Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 16
Fram - ÍBV 34-29 Fram: Karen Knútsdóttir 10, Steinunn Björnsdóttir 5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Ragnheiður Júlíusdóttir 4, Unnur Ómars- dóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 4. ÍBV: Arna Sif Pálsdóttir 9, Greta Kaval- iuskaite 6, Ásta Björt Júlíusdóttir 5, Sunna Jónsdóttir 5, Ester Óskarsdóttir 3. Fram vinnur 3-0 sigur og er þar af leiðandi komið í úrslit. Þriðji leikur Vals og Hauka stóð yfir þegar blaðið fór í prentun. Nýjast Valur - KR 85-87 Valur: Heather Butler 25, Helena Sverris- dóttir 17, Simona Podesvova 11, Guðbjörg Sverrisdóttir 10, Bergþóra H. Tómasdóttir 6. KR: Vilma Kesanen 23, Ástrós L. Ægisdóttir 21, Orla O’Reilly 18, K. Johnson 14, Unnur T. Jónsdóttir 7, Þorbjörg A. Friðriksdóttir 4. Staðan í einvígi liðanna er 2-1 fyrir Val en bera þarf sigur úr býtum í þremur leikjum til þess að komast í úrslit. Liðin mætast í fjórða leiknum í Vesturbænum á mánudaginn. Domino’s-deild kvenna Undanúrslit Olís-deild kvenna Undanúrslit Fram getur varið Íslandsmeistaratitilinn Karen Knútsdóttir og liðsfélagar hennar hjá Fram tryggðu sér farseðilinn í úrslitaviðureign Íslandsmótsins í handbolta með afar sannfærandi sigri í þriðja leiknum í viðureign liðsins gegn ÍBV í undanúrslitum í úrslitakeppninni í gær. Fram getur því varið titil sinn á mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Martin Hermanns- son verður í eldlínunni með þýska liðinu Alba Berlin þegar liðið fær spænska liðið Valencia í heimsókn í öðrum leik liðanna í úrslitaein- víginu um Evrópubikarinn í körfu- bolta karla. Alba Berlin laut í lægra haldi í fyrsta leiknum en þarf að hafa betur í tveimur leikjum til þess að tryggja sér titilinn og því er ljóst að leik- menn Alba Berlin eru með bakið upp að vegg í þessum leik. Martin var næst stigahæsti leikmaður þýska liðsins í fyrsta leiknum en hann skoraði 16 stig í leiknum. Fari Alba Berlin með sigur af hólmi í leiknum mæt- ast liðin í hreinum úrslitaleik í Val- encia á mánudags- kvöldið. Liðið sem fer með sig u r a f hólmi í Ev r- ópubikarnum t r y g g i r s é r þátttökurétt í Evrópudeild- inni á næst a keppnistímabili. – hó Allt undir hjá Martin í kvöld FÓTBOLTI Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Rosengård eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir fyrsta leikinn í Damallsvenskan um helgina gegn gömlu liðsfélögum Glódísar í Eskilstuna. Síðasta tíma- bil endaði með vonbrigðum hjá Rosengård sem var með örlögin í eigin höndum fyrir lokaumferðina en tap gegn Göteborg gerði Piteå og Göteborg kleift að skjótast upp fyrir Rosen gård. Piteå varð meistari og Göteborg tók hitt sætið sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evr- ópu þar sem Rosengård hefur verið fastagestur undanfarin ár. Aðspurð hvort leikmennirnir væru búnir að skola óbragðið úr munninum eftir lokaumferðina í fyrra var Glódís á því að þetta væri ekki að trufla liðið. „Ég myndi segja að við værum búnar að komast yfir þetta og vorum frekar f ljótar að því. Auð- vitað var þetta fast í hausnum á manni fyrstu dagana eftir leikinn, þetta var ótrúlega súr tilfinning að horfa svona á eftir titlinum en við vissum að þetta gæti gerst. Jafntefli í lokaumferðinni hefði þýtt að við kæmumst í Meistaradeildina en sigur tryggt okkur titilinn og það kom aldrei neitt annað til greina en að eltast við sigurinn,“ segir Glódís þegar hún rifjaði leikinn upp. „Auðvitað vorum við svekktar í leikslok en eftir á er ég ánægð með að við gáfum þessu tækifæri. Við lentum tveimur mörkum undir snemma leiks, jöfnuðum metin og reyndum eftir bestu getu að skora sigurmarkið. Ég var beðin um að fara upp á topp og sækja ásamt því að spila sem miðvörður. Við sóttum stíft en boltinn vildi bara ekki inn. Það hefði verið sama tilfinning ef við hefðum náð jafntef li því við hefðum samt misst af titlinum. Það var mjög svekkjandi.“ Glódís segir að leikmannahópur- inn sé betur stilltur í upphafi tíma- bilsins í ár en á sama tíma á síðasta keppnistímabili. „Við erum spenntar að byrja þetta á ný, þetta er að stórum hluta sami hópur og í fyrra sem þjálfar- inn er búinn að kynnast vel og við höfum ekki áhyggjur af því að lenda í því sama í ár. Við lentum í mótlæti í fyrra eftir að hafa unnið alla leiki á undirbúningstímabilinu og í byrjun þess og við vorum ekki rétt stilltar þegar fyrsta tap vetrarins kom. Maður lærir ýmislegt af því að tapa leikjum. Við áttum erfitt uppdráttar í nokkrar vikur um mitt tímabil en náðum okkur aftur á strik.“ „Ég framlengdi hérna í sumar, ég get ekki farið frá Svíþjóð án þess að vinna meistaratitilinn,“ segir hún hlæjandi og heldur áfram: „ Sa mningav iðræðu r hóf u st strax eftir tímabilið og mér líður vel hérna. Ég sá enga ástæðu til að skoða aðra möguleika. Ég er komin í meira ábyrgðarhlutverk hjá liðinu sem ég er spennt fyrir. Það er mikið hungur hjá bæði mér og liðsfélög- unum að vinna titilinn í ár.“ Hin 23 ára gamla Glódís hefur verið lykilleikmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og er komin með 75 leiki. Hún kann nýja þjálfarateyminu vel söguna. „Þetta hefur gengið vel hingað til, það eru auðvitað viðbrigði að fá inn nýjan þjálfara eftir að hafa leikið undir stjórn Freys stærstan hluta landsliðsferilsins. Það var sterkt að ná sigri gegn Suður-Kóreu þrátt fyrir að það væru lykilleik- menn fjarverandi og spilamennsk- an gegn Kanada var góð. Ég horfi björtum augum á framtíðina og er orðin spennt fyrir undankeppninni í haust.“ kristinnpall@frettabladid.is Búin að komast yfir vonbrigðin Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Rosengård hefja leik á ný í sænsku deildinni um helgina eftir að hafa horft á eftir meistaratitlinum til Piteå í lokaumferðinni í fyrra. Stefnt er á meistaratitilinn í ár. Hin 23 ára gamla Glódís hefur þegar leikið 75 leiki og mun gera atlögu að leikjameti kvennalandsliðsins með þessu áframhaldi. NORDICPHOTOS/GETTY Þrátt fyrir ungan aldur er hin 23 ára gamla Glódís Perla í þrettánda sæti yfir flesta landsleiki fyrir kvennalandsliðið. FIMLEIKAR Emilía Björt Sigurjóns- dóttir, Vigdís Pálmadóttir, Agnes Suto-Tuuha og Thelma Aðalsteins- dóttir kepptu í gær á Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Szczecin í Póllandi þessa dagana. Keppni í undanúrslitum kvenna- flokki fór fram í gær. Emilía Björt og Vigdís voru báðar að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti í fullorðinsf lokki. Agnes sem er núverandi Íslandsmeistari í fjöl- þraut er hins vegar reynslumeiri. Thelma var að keppa í annað sinn á Evrópumóti í fullorðinsf lokki en gat því miður einungis keppt á tvíslá vegna meiðsla sem hún varð Íslendingarnir hafa lokið leik fyrir á æfingu fyrr í vikunni. Íslensku keppendurnir í karla- og kvennaflokki komust ekki í úrslit og hafa því lokið keppni á mótinu að þessu sinni. – hó 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C D -B 9 3 C 2 2 C D -B 8 0 0 2 2 C D -B 6 C 4 2 2 C D -B 5 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.