna orðið ef svo hræðilega hefði til tekist. Ekki vill »Eramsókn« fara að ásaka þá menn, sem hjer munu eiga hlut að máli. Sökin á þessu mun sjálf svíða þá nægilega. Og vonandi verður þetta til þess, að altaf sjeu til að minsta kosti 20 skotlínur og aldrei færri á þeim stöðum, sem slík tæki eru til, sem senda línurnar. Það munu sumir taka orð skip- brotsmannanna svo, að fjáhagsvand- ræði Sltysavarnafjelagsin8 hafi vald- ið því, að ekki voru til nema tvö skot. Þetta er næsta ótrúlegt — og mun heldur ekki vera satt. En ef svo væri, þá væri það bókstaf- lega glæpsamlegt af Alþingi að veita ekki mjög ríflega styrki, til þessa þarfasta, langsamlega þarf- asta fjelagsskapar hjer á landi. Ekki nema tvö skot til! Það er hræðilegt að hugsa til þess. Bílstjórarnir og fólkið. Daglega heyriat reykvísku bíl stjórunum hallmælt fyrir það, hvað þeir aki ógætjlega og hvað þeir sjeu ónærgætnir við vegfarendur. Þegar ökuslys koma fyrir, er skuldinni venjulega skelt á bíl- stjórana. Og oftlega kvarta veg- farendur yfir þvt, að bíll hafi slett á þá for eða strokist við þá á veginum o. s. frv. Því heyrist einnig haldið fram, að með öllum menningarþjóðum sjeu bílstjórarnir taldir einhver lakasta stjett þjóðfjelagsins, eink- um að því er siðferðið snertir. Og skýringarnar a þessu fyrirbrigði hafa menn fundið í því, að hið óreglulega líf, sem bílstjórar verða oft að lifa, svefnleysið og tauga- áreynslan, sem starfinu fylgi, sljófgi þá og veiki siðferðisþrótt þeirra. Þetta síðarnefnda mun þó ekki hafa verið heimfært enn alment á íslenska bílstjóra, enda mun það ekki hægt. Starf þeirra gefur að vísu tækifæri til margvíslegra yf- irsjóna, en þegar því sleppir, mun ekki hægt að greina þá að neinu leyti frá öðrum stjettum, að því er snertir yfirtroðslur á lögum og rjetti. En fyrir hitt atriðið, skeyting- arleysið við aksturinn, er bílstjór- unura þráfaldlega ámælt. Það mun því bafa komið ýms- um kynlega fyrir, þegar útlend- ingur, sem hjer var á ferð fyrir skömmu, og víða hafði farið, Ijet þau orð falla, að íslendingar myndu eiga bestu bílstjórana í heimi. Og orsökina kvað hann myndi vera Framsókn kemur út við sjerstök tækifæri. Ábyrgðarmaður og útgefandi: Ásgeir GuSmundsson. Prentsmiðja og afgreiðsla: Laugavegi 68. Blaðið kostar 25 aura i lausasölu. þá (ef hún lægi ekki í þjóðareðl- inu), að islensku bílstjórarnir væru reglusamari en bílstjórar flestra annara þjóða, sem væru altaf meira og minna ölvaðir, og annað það, að vegirnir hjer á íslandi væru yfirleitt svo vondir, að þeir útheimtu það, að bílstjórarnir væru góðir og reyndu á hæfileika sína. Þeir, sem farið hafa i bíl yfir vötnin- í SkaftafellssjTslum, munu fallast á þessa seinni ástæðu. En hvað mikið sem byggja má á áliti þessa útlendings, þá verð- ur þvi ekki með sanngirni neitað, að bílstjórarnir okkar sæta oft ó- maklegum dómum. fslenskir bílstjórar munu yfir- leitt vera traustir og áreiðanlegir. Því verður raunar ekki mótmælt, að mörg slys stafa af ógætilegura akstri, og er það jsar ekki næg afsökun, að ökuhraðinn stafar oft- lega af undanlátssemi bílstjóranna við kröfum farþeganna um sem hraðastan akstur. Þess ber og að gæta, að fæstir bilstjórar eru sín- ir eigin húsbændur, en eiga aðra yfir höfði sjer. Mörg eru þau slys- in, sem bílaeigendurnir eiga mesta sök á, með því að vera of harðir i kröfum. Þess eru dæmi, að bil- stjórarnir hafi sofnað við stýrið. En fjöldinn allur af ökuslysum er fólkinu sjálfu að kenna, — hirðuleysi vegfarenda gagnvart farartækjunum og skeytingarleysi um að hegða sjer sæmilega á götu. I sumum nágrannalöndunum er það sagt, að þekkja megi íslend- inga á því, að þeir gargi aldrei á gangstjettunum eins og siðaðir menn, heldur þrammi þeir eftir

x

Framsókn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn
https://timarit.is/publication/1314

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.