Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 30

Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 30
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Páskar eru dagar hvíldar og þess að njóta góðs matar. Súkkulaði skipar vissulega stóran sess á páskadag en lamba- kjötið er ekki síður vinsælt á þessum degi. Lambalærið er alltaf ljúffengt og hér er uppskrift að því en einnig lambaskönkum sem þurfa langa eldun og verða ákaf- lega bragðgóðir. Lambalæri með ofnbökuðu grænmeti, kartöflugratíni og rauðvínssósu fyrir 6 Lamb er frábær páskamatur sem hægt er að matbúa fyrir fjölskyld- una. Hægt er að krydda lambið á margan hátt en hér er það hvítlauk- ur og rósmarín sem ráða ferðinni. 2,6 kg lambalæri Ólífuolía Salt og pipar Hvítlauksrif Ferskt rósmarín Nuddið kjötið með olíunni. Gerið göt í kjötið og stingið hvítlauk og rósmaríni í þau. Saltið og piprið. Ágætt er að láta kjötið standa á borði í tvo tíma eftir að það hefur verið kryddað. Lambakjöt á hátíðardögum Það styttist í páska og kærkomið páskafrí. Flestir gera vel við sig í mat þessa hátíðisdaga og lambakjöt er vinsælt. Hér eru ljúffengar uppskriftir sem henta vel yfir hátíðirnar. Það er gaman að setjast við fallega skreytt páskaborð. Gulur og grænn passa vel á borðinu. NORDICPHOTOS/GETTYLambalæri er einstaklega ljúffengt með hvítlauk og rósmaríni og gratíneraðar kartöflur eru einstaklega góðar með lambakjöti. Gratíneraðar kartöflur passa einstaklega vel með öllu lambakjöti. Ofnsteikt grænmeti 1-2 dl lambakraftur 2-3 msk. smjör Smávegis vatn Grænmeti, eins og laukur, hvít- laukur, spergilkál, gulrætur, fennel Hitið ofninn í 150°C. Leggið lærið í ofnpott ásamt niðurskornu græn- meti. Setjið smávegis lambakraft, smjör og vatn með. Gott er að ausa kjötið á meðan á steikingu stendur. Steikja þarf kjötið þar til kjötmælir sýnir 65-70°C. Þar sem hitinn er lágur gæti þetta tekið tvo og hálfan tíma en ofnar eru mismunandi heitir. Svo er auðvitað hægt að grilla lærið úti í rúma klukku- stund en þá er ekki hægt að hafa grænmetið. Látið kjötið hvíla í 20 mínútur eftir steikingu áður en það er skorið niður. Með kjötinu er gott að hafa rauð- vínssósu. Rauðvínssósa 3 dl rauðvín 2 skalottlaukar, mjög smátt skornir ½ tsk. pipar 1 lárviðarlauf 1½ dl lambakraftur 2-3 msk. smjör Salt Setjið rauðvín í pott ásamt lauk, pipar og lárviðarlaufi og sjóðið niður um einn þriðja. Bætið þá lambakrafti saman við. Hrærið smjörinu saman við og bragðbætið með salti. Smakkið sósuna til eftir því sem þarf. Sigtið. Kartöflugratín 800 g kartöflur í sneiðum 3 dl rjómi 1-2 dl mjólk Rifið múskat 1-2 hvítlauksrif, smátt skorin Salt og pipar Smávegis smjör Rifinn ostur Skrælið og þvoið kartöflurnar. Hitið upp rjóma og mjólk. Bætið hvítlauknum út í ásamt salti og pipar. Setjið kartöflurnar út í og látið malla í tíu mínútur á vægum hita. Smyrjið eldfast form og hellið blöndunni þar í. Setjið nokkra smjörbita yfir, rifinn ost og breiðið álpappír yfir. Setjið inn í ofninn með lambalærinu í einn og hálfan tíma. Þegar lambið er tilbúið er það tekið út, álpappírinn tekinn af kartöflunum og hitinn hækkaður í 180°C. Steikið áfram þar til kart- öflurnar hafa tekið fallegan lit. Lambaskankar með grænmeti fyrir 4 Ef fólk vill hafa eitthvað annað en lambalæri þá er hér uppástunga um lambaskanka. Þeir eru mjög góðir og gera alltaf lukku. Það er einn lambaskanki á mann. 1 dl sólkjarnaolía 4 lambaskankar, það er gott að maka á þá smávegis Dijon-sinn- epi, salti og pipar 2 stórar gulrætur, skornar niður ½ sellerírót, skorin í teninga ½ smátt skorinn blaðlaukur, bara hvíti hlutinn 1 fennel, skorið niður 8 perlulaukar 3 hvítlauksrif, smátt skorin 1 msk. fennelfræ 1 stjörnuanís 2 stilkar ferskt rósmarín 3 lárviðarlauf Smávegis ferskt timían 1 kanilstöng Börkur af einni sítrónu og einni appelsínu, mjög smátt skorið, ekki nota hvíta partinn 3 dl nautasoð 3 dl rauðvín 1-2 dl vatn 1 dós niðursoðnir kirsuberja- tómatar Salt og pipar Hitið ofninn í 150°C. Brúnið kjöt- bitana í stórri og djúpri stálpönnu eða -potti í sólkjarnaolíu á öllum hliðum. Leggið í eldfast fat. Steikið gulrætur, sellerí, blaðlauk, fennel og lauk þar til grænmetið mýkist. Bætið þá við hvítlauk, fennel- fræjum, stjörnuanís, rósmaríni, lárviðarlaufi, timíani, kanilstöng og berkinum. Hrærið öllu vel saman. Bætið þá við kjötkrafti, rauðvíni og tómötum. Þá eru skankarnir settir í pottinn, kjötið snýr niður og beinið upp. Kjötið á alveg að vera þakið í vökv- anum en ef ekki þarf að bæta við vatni. Sjóðið upp með loki. Setjið þá pottinn inn í heitan ofninn og eldið í 2-3 tíma eða þangað til kjötið losnar frá beinunum. Takið kjötið upp úr pottinum og bætið við sósuna 2 msk. Dijon- sinnepi, 1-1½ tsk. sambal oelek, 3-4 msk. sykri, 1-2 msk. sítrónu- safa, Maldonsalti og nýmöluðum pipar. Smakkið til og bætið við kryddi eftir þörfum. Leggið kjötið aftur í sósuna þegar hún er tilbúin og berið fram með kartöflumús. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C D -C C F C 2 2 C D -C B C 0 2 2 C D -C A 8 4 2 2 C D -C 9 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.