Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 37

Fréttablaðið - 12.04.2019, Side 37
DANS Vorblót Tjarnarbíós 2. hluti Traces Oversharing Tours Body in Progress I want to dance like you Það er orðin sterk hefð innan dans- heimsins að í staðinn fyrir að semja dansverk þar sem áhorfendur sitja óáreittir úti í sal þá er þeim boðið upp á einhvers konar upplifun. Í verkinu Traces/Menjar eftir Rósu Ómarsdóttur var búið að breyta sal Tjarnarbíós í eins konar frum- skóg eða fenjasvæði. Reykþoka lá yfir sviðinu þar sem áhorfendum var boðið að koma sér fyrir á gólf- inu allt umhverfis sviðið innan um fallega upplýstar plöntur. Til eyrna bárust hljóð næturinnar og kyn- legar skepnur sáust á ferli, undir- rituð var ekki óhrædd um að Gollrir mætti á svæðið. Margt í verkinu minnti á fyrri verk Rósu sem hún hefur samið með Ingu Huld Hákonardóttur, eins og t.d. Valley, sem sýnt var í Tjarnarbíói haustið 2015, þar á meðal áhugaverð notk- un á hljóðum. Það er gaman að sjá sterk höfundareinkenni sérstaklega þegar það sem gert er virkar. Verkið fangaði sterkt athygli áhorfandans og það var auðvelt að hrífast af öllu því sem fram fór í rýminu. Stemm- ing kallaði fram hugrenningar og minningar tengdar svipuðum nátt- úruupplifunum sem gerði upplifun- ina af verkinu persónulega. Byrj- unin var sérstaklega sterk sem og seinni hlutinn, þá gleymdi maður sér í nautn skynfæranna en verkið missti aðeins dampinn um mið- bikið þannig að hugurinn flögraði í aðrar áttir. Verkið var frumsýnt í Belgíu árið 2017 og hefur verið sýnt víða við góður viðtökur. Það er óskandi að það verði sýnt oftar hér á landi vegna þess að það veitir sterka upplifun sem vert er að fleiri fái að njóta. Sniðug hugmynd Verkið Oversharing Tours fólst einnig í upplifun áhorfandans en ekki áhorfi en verkið var göngu- ferð um Þingholtin undir leiðsögn Rebeccu Scott Lord og Hrefnu Lindar Lárusdóttur. Á meðan þátt- takendur röltu þöglir á eftir leið- sögumönnunum barst þeim trún- aðarsamtal þeirra síðarnefndu til eyrna fyrir tilstuðlan hljóðnema sem leiðsögumennirnir töluðu í. Samtalið fór fram á milli þess sem leiðsögumennirnir stoppuðu og bentu þátttakendum á áhugaverða opinbera staði og staði tengda þeirra persónulega lífi eins og Prik- ið þar sem önnur þeirra sagðist hafa hitt barnsföður sinn. Hugmyndin að þessum „Oversharing Tour“ er áhugaverð. Það er samt mikilvægt að spyrja nánar fyrir hvern svona viðburður er. Fyrir mig sem bý á þeim slóðum sem gengið var um þá var umhverfið of kunnuglegt til að vekja alvöru áhuga minn og efni trúnaðarsamtalsins var ekki nægi- lega fræðandi eða þankavekjandi til að halda athygli minni óskiptri. Upplifunin af verkinu varð ekki nægilega sterk þó að hugmyndin að baki því væri sniðug og algjörlega þess virði að þróa áfram. Að skapa rými fyrir nýútskrifaða Tvö af verkum hátíðarinnar voru eftir nýútskrifaða höfunda frá Listaháskóla Íslands. Það er mikil- vægt fyrir unga listmenn að fá að sýna verk sín á hátíðum sem þess- um ekki síst vegna þess að á svona samkomum eru flestir innan dans- heimsins mættir til að fylgjast með hvað aðrir eru að gera. Hér var um tvö mjög ólík verk að ræða. Ástrós Guðjónsdóttir og Alma Mjöll Ólafs- dóttir settu á svið I want to dance like you, dansverk um það að setja upp dansverk á hátíð sem þessari. Þetta var sniðugt og skemmti- legt verk þar sem raunveruleikinn sem liggur að baki gerð og æfingu dansverka var dreginn á svið. Þær afhjúpuðu meðal annars angistina sem fylgir þeirri tilhugsun að verk sé ekki nægilega gott, vonina um að fá viðurkenningu fagaðila og metnaðinn til að gera hið fullkomna verk. Gallabuxur og bolur Rita Maria F. Munoz var aftur á móti með athyglina fyrst og fremst á hreyfinguna og líkamann í verk- inu Body in Progress. Í tengslum við ljúfa tóna fylgjast áhorfendur með því hvernig hreyfingar flæða áfram í að því er virðist óskilgreindu flæði þar sem ekki er hægt að vita hvað gerist næst. Þrátt fyrir hversdagslega umgjörð, gallabuxur og gráan bol og enga sviðsmynd, var áhugavert að fylgjast með því sem var að gerast á sviðinu. Sesselja G. Magnúsdóttir NIÐURSTAÐA: Vorblót Tjarnar- bíós og RDF er kærkominn vett- vangur fyrir danslistamenn sem starfa á erlendri grund að koma verkum sínum á framfæri við land- ann og nýútskrifaða listamenn að koma verkum sínum á framfæri. Kærkominn vettvangur „Það er óskandi að Traces verði sett upp oftar hér á landi.“ Ástrós og Alma Mjöll settu á svið dansverk um það að setja upp dansverk á hátíð. MYND/SUNNA AXELS Birds of Passage (eng sub) .......... 17:30 ALÞJÓÐLEG BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ Eurovision-PARTÍ -->FRÍTT! .. 17:30 Mirai (Jap. w/ENG sub) 1.000 kr! 17:50 FÖSTUDAGSPARTÍSÝNING Cocktail kl.20:00 Girl (ice sub) ............................................. 20:00 Everybody Knows (ice sub) ........ 20:00 Girl (eng sub) ............................................22:15 Mug // Twarz (eng sub).....................22:30 Taka 5 // Take 5 (eng sub) ............22:30 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS Allt sem er frábært Litla sviðið Kvöldvaka með Jóni Gnarr Litla sviðið Elly Stóra sviðið Lau 13.04 Kl. 20:00 U Lau 27.04 Kl. 20:00 U Sun 05.05 Kl. 20:00 Ö Sun 12.05 Kl. 20:00 Ö Fös 17.05 Kl. 20:00 Ö Fös 24.05 Kl. 20:00 Ö Fös 31.05 Kl. 20:00 Ö Lau 08.06 Kl. 20:00 Ö Lau 15.06 Kl. 20:00 ÖL Lau 04.05 Kl. 20:00 Ö Fim 09.05 Kl. 20:00 Ö Lau 11.05 Kl. 20:00 ÖL Lau 13.04 Kl. 20:00 U Borgarleikhúsið 568 8000 • borgarleikhus.is Kæra Jelena Litla sviðið Bæng! Nýja sviðið Club Romantica Nýja sviðið Fös 12.04 Kl. 20:00 U Sun 14.04 Kl. 20:00 U Þri 16.04 Kl. 20:00 U Þrið 24.04 Kl. 20:00 U Mið 25.04 Kl. 20:00 U Fim 26.04 Kl. 20:00 U Sun 28.04 Kl. 20:00 U Fim 02.05 Kl. 20:00 U Fös 03.05 Kl. 20:00 U Sun 05.05 Kl. 20:00 U Mið 08.05 Kl. 20:00 U Fös 10.05 Kl. 20:00 Ö Sun 12.05 Kl. 20:00 Ö Mið 15.05 Kl. 20:00 Ö Fös 26.04 Kl. 20:00 U Sun 26.04 Kl. 20:00 U Fös 03.05 Kl. 20:00 U Mið 08.05 Kl. 20:00 U Fim 09.05 Kl. 20:00 U Fim 16.05 Kl. 20:00 U Fim 23.05 Kl. 20:00 U Sun 23.05 Kl. 20:00 Ö Fim 30.05 Kl. 20:00 Ö Lau 13.04 Kl. 20:00 UL Matthildur Stóra sviðið Fös 12.04 Kl 19:00 U Lau 13.04 Kl 13:00 U Sun 14.04 Kl 19:00 U Þri 16.04 Kl 19:00 U Mið 24.04 Kl 19:00 U Fim 25.04 Kl 19:00 U Fös 26.04 Kl 19:00 U Sun 28.04 Kl 19:00 U Þri 30.04 Kl 19:00 U Fim 02.05 Kl 19:00 U Mið 08.05 Kl 19:00 U Fim 09.05 Kl 19:00 U Mið 15.05 Kl 19:00 U Fim 16.05 Kl 19:00 U Mið 22.05 Kl 19:00 Ö Fim 23.05 Kl 19:00 Ö Sun 26.05 Kl 19:00 Ö Mið 29.05 Kl 19:00 Ö Fim 30.05 Kl 19:00 Ö Sun 02.06 Kl 19:00 Ö Mið 05.06 Kl 19:00 Ö Fim 06.06 Kl 19:00 Ö Fös 07.06 Kl 19:00 Ö Mán 10.06 Kl 19:00 Ö Fim 13.06 Kl 19:00 Ö Fös 14.06 Kl 19:00 Ö Sun 16.06 Kl 19:00 Ö Ronja Ræningjadóttir Stóra sviðið Dimmalimm Brúðuloftið Einræðisherrann Stóra sviðið Jónsmessunæturdraumur Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 551 1200 • leikhusid.is Fös. 12.04 kl 19:30 U Fös 03.05 kl. 19:30 Ö Fim 09.05 kl. 19:30 Mið 22.05 kl. 19:30 Lau 13.04 kl. 19:30 U Lau 04.05 kl. 19:30 Ö Mið 08.05 kl. 19:30 Lau 13.04 kl. 15:30 Lau 27.04 kl. 14.00 Lau 17.04 kl. 15:30 Þitt eigið leikrit Kúlan Loddarinn Stóra sviðið Brúðkaup Fígarós Stóra sviðið Lau 13.04 kl. 15:00 U Lau 13.04 kl. 17:00 Sun 28.04 kl. 15:00 Sun 28.04 Kl. 17:00 Lau27.04 kl. 19:30 U Þri 30.04 kl. 19:30 U Fim 02.05 kl. 19:30 U Fös 10.05 kl. 19:30 U Lau 11.05 kl. 19:30 U Fös 17.05 kl. 19:30 U Fim 23.05 kl. 19:30 Lau 07.09 kl. 19:30 Ö Sun 15.09 kl. 19:30 Fös 20.09 kl. 19:30 Lau 21.09 kl. 19:30 Lau 28.09 kl. 19:30 Lau 05.10 kl. 19:30 Súper Kassinn Fös. 12.04 kl. 19:30 U Mið 24.04 kl. 19:30 Ö Fös 26.04 kl. 19:30 U Lau 13.04 kl. 12:00 U Sun 14.04 kl. 13:00 U Sun 14.04 kl. 16:00 U Sun 28.04 kl 13:00 U Sun 28.04 kl. 16:00 U Sun 05.05 kl. 13:00 U Sun 05.05 kl. 16:00 U Sun. 12.05 kl 13:00 U Sun. 12.05 kl. 16:00 U Lau 18.05 kl. 13:00 Au Lau 18.05 kl. 16:00 Au Sun. 19.05 kl. 13:00 Ö Sun. 19.05 kl. 16:00 Ö Sun 26.05 kl. 13:00 Ö Sun 26.05 kl. 16:00 Au Sun 2.6 kl. 13:00 Au Lau 8.6 kl. 13:00 Au Job.is Þú finnur draumastarfið á M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F Ö S T U D A G U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 1 2 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C D -9 6 A C 2 2 C D -9 5 7 0 2 2 C D -9 4 3 4 2 2 C D -9 2 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.