Fréttablaðið - 12.04.2019, Page 18

Fréttablaðið - 12.04.2019, Page 18
Enski boltinn er eitthvað sem við tökum ekki af neinni léttúð. Það eru margir, og ég tala af eigin reynslu, sem halda frekar með liði í Englandi en á Íslandi,“ sagði Orri Hauksson, forstjóri Símans, þegar fyrirtækið kynnti til leiks enska boltann. Orri stóð stoltur í pontu þegar hann kynnti enska boltann til leiks og greinilegt að enski boltinn skiptir fyrirtækið miklu máli. Eins og kunnugt er verða næstu þrjú tímabil hið minnsta á stöðinni og fer boltinn úr höndum keppinautarins Vodafone. Margir fagna því að Síminn sé kominn með ensku deildina. Það er ekkert lengur hitað upp fyrir stórleiki og umferðirnar koma og fara án ástar og umhyggju. Þessu ætlar Síminn að breyta. Hálftíma fyrir leiki hefst umfjöllun og Síminn verður í nán- ara samstarfi en áður hefur þekkst við ensku deildina. Þá verða 30 leikir í opinni dagskrá á laugar- dögum klukkan 15. Sérfræðingar eru ekki af verri endanum en það eru þau Eiður Smári Guðjohnsen, Bjarni Þór Viðarsson, Margrét Lára Viðarsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir. Tómas Þór Þórðarson var kynntur til leiks sem ritstjóri enska boltans. Þeir sem hafa fylgst með Tómasi vita að hann er gangandi alfræðibók um allar íþróttir og þó margir hafi reynt hefur hann ekki enn verið mátaður í fróðleik. Eðli- lega stendur enski boltinn honum nærri og er hann meira en lítið tilbúinn fyrir komandi verkefni. Stefnan er að hann klári þættina Seinni Bylgjuna um íslenskan hand- bolta og mæti svo til Símans. „Tilfinningin er góð enda er þetta gríðarlega spenn- andi verkefni. Enski boltinn er auðvitað þjóðaríþrótt Íslendinga,“ segir Tómas. Hann bendir á að það sé mikil ábyrgð að gera þetta vel. „Ég hef hingað til reynt að gera hlutina sem ég tek að mér vel og legg mikið á mig til að svo sé. Ég get lofað að hjartað og sálin fer í þetta.“ Tómas Þór Þórðarson er nýr ritstjóri enska boltans frá og með næsta tímabili. Hann segir tækifærin mörg í komandi starfi og hlakkar til að vera á völlunum erlendis en töluvert verður gert af því að lýsa beint þaðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is Mohamed Salah hjá Liverpool verður með Tómasi Þór og félögum frá og með 10. ágúst. NORDICPHOTOS/GETTY Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, 239 leikir verða í beinni útsendingu. 32 f leiri leikir í beinni en eru sýndir á yfirstandandi tímabili. 30 leikir í opinni dagskrá, laugardagsleikurinn kl. 15. 80 leikir verða sýndir í beinni útsendingu í 4K sem er í fyrsta skipti á Íslandi. 30 mínútum fyrir leik hefst umfjöllun og verður Síminn í nánara sam- starfi en áður við ensku úrvalsdeildina varðandi aðgengi að leikvöllum, liðum og leikmönnum. Samningurinn er til þriggja ára og það er ljóst að miðað við hvernig menn tala hér innanhúss og ástæðan fyrir því að ég sannfærð- ist um að koma hingað er að þetta er ekki eitthvað gæluverkefni. Tómas Þór Þórðarson Það hefur verið lítið um umhyggju og ást á enska boltanum í sjónvarpi landsmanna hjá Stöð 2 sport þrátt fyrir hátt skemmtana- gildi deildarinnar. Fyrir leiki birtast yfirleitt gömul myndbönd af listamönnum að halda bolta á lofti og síðan er farið út á völl fimm mínútum fyrir leik undir tali lýsandans. Síminn ætlar að hafa meiri dagskrárgerð í kringum leikina. „Samningurinn er til þriggja ára og það er ljóst að miðað við hvernig menn tala hér innanhúss, og það er ástæðan fyrir því að ég sannfærðist um að koma hingað, að þetta er ekki eitthvert gæluverk- efni. Hér mun enski boltinn eiga heima næstu árin og hér er ekki verið að tjalda til einnar nætur. Við byrjum á þremur árum og leggjum allt okkar í að hrista upp í hlutunum og breyta þessu. Stækka vöruna,“ segir Tómas sem sér mörg tækifæri á komandi tímabili. „Ég held að það séu mörg tækifæri þarna. Þetta er allt öðruvísi, sem ég held að verði mjög spennandi fyrir okkur að vinna með og þar með neytendur og áhorfendur að njóta. Þetta er smá klisja en tækifærin eru nánast óendanleg. Mesta spennan er þessi viðvera á völlunum og við ætlum að reyna að fara eins oft út og við getum og standa á Old Trafford eða Anfield eða á Goodison Park. Reyna að búa til eitthvað þannig að áhorf- endur hlakki til leiksins þó hann sé eftir þrjár vikur. Við verðum á völlunum í meiri snertingu en áður hefur þekkst við þjóðaríþróttina, enska boltann.“ Bjarni Þór Viðarsson er í sér- fræðingateyminu og mun lýsa leikjum á komandi tímabili. Bjarni hefur þurft að setja skóna upp í hillu að læknisráði vegna meiðsla á öxl. Bjarni er uppalinn FH-ingur en fór ungur til Everton. Hann fór í lán til Bournemouth og þekkir enska boltann mjög vel. Hann var fyrirliði U-21 árs liðsins sem fór í fyrsta sinn á stórmót í Danmörku og kom í FH árið 2015. „Mér líst vel á þetta og er mjög spenntur. Ég verð aðallega að lýsa og þetta verður nýtt fyrir mér og kannski svolítið út fyrir þæginda- rammann en ég hlakka til. Núna er fótboltinn búinn hjá mér, ég þarf að hætta vegna meiðsla, en þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar og þetta eru mjög spennandi dyr að ganga í gegnum,“ segir Bjarni. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C D -C C F C 2 2 C D -C B C 0 2 2 C D -C A 8 4 2 2 C D -C 9 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.