Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 28
Það má eiginlega segja að Helgi hafi hjólað inn í líf mitt fyrir 35 árum og auðvitað
líka skíðað. Það var kærkomið
enda hef ég skíðað frá barnæsku
og stökk glöð á bögglaberann hjá
honum. Helgi hefur verið smá
keppnis í sínu hjóleríi. Hann er
sú týpa, en ég er ferðahjólari. Það
er fátt betra en að hengja töskur
á hjól og skrölta af stað þangað
sem ferðinni er heitið. A til bé og
áfram veginn. Við hjóluðum með
dæturnar yfir Skotland þegar þær
voru litlar. Það var fyrsta hjóla-
ferðin út fyrir landsteinana og
mikil hugljómun. Við höfðum
fram að því gengið á fjöllum,
kunnum á þann ferðahraða sem
því fylgir dögum saman. En þarna
var eitthvað nýtt. Að ferðast allt
að 100 kílómetra á dag með allt
sitt hafurtask, sjá nýja staði, hitta
nýtt fólk, upplifa á krákustígum
og slóðum, þjóðvegum, sveita-
götum og eftir gömlum lestar-
teinum.
Meiri yfirferð á hjóli
Það er meiri yfirferð á hjóli en
gangandi og mikil útivera í öllum
veðrum. Svona langaði okkur
að sjá heiminn. Og við fórum
Jakobsveginn frá Frakklandi og
yfir Spán. Síðan höfum við hjólað
frá Noregi til Svíþjóðar. Við eltum
Rín yfir Evrópu frá upphafi til
endaloka í Norðursjó og fórum
yfir England til Edinborgar.
Fyrir nokkrum árum fór ég ein
hringveginn hér heima. Það var
nú rússnesk rúlletta. Helgi hafði
farið hann nokkrum sinnum með
liðum í keppni. Við tökum okkar
eigin hjól, pökkum í pappa-
kassa, setjum saman á vellinum
og hjólum af stað – tvær töskur á
mann á bögglabera. Einfalt slow
travel system – að ferðast hægt og
lengja augnablikið. Það lengdist
að vísu aðeins of mikið þegar við
hjóluðum út af Heathrow-f lug-
velli í roki og rigningu í fyrra.
Flugvellir geta verið f lóknir. Við
hjóluðum hringinn í kringum
völlinn áður en við gátum komið
okkur út fyrir f lugbrautir og hrað-
brautir. Hvernig komumst við
héðan út? spurðum við bílastæða-
vörð í undirgöngum. Hvernig í
andskotanum komust þið hingað?
spurði hann og horfði á reiðhjólin.
Best að gista á þorpspöbb-
unum
Og svo er það gistingin. Tjaldvist
nennum við ekki. Það er heldur
ekki nægileg nánd við samfélagið
hverju sinni. Gistingin er stund-
um spennandi – uppgerð útihús,
heimagisting og barir og við
hittum áhugaverðar manneskjur
alls staðar. Besta leiðin til að
kynnast Bretlandi er til dæmis að
gista á þorpspöbbnum. Þar slær
alþýðuhjartað. Ætli eftirminni-
legast sé ekki hingað til að elta Rín
til sjávar. Við fylgdum henni að
heiman frá jökullóni í Sviss, yfir
fjöll og dali, í gegnum iðnaðar-
svæði og um skipahálsa, fram hjá
fólkinu sem lifir og nærist við Rín.
Svo f laut hún á móti straumnum
út í Norðursjó. Við runnum með
henni í rólegheitum, fundum fyrir
þunga stundarinnar, þegar þessi
mikla lífæð yfirgaf tilvistina. Já,
og nú látum við okkur dreyma um
næstu ferð, helst í haust. Eystra-
salt, Ítalía eða Balkanskaginn.
Hver veit? Það kemur í ljós.
Sjá Evrópu á hjóli
Kristín Helga Sigurðardóttir og
Helgi Geirharðsson á síðasta degi í
einni af langferðum sínum í Evrópu.
Líklega mun ein ferðin til viðbótar
bætast við í haust, eftir að íslenska
sumarsins hefur verið notið.
Kristín Helga
með bros á
vör við sína
uppáhaldsiðju,
að skoða sig
um á löngum
ferðum
þeirra hjóna
á evrópskum
hjólaleiðum.
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 10:00 til 18:00
Laugardaga kl. 10:00 til 16:00
Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík
#becube #triverslun
Egilsstaðir
TRI VERSLUN er umboðsaðili CUBE á Íslandi
Akureyri
TACX
FLUX
SMART
TACX
FLUX
SMART
TACX
NEO
SMART
TRI VERSLUN
CUBE AIM “27.5
CUBE 2019
reiðhjólin
eru komin!
WWW.TRI.IS
Sími:571 8111 Netfang: info@tri.is
TRI VERSLUN
TRI VERKSTÆÐI
TRI VEFVERSLUN
CUBE STEREO CUBE ATTAIN
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HJÓLA
1
2
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
D
-B
9
3
C
2
2
C
D
-B
8
0
0
2
2
C
D
-B
6
C
4
2
2
C
D
-B
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K