Framsókn : bændablað - samvinnublað


Framsókn : bændablað - samvinnublað - 12.12.1936, Blaðsíða 4

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 12.12.1936, Blaðsíða 4
FRAMSORN LÍFTRYGGINGAR í Æ F T R Y G G I M G A R G ,S B G J L D SjðTátrygging rfél g íslitnds h.f. LÍFTRYGGINGARDEILD. „Greindur nærri getur, en reyndur veit þó betur.“ NhCCiI og VEGA saumavéíar. ö Endingarbestar. Fallegastar. Léttastar. ^ Mikið úrval — við allra hæfi. o Hagkvæmir greiðsluskilmálar. 5 1 ReiðhjtilaverKsmiðjan „fÁLKÍMM". j g Laugavegi 24. j SUÍXXSOÍXXXXXXN-ÍKSÍIWSOÍXXXXX XXK5CÍ505 XXXSOOOtÆíOOöOCOÖOOOOOd Frh. af L síðu. BRÉF ÚTVEGSMANNA. miklu leyti af gengi á íslenzkri krónu, gengi, sem reynt er að halda uppi með sérstökum ráðstöfunum af hálfu stj órnarvaldanna og sem vera mundi lægra, ef þeim ráðstöf- unum væri slept.. Er því þarna raunverulega tekinn af útgerðinni drjúgur hluti af andvirði afurð- anna og það gert að tilhlutun st j órnarvaldanna. Með því að öllum má vera það ljóst, að ástandið, eins og það er nú, er ekki til frambúðar, viljum vér leyfa oss, að beina því til hæst- virtrar ríkisstjórnar, að hún hlut- ist til um, að gengi íslenzku krón- unnar sé ekki lengur haldið hærra en eðlilegt væri og hægt væri að gera án þvingunarráðstafana. Mun það ekki fjarri lagi, að gengi henn- ar væri lækkað um 30%. Vilji hæstvirt rikisstjórn ekki sinna þessu, en sjái hins vegar ein- hver önnur ráð fram úr örðugleik- unum, eru fulltrúar okkar útgerð- armanna fúsir að ræða hvaða mögu- leika sem eru útveginum til bjargar. Skýring vísunnar í 32. tbl. Framsóknar. Kreppuvaldur. Kreppuvalds í klaki lóma klingja pund við gleðihljóm, skuldahelsið skapa, róma. - Skortir frelsi og stærri dóm. :|: „Skipulag“er skálkar róma. :J: Skapið frelsi og stærri dóm! •Kreppuvaldur: Sá sem orsakar „kreppuna", þ. e. veldur truflun og erfiðleikum í atvinnu- og verzl- unarmálum. lómaklak: lómur, hrekkvís mað- ur, svikari, lómaklak er þá upp- eldisstöð og skóli slíkra pilta. pund: erlend mynt, peningar, verSmæti. róma: lofa, hafa í hávegum, heiðra. ' Þýðing vísunnar í óbundnu máli: I lómaklaki kreppuvalds er nóg um erlendan gjaldeyri, þar er hon- um hringlaö og hampaö, og glaöst af með fagnaðarlátum. Þar eru búnir til skuldafjötrar, sem lóm- arnir eru svo látnir hæla og hrósa. Til þess að dæma slíkt athæfi sem veiöugt væri skortir menn frelsi vegna núverandi löggjafar. SPÁNN. Orustur hafa verið háðar víðsvegar á Spáni, en ekki með jafnmiklum krafti og áður. V'irðast báðir málsaðilar vera orðnir þreyttir, og auk þess hefir veðráttan verið hörð og köld. Þetta hefir leitt til þess að dregið hefir úr bardögun- um. Hafnbann Francos virðist þegar hafa haft allmikil áhrif, og er nú miklu erfiðara fyrir stjórnarherinn að flytja inn vopn og skotfæri. Mest hefir verið barizt fyrir sunnan og vestan Madrid, og auk þess hef- ir stjórnarherinn á norðurvíg- stöðunum sótt fram í áttina til Burgos. Nú eru stórveldin loks farin að beita sér fyrir því, að koma friði á, hafa Frakkar og Bret- ar gengið þar á undan og skorað á ýms önnur lönd að vinna að þvi með þeim, að semja frið á Spáni. Sumar þjóðir, til dæmis Rússar, b.afa tekið vel undir þessa málaleit- un, en aftur hafa Þjóðverjar og Portúgalsmenn verið tregir til að skifta sér af málinu. Tal- ið er að nú sé hinn heppileg- asti tími til að reyna að semja frið, þar sem báðir andherjar eru þreyttir orðnir og stríðið hefir að mestu leyti stöðvast i bili. Ekkert hefir verið birt um það, á hvaða grundvelli hugs- að er að leysa deiluna, en allt útlit er fyrir, að tæplega verði hægt að koma friði á, nema með því að skipta Spáni i tvö ríki, en það mun þó líka verða miklum vandkvæðum bundið. Hinsvegar er ekkert útlit fyrir það sem stendur, að annarhvor málsaðili geti sigrað hinn að fullu og komið friði á með ofurefli vopnanna. ÁSTAMÁL BRETAKONUNGS. HANN LEGGUR NIÐUR KONUNGS- TIGN VEGNA KONU. Síðustu vikurnar hafa ásta- mál Játvarðar Bretakonungs verið eitt helzta umtalsefni heimsins. Konungur er ókvænt- ur, en nú vildi hann kvongast amerískri konu, frú Simpson að nafni. Hún hefir verið tvi- gift og skilið við báða menn sína. Má nærri geta, að Bretum geðjaðist ekki að þessum ráða- hag, enda tók stjórnin ákveðna afstöðu gegn giftingunni, og eins kirkjan, og að því er virð- ist, mestur hluti þjóðarinnar. Stjórnin hefir haldið marga fundi um málið, en fátt hefir verið birt opinberlega um það. Háværar raddir hafa heyrst um það, að konungur verði að leggja niður konungdóm, ef hann liéldi fast við áform sitt. Var svo komið, að konungur hafði ekki um annað að velja en að hætta við kvonfangið eða afsala sér völdum og landsvist i Englandi. Játvarður VIII. var tálinn afarvinsæll í Englandi, en það breyttist skyndilega, þvi segja má, að hann mæti nú andúð um allt ríkið, nema i Ástraliu. Forsætisráðherrann þar, heíir lýst því yfir, að konungi sé heimilt að ganga að eiga þá konu, er honum sýnist, án þess að það kæmi við stjórn ríkis- is. Fólkið lieimtaði, að Albert hertogi af York tæki við kon- ungsvöldum, en hann er næst- ur konungi að aldri af þeim bræðrum. Hann er fæddur 1895 og er kvæntur enskri konu af háurn aðalsættum. Þessi ákvörðun konungs er einsdæmi i sögu Breta, og hef- ir, eins og vænta mátti, vakið afskaplega athygli. Sagt er, að konungur hafi fagnað því, að verða laus við konungdóminn, og muni hraða sér úr landi. Á fimmtudaginn var, gaf stjórnin svo út yfirlýsingu þess efnis, að Játvarður VIII. væri hættur að stjórna, og Albert hertogi tæki við konungstign, undir nafninu Georg VI. Búist er við, að konunga- skiptin kunni að hafa mikil á- hrif á ensk stjórnmál, og er ekki ólíklegt, að stjórnarskipti verði áður en á löngu líður. Kaupið timbur, glugga, hurðir og lista hjá stærstu timburverzlun og irésmiðju landsins. --------- -------- Hvergi betra verð. f* Kaupið gott efni og góða vinnu. Þegar húsin fara að eldast, mun koma í/ljós, að það margborgar sig. — Verzlunin selur einnig sement, saum, þakpappa, kross-spón, Treetex og niðursöguð efni í hrífuhausa, hrífusköft og orf. Timburver&Ixoiira VÖLUNDUR H.F. í! REYKJAVIK. Símnefni: Völundur. Reykjavík. Sími: 1249. Símnefni: Sláturfélag. Niðursuðuverksmiðja. Rjúgnagerð. Reykhús. Frystihús. Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt- og fiskmeti, f jölbreytt úrvak Bjúgu og allskonar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu. Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöi allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi eftir fyllstu nútima kröfum. Ostar og smjör frá Mjólkurbúi Flóamanna. Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um allt land. Ábyrgðarmaður: FÉLAGSPRENTSMIÐJAH Jón Jónsson, Stóradal.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.