Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 20

Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 20
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Hvernig er draumahelgi Einars einstaka?Það er að taka gigg á föstudagskvöldi, rétt eftir hádegi á laugardegi og svo aftur síðdegis. Það gefur færi á kvikmyndakúri um kvöldið. Ertu morgunhani eða nætur- hrafn? Ég er eiginlega hvort tveggja. Ég á ekki í vandræðum með að vakna snemma ef ég hef eitthvað mikil- vægt fyrir stafni þó svo mér finnist afar gott að sofa út. Ég fer svo í gang þegar kemur að vinnu, hvort sem það er að svara tölvupóstum eða útbúa ný töfrabrögð, eftir klukkan níu á kvöldin. Ég er þó kominn yfir þann aldur að geta vakað alla nóttina. Hvað langar þig í á kósíkvöldi? Ef einhver vill koma mér á óvart með kósíkvöldi er uppskriftin ekki f lókin. Alvöru sveittur sjoppu- borgari og ískalt sódavatn í forrétt, í aðalrétt væri það svart Doritos og heimagerðar kókoskúlur beint úr skálinni; það þarf ekki að eyða óþarfa vinnu í að búa kúlurnar til, og í eftirrétt vil ég bragðaref, með gamla ísnum. Alltaf gamla ísnum! Toblerone, jarðarber og Brak, og ef þessi góðhjartaði tímir f leiri aurum í mig má bæta við blá- berjum! Hvaða bíómynd geturðu horft á aftur og aftur? Það eru tvær kvikmyndir í uppá- haldi og verða það áfram. Coming to America með Eddie Murphy frá 1988 og ég bíð spenntur eftir árinu 2020 þegar Coming to America 2 kemur út. Hin myndin er The Proposal með Söndru Bullock og Ryan Reynolds saman í mynd; hvað gæti klikkað? Annars eru Mel Gibson og Tom Hanks í miklu uppáhaldi líka. Hvaða töfrabragð færðu enn ómögulega skilið? Það eru nú ýmis töfrabrögð sem ég fæ engan veginn skilið en ekkert sérstakt er í meira uppá- haldi en annað. Það sem mér finnst skemmtilegast er að sjá fallega framkvæmd og meðhöndlun á töfrabragði, hvort sem ég skil hvernig það er gert eða ekki. Áttu þér frægan tvífara? Ég er ekki viss. Við pabbi erum reyndar mjög líkir en ef ég þyrfti að Kveikti í hári gamallar vinkonu Einar Aron Fjalarsson er einstakur. Hann byrjaði að sýna töfrabrögð níu ára, á sér tvífara í Tralla trúð og stundar nú nám í félagsráðgjöf við HÍ. Hann ætlar að munda töfrasprotann í fyrramálið. Einar einstaki er einn af yngstu töframönnum lýðveldisins og hefur heillað landsmenn með töfrabrögðum síðan hann var aðeins níu ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR velja einn myndi ég klárlega velja Tralla trúð. Hvað óttastu mest? Ég óttast að þurfa að horfa aftur á 2001: A Space Odyssey. Það er ekki fyrir alla. Hvernig er dæmigert laugardags- kvöld í þínu lífi? Laugardagskvöldin eru mjög fjöl- breytt. Stundum ríf ég í gítarinn, eða horfi á nokkra sjónvarpsþætti, eða ég fer snemma að sofa og stundum kemur fyrir að ég næ öllu þessu þrennu sama kvöldið. Hefurðu lent í neyðarlegu atviki sem töframaður? Ég byrjaði að töfra þegar ég var níu ára og hafði sýnt yfir hundrað töfrasýningar fyrir fermingu. Svo hélt snjóboltinn áfram að stækka svo auðvitað hefur ýmislegt komið upp á. Eitt sinn skemmti ég á úti- hátíð en í miðju síðasta atriði f laug þyrla yfir svæðið og stoppaði yfir sviðinu. Frá henni kom svo mikill hávaði að ómögulegt var að halda áfram. Stuttu síðar fór hún, ég byrjaði upp á nýtt og var kominn á sama stað í töfrabragðinu þegar þyrlan birtist aftur. Þá fór hún að dreifa sælgæti. Þegar hún loksins fór var stemningin orðin frekar neyðarleg. Ég kveikti líka í hári gamallar vinkonu þegar ég æfði nýtt töfrabragð, ræsti reykskynjara í barnaafmæli og grætti nokkur börn þegar ég sagði þeim að aðeins afmælisbarnið fengi gefins töfra- sprota. Það var svo í einu partíi að sá sem aðstoðaði mig leið út af vegna drykkju. Heilt yfir hefur ferillinn þó verið mjög farsæll og ég á nánast bara góðar minningar og reynslusögur. Hver er kærasta æskuminningin sem tengist helgarfríi? Ég ólst upp á Húsavík en þar vann mamma vaktavinnu annan hvern laugardagsmorgun. Við pabbi fórum þá alltaf saman í bakaríið en sú minning er mér bæði mjög kær en hún er einnig ein minna fyrstu minninga. Mamma átti það líka til að föndra með mér, mála spýtur, klippa pappír og líma saman. Hver er þinn helsti kostur og helsti löstur? Minn helsti kostur er eflaust hversu skapgóður ég er. Það er kannski minn helsti ókostur líka en ég á stundum erfitt með að segja hvað mér finnst því ég vil ekki vera með leiðindi. Það er þó verk í vinnslu. Hvað er það sem fólk veit ekki um þig en kæmi verulega á óvart? Ég held það sé nú ekki margt. Ég hef bara reynt að nýta þá hæfileika sem Guð hefur gefið mér til hins ítrasta. Hvað er næst á dagskrá? Næst á dagskrá eru nokkrar töfrasýningar, fyrst í Bókasafni Kópavogs, Lindasafni, í fyrramálið, svo fermingarveislur, barnaafmæli, vinnustaðaskemmtanir og útihá- tíðir í sumar með ferðafélaganum Tralla trúð. Þarna inn á milli eru svo vorpróf en ég læri félagsráðgjöf í Háskóla Íslands. Svo bara að slaka á, fara í sund, grilla og svona, blása sápukúlur. Það er kominn sumar- bragur í mig. Einar einstaki töfrar fyrir börn á fjölskyldustund í Lindasafni, Núpalind 9, klukkan 11.30 á morgun, laugardag. Allir velkomnir og enginn inngangseyrir. Fylgstu með Einari á einareinstaki.is ÚTIVIST Föstudaginn 26. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið Útivist Í þessu glæsilega blaði verða skemmtileg viðtöl við allskonar fólk sem hefur smitast af útvistarbakteríunni. Fjallgöngur, hlaup, hjólreiðar eða skokk um göngustíga borgarinnar. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir ð fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryg u þér gott uglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C D -C 8 0 C 2 2 C D -C 6 D 0 2 2 C D -C 5 9 4 2 2 C D -C 4 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.