Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Rúnar Örn segist hafa rekist á þennan sjónvarpsþátt á NBC árið 2006 og heillast af
keppninni. „Í fyrstu var strúktúr
æfinga ekki mikill hjá mér og
snerist mest um að fara út að hjóla.
Eftir að hafa lesið mér betur til
urðu æfingarnar markvissari,“
segir hann. „Stefnan var sett á
Ironman World Championship og
þar sem hjólreiðar eru partur af
þríþraut var klárt að ég þyrfti að
fara að æfa hjólreiðar,“ segir Rúnar
Örn sem hefur nokkrum sinnum
látið þann draum rætast og staðið
sig vel.
„Ég hef tekið þátt í mótum, mest
götuhjólakeppnum og svo tíma-
tökumótum. Mín aðaláhersla er
á tímatökukeppnir þar sem þær
passa mjög vel með þríþrautinni.
Ég mun til dæmis taka þátt í öllum
götuhjóla- og tímatökumótum sem
eru á dagskrá í sumar,“ segir Rúnar
Örn og bætir við að yfir vetrarmán-
uðina æfi hann töluvert innandyra
til að ná sem bestri nýtingu á þeim
tíma sem hann hefur til æfinga.
Rúnar notar æfingaforritið Zwift
mjög mikið.
Hann hjólar ekki bara hér á landi
því hann hefur einnig farið í hjóla-
ferðir til útlanda. „Ég hef farið til
útlanda að hjóla allavega einu sinni
á ári fyrir utan keppnisferðir síðan
2014. Í dag lít ég á þessar ferðir sem
gulrót til að vera duglegur að æfa
yfir dimmustu vetramánuðina og
til að koma út í góðu formi með
vinunum þar sem ekki er langt í
keppnisskapið í mönnum.
Við látum beint f lug ráða
ferðinni. Höfum farið til Suður-
Spánar eða Tenerife, en það hafa
verið algengustu staðirnir, en einn-
ig prófaði ég Orlando í ár og það
kom mér skemmtilega á óvart enda
frábært æfingasvæði,“ segir hann.
Nýlega fór Rúnar Örn ásamt
félögum sínum í lengsta hjóla-
túrinn til þessa. „Mér tókst að plata
strákana til að hjóla frá Calpe til
Valencia á Spáni og svo aftur til
baka. Þetta endaði í 260 km,“ segir
hann og er ánægður með þá ferð.
Þegar hann er spurður hvort
maður þurfi ekki að vera á sérstöku
reiðhjóli, svarar hann. „Ég hélt það
í byrjun en í dag er ég búinn að sjá
að til að byrja að hjóla og koma sér
í form dugar hvað sem er. En til að
vera heiðarlegur er mjög gaman að
hjóla á góðu hjóli. Það sama á við
fatnaðinn. Til að byrja þarf ekki
meira en fatnað sem hentar miðað
við veðrið sem á að hjóla í en ef
það á að stunda íþróttina mikið
mæli ég með góðum hjólafatnaði.
Þröngur fatnaður er betri þar
sem á Íslandi koma dagar þar sem
hann blæs svolítið. Það er alltaf
skemmtilegra að hjóla í góðu veðri
en samt skiptir veðrið ekki öllu
máli. Ef veðrið er gott er auðveld-
ara að draga fleiri með sér í langa
hjólatúra.“
Rúnar segist bæði hjóla einn og
með vinum sínum. Það er einfalt
að hjóla með öðrum en þar sem ég
á tvær ungar dætur þarf ég að nýta
tíma minn vel og það getur verið
ansi breytilegt hvenær æfinga-
tími býðst svo ég hjóla mikið einn.
Síðustu ár hef ég reynt eins og ég
mögulega get að hjóla á sunnu-
dögum með góðum vinum.“
Rúnar segist mæla með þessari
íþrótt fyrir aðra. „Já, klárlega.
Það er svo auðvelt að ná yfir stórt
svæði og maður upplifir landslag
og náttúru allt öðruvísi á hjóli en á
bíl. Þar sem ég æfi svo mikið inni er
bara frábært að fara út að hjóla. En
draumaaðstæður eru 20+ stiga hiti
og fullt af brekkum.“
Finnur þú einhvern mun á
sjálfum þér eftir að þú fórst að
stunda þessa íþrótt?
„Eftir að ég fór að æfa þríþraut
og þar með hjólreiðar þá finnst
mér orðið eðlilegt að æfingar séu
klukkan 5.30 á virkum dögum og
að leggja af stað á sunnudögum
fyrir klukkan átta.“
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Oftast hjólar Rúnar einn en hann hefur mjög gaman af því að fara í hjólaferðir með vinum sínum og þá er keppt.
Á verðlaunapalli í WOW Cyclothon. Hamingjusamir félagar eftir vel
heppnaða hjólareiðakeppni um landið þvert og endilangt.
Sælir og glaðir hjólakappar á ferðinni í góða veðrinu á Spáni.
Stund tekin til hvíldar eftir langt hjólaferðalag um Spán.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HJÓLA
1
2
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
D
-B
4
4
C
2
2
C
D
-B
3
1
0
2
2
C
D
-B
1
D
4
2
2
C
D
-B
0
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K