Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 34
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Georg Siguroddsson rafmagnstæknifræðingur, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni þriðjudagsins 9. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 16. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Guðrún Ragnheiður Þorvaldsdóttir Guðrún Anna Magnúsdóttir Fanney Magnúsdóttir Ragnheiður H. Magnúsdóttir Magnús L. Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðlaugur Ingimundarson Ásbraut 17, Kópavogi, lést þriðjudaginn 2. apríl á Land - spítalanum við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 15. apríl klukkan 11. Linda Guðlaugsdóttir Guðrún Guðlaugsdóttir Garðar H. Magnússon Guðlaugur I. Guðlaugsson Manuela Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurvin Jónsson Suðurbyggð 15, Akureyri, lést þriðjudaginn 9. apríl 2019. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 29. apríl klukkan 13.30. Sigríður Sigurvinsdóttir Bjarni Kristinsson Jóna Ólafía Sigurvinsdóttir Ásdís Sigurvinsdóttir Einar Birgir Kristjánsson Björg Sigurvinsdóttir Sveinbjörn Herbertsson Trausti Sigurvinsson barnabörn og barnabarnabörn. Mér finnst ótrúlegt að platan sé orðin að veruleika og útgáfu-tónleikar í kvöld. Ég held mig sé að dreyma. Það hefur verið svo mikið að gera að ég man varla síðustu mánuði. Tíminn hefur bara liðið svona,“ segir Már Gunnarsson og smellir fingrum. Hann er söngvari, píanóleikari og lagahöfundur og er að tala um sína fyrstu plötu, Söng fuglsins. Hún var tekin upp í Póllandi, undir stjórn eins virtasta útsetjara landsins, Hadrian Tabecki. „Það eru komnir hingað fjórir atvinnu-hljóðfæraleikarar frá Póllandi, rosalega færir, til að spila á útgáfutón- leikunum í kvöld í Hljómahöllinni og frábær poppsöngkona, Natalia Przy- bysz. Það er algerlega magnað að þau skuli öll gefa sér tíma til koma hingað. Svo er líka íslenskt tónlistarfólk í band- inu, Villi Naglbítur, Ívar Daníels, Guðjón Steinn Skúlason og Ísold Wilberg, systir mín, þannig að þetta er pólskt-íslenskt samstarf.“ Már tók þátt í söngvakeppni í Kraká í Póllandi fyrir tveimur árum og varð í þriðja sæti. Í fyrrasumar fór hann aftur út og söng á stærstu góðgerðartónleik- unum í Póllandi. „Við erum að tala um 16.000 manns í húsinu og tónleikunum var streymt til tveggja milljóna,“ lýsir hann og segir góð tengsl hafa skapast við pólskt tónlistarfólk í þessum ferðum. Gísli Helgason, f lautuleikari og laga- smiður, verður hluti af hljómsveitinni á tónleikum kvöldsins að sögn Más. „Gísli er alger fagmaður og góður vinur minn, ég er stoltur af að hafa þann meistara með í þessu verkefni,“ segir hann. Þeir Már og Gísli eiga f leira sameiginlegt, því báðir eru nær blindir. „Ég hef verið mjög sjónskertur alla mína tíð og þekki ekkert annað. Það er bara þannig,“ segir Már og dvelur ekki lengi við það atriði en segir líf sitt snúast um tónlistina og sund. Hann stefnir á að fara á Ólympíu- leika fatlaðra á næsti ári í Tókíó. „Ég er landsliðsmaður í sundi og var á Íslands- mótinu um síðustu helgi, þá þurfti ég að fara eldsnemma á fætur og mjög snemma að sofa en þessa viku hef ég vakað fram á nætur við æfingar þannig að það er öllu snúið á haus!“ segir hann hress. Már kveðst hafa samið lög frá tíu til tólf ára aldri, á píanóið sem hann hafi þá verið búinn að spila á í nokkur ár. „Svo komst ég í tæri við snillinga og það er engu líkt hvað það gerir manni gott að vinna með góðu fólki sem leggur mikið á sig og gefur af sér,“ segir hann. Lögin á nýja diskinum eru öll eftir Má og flestir textarnir eftir Tómas Eyjólfsson. „Það eru nokkur lög komin á You Tube og Spotify og munu öll koma þangað inn. Svo verður diskurinn seldur á tónleik- unum.“ Már tekur fram að tónlistarstíll- inn verði fjölbreyttur í Hljómahöllinni í kvöld og þar verði vonandi eitthvað fyrir alla. Á lagalistanum nefnir hann sérstaklega Kvöldsiglingu Gísla Helga- sonar. Herlegheitin hefjast klukkan 20 en húsið verður opnað klukkan 19. gun@frettabladid.is Ég held mig sé að dreyma Fyrsta plata hins sjóndapra Suðurnesjamanns Más Gunnarssonar kemur út í dag. Hún heitir Söngur fuglsins. Veglegir útgáfutónleikar verða haldnir í kvöld í Hljómahöllinni. Már að hengja upp plakat í húsnæði Blindrafélagsins fyrir tónleika kvöldsins í Hljómahöllinni. Það er að mörgu að hyggja. Ég hef verið mjög sjónskertur alla mína tíð og þekki ekkert annað. Það er bara þannig. 1912 Farþegaskipið Titanic, sem aldrei átti að sökkva, leggur upp í sína fyrstu og einu ferð. Skipið sekkur þremur dögum seinna eftir árekstur við borgarísjaka. 1927 Íþróttafélagið Völsungur er stofnað á Húsavík. 1930 Útvegsbanki Íslands er stofnaður. 1931 Knattspyrnufélagið Haukar er stofnað í Hafnarfirði. 1940 Bretar hernema Færeyjar. 1945 Franklin D. Roosevelt deyr í embætti og Harry S. Truman tekur við sem 33. forseti Bandaríkjanna. 1947 Íslenska tónlistarútgáfan Íslenzkir tónar er stofnuð í Reykjavík. 1952 Vélbáturinn Veiga sekkur við Vestmannaeyjar. Tveir menn farast en sex bjargast í gúmmíbjörgunarbát. Það er í fyrsta sinn sem slíkur bátur er notaður hér við land. 1953 Menntaskólinn á Laugarvatni verður sjálfstæður menntaskóli, sá fyrsti í dreifbýli á Íslandi. 1961 Júrí Gagarín verður fyrstur manna til að fara út í geiminn. 1974 Rithöfunda- samband Íslands er stofnað upp á nýtt sem stéttarfélag ís- lenskra rithöfunda. 1982 Kvikmyndin Sóley eftir Rósku er frumsýnd í Reykjavík. 1983 Yasser Arafat heimsækir Olof Palme í Stokkhólmi þrátt fyrir mótmæli frá Ísrael. 1986 Fjölbrautaskóli Suðurlands verður fyrsti sigurvegari í Spurningakeppni framhaldsskólanna. 2010 Rannsóknarnefnd Alþingis birti skýrslu um að- draganda og orsakir hrunsins í níu bindum. Merkisatburðir Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C D -B 4 4 C 2 2 C D -B 3 1 0 2 2 C D -B 1 D 4 2 2 C D -B 0 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.