Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.04.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 12.04.2019, Qupperneq 4
Við þurfum einnig að hafa áhrif á ferðahegðun fólks. Brynhildur Davíðs- dóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði SAMFÉLAG Á síðasta ári fluttust 6.556 fleiri til Íslands en frá landinu. Það eru nokkuð færri en metárið 2017 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 8.240. Flutningsjöfnuður hefur aldrei verið hærri en síðustu tvö ár en næst þeim koma árin 2006 og 2007 þegar um 5.200 f leiri f lutt- ust til landsins en frá því, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hag- stofunni. Árið 2018 fluttust 14.275 til lands- ins, samanborið við 14.929 á árinu 2017, en það er eina árið að frátöldu síðasta ári sem fleiri fluttu til lands- ins en frá því. Alls f luttust 7.719 manns frá Íslandi árið 2018 saman- borið við 6.689 árið 2017. Ef einungis er litið til erlendra ríkisborgara var f lutningsjöfnuður 6.621 manns. Flutningsjöfnuður meðal íslenskra ríkisborgara var aftur á móti nei- kvæður, það er, brottfluttir voru 65 fleiri en aðfluttir. Af þeim 2.803 íslensku ríkisborg- urum sem fluttu af landi brott árið 2018, fóru 1.822 til Danmerkur, Sví- þjóðar eða Noregs. Flestir fluttu til Danmerkur, eða 921, en næstflestir til Svíþjóðar, 505. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einn- ig frá þessum löndum, eða 1.868 af 2.738, flestir frá Danmörku, eða 808. Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 1.682 af 4.916. Þaðan komu líka 3.797 á síðasta ári. – bsp Fleiri fluttu til landsins en frá því 1.822 íslenskir ríkisborgarar fluttu til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs árið 2018. HEILBRIGÐISMÁL Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum halda áfram að lengjast á milli ára. Í dag þurfa 42 prósent þeirra sem bíða eftir hjúkr- unarrými að bíða í meira en 90 daga eða lengur samanborið við 26 pró- sent árið 2014. Fram kemur í nýrri greinargerð Landlæknisembættisins að löng bið eftir hjúkrunarrýmum sé veru- legt áhyggjuefni sem endurspeglast meðal annars í fjölda einstaklinga sem bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili á Landspítal- anum. Í nýlegri hlutaúttekt embættisins vegna alvarlegrar stöðu á bráða- móttöku spítalans kemur fram að í desember síðastliðnum hafi 53 ein- staklingar beðið á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými. Auk þess voru 68 einstaklingar í sérstökum bið- rýmum, eða alls 121 einstaklingur. Er það mat embættisins að dvöl aldraðra á bráðasjúkrahúsi eftir að meðferð þar lýkur skerði lífsgæði þeirra og getur leitt til frekara færni- taps auk hættu á sýkingum. Í febrúar var rúmanýting að meðaltali 103 prósent á þeim átta deildum Landspítalans sem sinna öldruðum. Alls eru 2.700 hjúkrunar- rými á landinu samkvæmt opin- berum tölum. Áætlað er að allt að 270 ný rými vanti til viðbótar við þau hjúkrunarrými sem þegar hefur verið ákveðið að byggja, auk þess þurfi að bæta eða endurbyggja allt að 400 hjúkrunarrými til að mæta kröfum um bættan aðbúnað. – ab Enn fleiri þurfa að bíða í meira en 90 daga eftir hjúkrunarrými UMHVERFISMÁL Mikið vantar upp á að rafbílavæðing og sparneytnari bifreiðar nægi til að hægt verði að mæta markmiðum Parísarsam- komulagsins á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2030. Ráðast þarf í metnað- arfullar og jafnvel ágengar aðgerðir til að ná markmiðunum og draga verulega úr akstri. Sé miðað við ýtrustu markmið samkomulagsins þyrfti að draga úr akstri á höfuð- borgarsvæðinu um rúm 50 prósent frá því sem nú er. Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sérfræðingahóps HR og HÍ um mat á losun gróður- húsalofttegunda á höfuðborgar- svæðinu árið 2030. Minnisblaðið var lagt fram á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í vikunni. Fulltrúar Pírata, Samfylk- ingar og Viðreisnar í ráðinu leggja til að það verði nýtt sem grunnur að vinnu fyrir ný og metnaðarfyllri markmið um breyttar ferðavenjur í aðalskipulagi. Sjálfstæðismenn vilja meiri kraft í rafbílavæðingu á meðan áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins varar við því að boðum og bönnum verði beitt til að fækka bílum. „Það er bara mjög gott að gera sér grein fyrir hvað það er sem við þurf- um að gera til að ná markmiðum okkar. Við þurfum að leggja þetta á heiðarlegan hátt á borðið. Þetta þarf til,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlinda- fræði, einn sérfræðinganna sem unnu minnisblaðið. Orkuskiptin ein og sér muni ekki duga til að ná markmiðum samkomulagsins. „Kjarni málsins er að núverandi plön um breytingar á skattkerfinu sem tengjast rafbílavæðingu og nú eru á borðinu, ef við skoðum vænta aukningu í rafbílum miðað við þær forsendur, duga ekki til,“ segir hún. „Við þurfum einnig að hafa áhrif á ferðahegðun fólks. Gera fólki kleift að nota almenningssamgöngur, ganga, hjóla en ekki síður velta með markvissum hætti fyrir okkur skipulaginu. Hvað getum við gert til að draga úr ferðaþörf með einka- bílnum?“ Brynhildur leggur áherslu á að ekki sé verið að segja að fólk þurfi að hætta alfarið að nota einkabílinn, heldur fremur nota hann öðruvísi. Og ef hverfin eru skipulögð þann- ig að við þurfum hann síður til að sækja þjónustu þá muni það hafa jákvæðar afleiðingar. Ísland eigi að vera í fararbroddi í þessum efnum og því fyrr sem við ráðumst í metnaðar- fullar aðgerðir, því betra. Brynhildur segir að augljóslega verði mun dýr- ara að gera mikið í einu eða of seint. Miðað við sviðsmynd sérfræð- ingahópsins fela ýtrustu markmið Parísarsamkomulagsins í sér 40 pró- sentum minni losun gróðurhúsaloft- tegunda miðað við losunargildi eins og þau voru árið 1990. Slíkt myndi hafa í för með sér sem fyrr segir að draga þyrfti úr akstri um 52 prósent. Ef miðað er við sviðsmynd sem hópurinn telur líklegri felur hún í sér 29 prósentum minni losun miðað við gildi ársins 2005 og 14 prósentum minni akstur. Í minnis- blaðinu segir: „Hér er um að ræða umtalsverðan samdrátt í akstri og ljóst að finna þarf leiðir til að ná fram samdrætti í akstri á sama tíma og gert er ráð fyrir aukningu í fólksfjölda höfuð- borgarsvæðisins. Mögulega má setja fram ágengari aðgerðir til að ná fram dýpri rafbílavæðingu en einnig má telja nauðsynlegt að efla verulega aðra samgöngumáta.“ mikael@frettabladid.is Orkuskiptin duga ekki til og draga þarf verulega úr akstri Mun meira þarf til en orkuskipti á þeim hraða sem vænta má að þau gerist á næstu árum til að við náum markmið- um Parísarsamkomulagsins um losun gróðurhúsalofttegunda á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Til að ná markmiðum Parísarsamkomu- lagsins þarf meira til en orkuskipti og rafbíla- væðingu. Draga þarf umtalsvert úr akstri og þörf er á metnaðar- fullum aðgerðum til að gera fólki það kleift, segja sérfræðingar. F Y R I R S A N N A S Æ L K E R A Tæplega þrjú þúsund fluttu af landi brott árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 121 einstaklingur beið á Land- spítalanum eftir hjúkrunar- rými í desember. LÖGREGLUMÁL Héraðssaksóknari hefur til rannsóknar andlát konu sem lést á Landspítalanum síðast- liðinn þriðjudagsmorgun. Lögregla hafði haft afskipti af henni í útkalli vegna meintrar fíkniefnaneyslu í teiti. Konan var í kjölfarið f lutt á spítalann þar sem hún lést eins og áður segir. „Eins og alltaf þegar svona alvar- legur atburður verður þá vísum við því til annars aðila,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Sigríður segir að rannsókn sé á frumstigi og enn eigi eftir að taka vitnaskýrslu af viðstöddum. Sam- kvæmt því séu allir viðstaddir, lögreglumenn og aðrir, með réttar- stöðu vitnis eins og ávallt sé þegar rannsókn fer fram. „Hugur okkar er hjá fjölskyldu þessarar stúlku,“ segir Sigríður. Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari segist lítið geta sagt um málið á þessu stigi. Hann segir að áhersla verði lögð á að upplýsa með sem nákvæmustum hætti hvað gerðist á þriðjudagskvöldið. „Aðaláherslan er á að ná utan um málið og til allra sem geta gefið upplýsingar um það hvað gerðist þarna.“ Í tilkynningu frá lögreglunni segir að embætti héraðssaksóknara sjái ávallt um að rannsaka „atvik þegar maður lætur lífið í tengslum við störf lögreglu óháð því hvort grunur er til staðar um refsivert brot eða ekki“. - la Andlát ungrar konu rannsakað Rannsókn héraðssaksóknara er á frumstigi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C D -A F 5 C 2 2 C D -A E 2 0 2 2 C D -A C E 4 2 2 C D -A B A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.