Fréttablaðið - 12.04.2019, Síða 8
Apríl 2010
n WikiLeaks birtir myndband þar
sem áhöfn bandarískrar her-
þyrlu sést drepa átján manns í
Írak, þar á meðal
tvo blaðamenn
Reuters.
Júlí 2010
n WikiLeaks birtir
75.000 skjöl um
stríðið í Afganistan.
31. ágúst 2010
n Sænska lög-
reglan yfirheyrir
Julian Assange,
stofnanda Wiki-
Leaks, þegar
hann er í heimsókn í Svíþjóð.
Assange hafnar ásökunum um
nauðgun.
Október 2010
n WikiLeaks birtir fjölda skjala um
stríðið í Írak. Skjölin innihalda
meðal annars upplýsingar um
pyntingar á írökskum föngum.
18. nóvember 2010
n Alþjóðleg handtökuskipun
er gefin út á hendur Assange
svo hægt sé að yfirheyra hann
vegna nauðgunarásakana.
7. desember 2010
n Assange gefur sig fram við
lögreglu og er handtekinn en
sleppt níu dögum seinna gegn
tryggingu.
2. nóvember 2011
n Áfrýjunardómstóll úrskurðar
að framselja skuli Assange til
Svíþjóðar.
19. júní 2012
n Assange gengur inn í sendiráð
Ekvadors í Lundúnum og sækir
um pólitískt hæli. Breska lög-
reglan segir hann brjóta gegn
skilmálum þess að vera laus
gegn tryggingu og lýsir eftir
honum.
16. ágúst 2012
n Umsókn Assange um hæli er
samþykkt.
13. júní 2013
n Assange segir við blaðamenn af
svölum sendiráðsins að hann
muni ekki yfirgefa bygginguna
jafnvel þótt nauðgunarásakanir
verði dregnar til baka af ótta við
framsal til Bandaríkjanna.
19. janúar 2017
n Eftir að Barack
Obama, þá
fráfarandi
Bandaríkja-
forseti, hafði
náðað upp-
ljóstrarann Chelsea Manning og
eftir að WikiLeaks hafði lekið
fjölda skjala frá Demókrötum
og framboði Hillary Clinton til
forseta og þannig aðstoðað
Donald Trump við að ná kjöri
segist Assange reiðubúinn að
fara til Bandaríkjanna, verði
réttindi hans þar virt.
2. apríl 2017
n Lenin Moreno er kjörinn forseti
Ekvadors.
21. apríl 2017
n Jeff Sessions, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, segir að
handtaka Assange sé forgangs-
mál.
19. maí 2017
n Yfirvöld í Svíþjóð hætta rann-
sókn á máli Assange.
Desember 2017
n Bandaríkin gefa út handtöku-
skipun á hendur Assange vegna
meints samráðs við Chelsea
Manning, samkvæmt lögmanni
Assange.
9. janúar 2018
n Ekvador segist vilja fá sátta-
semjara til þess að
hjálpa til við að
leysa úr deilunni
um stöðu Ass-
ange.
11. janúar 2018
n Ekvador stað-
festir að Ass-
ange hafi fengið
ríkisborgararétt
en Bretar
hafna að
hann fái
friðhelgi.
13. febrúar
2018
n Breskur dóm-
stóll fram-
lengir hand-
tökuskipun á
hendur Assange fyrir fyrrnefnt
brot á skilmálum þess að vera
leystur úr haldi gegn tryggingu.
28. mars 2018
n Ekvadorska sendiráðið slekkur
á nettengingu Assange vegna
meintra afskipta af innanríkis-
málum annarra ríkja.
19. október 2018
n Assange sakar Ekvador um að
brjóta á grundvallarmannrétt-
indum sínum.
16. nóvember 2018
n Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið nefnir
Assange á nafn
fyrir slysni í
dómskjali. Nafn-
birtingin þykir
gefa til kynna að
hann hafi verið
ákærður í laumi.
23. janúar 2019
n Lögmenn Ass-
ange segjast ætla
að krefja Banda-
ríkjastjórn um að
birta „leynilegu“
ákæruna.
2. apríl 2019
n Moreno forseti segir
að Assange hafi endur-
tekið brotið gegn skilmálum
þess að hann fái að hafa hæli
í sendiráðinu. Assange hafi til
að mynda lekið persónulegum
upplýsingum um forsetann.
11. apríl 2019
n Assange er leiddur út úr ekva-
dorska sendiráðinu í járnum.
✿ Atburðarásin
BRETLAND Julian Assange, stofnandi
WikiLeaks, var leiddur út úr ekva-
dorska sendiráðinu í Lundúnum,
höfuðborg Bretlands, í járnum í gær.
Þar hefur hann dvalið og verið með
pólitískt hæli frá árinu 2012. Upp-
haflega til þess að forðast framsal til
Svíþjóðar vegna kynferðisbrotamála
sem síðar voru látin niður falla.
Lenín Moreno, forseti Ekvadors,
sagði í ávarpi að ákvörðun hefði
verið tekin um að svipta hann hæli
sínu eftir ítrekuð brot. Framtíð Ass-
ange er óráðin en Bandaríkjamenn
hafa farið fram á framsal hans. Þeir
saka Assange um samráð við Chel-
sea Manning sem hlóð niður öllum
upplýsingum úr fjórum leynilegum,
bandarískum gagnagrunnum.
Forveri Moreno, Rafael Correa,
brást illa við ákvörðuninni. Sagði
að Moreno væri „mesti landráða-
maður í sögu Ekvadors og Suður-
Ameríku“, og spilltur. Ákvörðunin
væri ógleymanlegur glæpur.
Það að Ekvador hafi svipt Assange
hæli í gær setur hættulegt fordæmi.
Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður og samstarfs-
maður Assange, í samtali við Frétta-
blaðið. „Mér finnst grafalvarlegt
að það sé hægt að svipta einhvern
hælisrétti og mér finnst mjög alvar-
legt að þetta sé út af kröfu Banda-
ríkjanna um framsal á honum, eins
og hefur komið fram,“ segir Birgitta
og bætir við: „Þetta getur haft mjög
alvarlegar afleiðingar fyrir annað
fólk. Þetta er fráleitt. Ég trúi ekki því
sem ég var að sjá.“
Þrátt fyrir að Birgitta hafi ekki
stutt mörg verkefni Assange undan-
farið hyggst hún, í samstarfi við
blaðamenn í Bretlandi og fyrr-
verandi starfsmenn samtakanna
Courage Foundation, sem hafa
barist fyrir frelsi Assange, berjast af
hörku gegn framsali hans til Banda-
ríkjanna. Samkvæmt Birgittu mun
Naomi Colvin, fyrrverandi leiðtogi
samtakanna sem áður aðstoðaði
lekamanninn Lauri Love við að
komast hjá framsali, taka verkefnið
að sér. „Það eina sem hægt er að gera
er að taka þetta mál fyrir dómstóla.“
Þá nefnir Birgitta einnig að banda-
ríska alríkislögreglan (FBI) hafi sett
sig í samband við fólk sem tengdist
WikiLeaks minna en hún gerði.
„Ég veit ekki hvort það er vegna
þess að þeir hafa ekkert á mig, enda
gerði ég aldrei neitt ólöglegt, en nafn
mitt er náttúrulega á Collateral Mur-
der [leka um bandaríska þyrluárás
sem felldi tólf almenna borgara]
og ég var aðili að WikiLeaks þegar
þessir stóru lekar voru að koma.“
Hún segist ekki vita hver staða
Svipting hælis Assange
hættulegt fordæmi
Stofnandi WikiLeaks handtekinn í ekvadorska sendiráðinu. Bandaríkin fara
fram á framsal og vilja rétta yfir honum vegna samráðs við Chelsea Mann-
ing. Birgitta Jónsdóttir segir það setja afar slæmt fordæmi að svipta Assange
hæli í ekvadorska sendiráðinu og ætlar að berjast gegn framsalinu. Lögmaður
sænskrar konu sem sakar Assange um nauðgun vill hann framseldan.
Þetta getur haft
mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir annað fólk.
Þetta er fráleitt. Ég trúi ekki
því sem ég var að sjá.
Birgitta Jónsdótt-
ir, fyrrverandi
þingmaður
sín sé þar ytra en bætir því við að
hennar mál sé smávægilegt „miðað
við það sem Chelsea og Assange
standa frammi fyrir“.
Þá segist hún einnig hafa áhyggjur
af hvað bíði Assange, verði hann
framseldur til Bandaríkjanna.
Nefnir meðferð Chelsea Manning í
því samhengi og að dauðarefsing sé
enn við lýði í Bandaríkjunum.
Í yfirlýsingu lögmanna Manning
í gær segir að nýframkomin ákæru-
skjöl í máli Assange sýni svart á
hvítu að engin þörf hafi verið fyrir
það varðhald sem Manning sætti
á dögunum. Stjórnvöld hafi þegar
haft þær upplýsingar sem sóst var
eftir frá henni.
Samkvæmt BBC á Assange yfir
höfði sér fimm ára fangelsi í Banda-
ríkjunum ef hann verður fram-
seldur þangað og síðan sakfelldur
fyrir „samsæri um tölvuinnbrot“
sem hann á að hafa framið árið 2010
í samskiptum sínum við Manning.
En Assange á einnig yfir höfði sér
fangelsi á Bretlandi fyrir að brjóta
gegn skilmálum þess er hann var
leystur úr haldi gegn tryggingu áður
en hann sótti um hæli. Dómstóll á
neðra dómstigi sakfelldi hann fyrir
brotið í gær og gæti hann átt yfir
höfði sér allt að tólf mánaða fangelsi.
Reuters greindi frá því að farið
hefði verið fram á að kynferðisbrota-
málið í Svíþjóð gegn Assange, sem
áður var fellt niður, yrði opnað á ný.
Lögmaður konu sem sakar Assange
um nauðgun, hyggst berjast fyrir
framsali hans til Svíþjóðar.
Skrifstofa mannréttindastjóra
Sameinuðu þjóðanna greindi frá því
árið 2016 að sérfræðingar SÞ væru á
þeirri skoðun að eiginleg fangelsun
Assange í ekvadorska sendiráðinu
væri háð geðþótta, ekki lögum.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri
WikiLeaks, ávarpaði blaðamenn í
Lundúnum í gær. „Þetta er svartur
dagur fyrir blaðamennsku. Við
viljum ekki sjá þetta halda áfram.
Þessu þarf að linna,“ sagði Kristinn.
thorgnyr@frettabladid.is
Julian Assange var leiddur út úr sendiráði Ekvadors í Lundúnum í gær og í kjölfarið handtekinn. NORDICPHOTOS/AFP
1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
D
-B
E
2
C
2
2
C
D
-B
C
F
0
2
2
C
D
-B
B
B
4
2
2
C
D
-B
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K