Framsókn : bændablað - samvinnublað - 24.08.1940, Side 1

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 24.08.1940, Side 1
FRÁ ÚTLÖNDUM Orustan um England. t>ví var spáð í seinasta blaði, að ófriðurinn mundi harðna stórkostlega á næstunni. Nú er þetta komið á daginn. Þjóðverjar boðuðu nýja sókn með því að lýsa yfir algerðu hafnbanni á England og kváð- ust munu sökkva hverju skipi, er kæmi í nánd við landið. Bret- ar gerðu ekki mikið úr þessum hótunum, en ekki er enn hægt að sjá hver áhrif þetta hafn- foann kann að hafa. Víst er það, að ef það verður framkvæmt ötullega, þá mun það koma hart niður á okkur íslendingum, kannske fremur flestum þjóð- um. Þá hafa Þjóðverjar teflt fram langdrægum fallbyssum og skjóta með þeim frá ströndum Frakklands yfir Ermarsund á enskar borgir. Hefir þessi skot- Iiríð valdið allmiklu tjóni og foorgin Dover orðið harðast úti, sem við er að búast, því þar er skemmst yfir sundið. Bretar hafa ráðist með samskonar skothrið á herstöðvar Þjóðverja i Frakklandi. Langskaðvænlegastar liafa þó loftárásirnar verið. Þjóðverjar hófu árás á London í fyrsta sinn og var hún mjög hörð. Síðan hafa verið gerðar árásir á borgina hvað eftir annað. Ennfremur hefir verið ráðist á fjölda borga í Suður-Englandi og víðar. Bretar hafa einnig gert loftárásir á fjölda þýzkra borga. Sagt er að Þjóðverjar hafi beitt nýjum sprengivélum og líka sprengjum af annari gerð en áður. En annars er erfitt að fá upplýsingar um hve miklu tjóni þessar árásir hafa valdið, því frásagnirnar eru svo sund- urleitar. Þó er það víst, að til dæmis varð herskipahöfnin í Portsmouth fyrir miklum skemmdum. Nú er því ófriðurinn að ná hámarki sínu, og er víst til- gangslaust að reyna að miðla málum. Vopnin verða að skera úr. I # Hve lengi getur ófriðurinn staðið yfir? Menn hafa yfirleitt búizt við því, að hann mundi enda í sumar eða haust. Hvor- ugir muni treysta sér til þess að leggja út í nýja vetrarstyrj- öld, enda mun alþýðan i ófrið- arlöndunum þegar eiga við miklar þrengingar að búa, en það hefir oft sýnt sig i ófriði, að þjóðirnar hafa til að bera þá sjálfsafneitun og þrautseigju sem fáum mundi hafa komið til hugar á friðartímum. Enda þótt ófriðarþjóðirnar verði harðast úti, þá munu þó flestar þjóðir heimsins þjást meira eða minna af völdum stríðsins. Það er liinn hræðilegi sjúkdómur, sem alla kvelur og ógnar menningu heimsins með eyðileggingu. Þetta er því ægi- legra, sem tilefni stríðsins var í upphafi lítilfjörlegt, og lítt skilj- anlegt, hvernig stóð á því, að ráðamenn Norðurálfurikjann'a skyldu steypa heiminum í þessa styrjöld út af ekki stórvægilegri atriðum, en þá var deilt um. Það hefði þó mátt ætla, að mannkynið hefði lært eitthvað á hörmungum heimsstyrjaldar- innar 1914—18, en í þessum efnum er það seint að læra en fljótt að gleyma. Þaðan stafar hin mikla óhamingja þess í eld- raun þeirri, er það verður nú að þola. Frá Miðjarðarhafi. Enda þótt athygli manna beinist mest að viðburðum þeim, sem eru að gerast við Ermarsund, þá eru viðskipti Breta og Itala í Miðjarðarhafi og nágren'ni þess ekki síður at- hyglisverð. Þarna er einn mik- ilvægasti, en jafnframt veikasti liðurinn í breska heimsveldinu. Bretar eiga svo mikið undir frjálsum siglingum um Mið- jarðarhaf, að varla er hægt að sjá, að þeir geti staðist án þeirra. Hin mikla verzlun þeirra við Indland gengur um það haf, og að því liggur Egiptaland, en þaðan fá Bretar bómullina, sem er undirstaðan undir einni stærstu iðnaðar- grein þeirra. Varnir Breta eru ekki eins miklar og ætla mætti. Þær eru aðallega á fórum stöðum: Gi- braltar á suðurodda Spánar, Malta, Haifa í Sýrlandi og Alex- andriu. — Þessar borgir voru allar góðar herskipahafnir fyr- ir nokkum árurn, en sprengju- flugvélar og önnur tækni nú- tímans hafa breytt þessu öllu. Nú gera ítalskar flugvélar hverja árásina á fætur annari á Gibraltar, sem liingað til hefir verið kölluð borgin óvinnandi. Það má nú reyndar sega, að þessar árásir Itala hafi ekki borið mikinn árangur enn sem lcomið er, og allar hafnirnar I iii kjöt§öln. Jón Ó. Stefánsson í Vatns- holti hefir í 15. tbl. „Framsókn- ar“ þ. á. ritað skarplega grein um kjötsölumálið. Beinir hann orðum sínum einkum að víta- verðri aðferð löggjafans og kjötsölunefndar í verðlagning kjötsins undanfarið. í sambandi við það segir Jón: „Á meðan kjötsalan var frjáls og í höndum kaupfélaga og samvinnufélaga, þá var venj- an sú, að framleiðendur fengu hæsta verð, sem fáanlegt var. Félögin leituðust við af ítrasta megni að fá sem hæst verð, og láta hvern og einn fá sann- virði.“ Þetta mun fara nokkuð á eru enn í höndum Breta. En engu að síður liafa þær verið mjög hættulegar. Nú er það talið sennilegt, að Italir muni hefja stórfelda árás á Egiptaland á næstunni, en hvernig henni mun verða hag- að er óvíst. Um sjóhernað eða flutninga á lier yfir sjó er varla að tala, því þar ráða Bretar, en liinsvegar hafa ítalir vafalaust mikinn her í Tripölis (Lybiu), en liversu vel hann er útbúinn vita menn ekki. Hér er að sækja yfir vatnslausa eyðimörk, svo mikil þörf er á góðum útbúnaði. I Somalilandi fóru leikar þannig, að Bretar drógu her sinn, sem varla var meira en nokkur hundruð manna, heim, og létu ítali fá landið til yfir- ráða. Þetta hefir sennilega enga eða litla hagnýta þýðingu, en nokkur álitshnekkir er það fyr- ir Breta. Þá hafa ítalir hafið deilu við Grikki, og er ekki annað sjáan- legt, en að til ófriðar muni koma. Er þetta all undarlegt, því ekki verður séð, að Grikkir hafi gert Itölum neitt til miska, en það sýnist vera stefna Mussolinis, að ná yfirráðum yf- ir þeim hluta Balkanskaga, sem ekki er háður Bússum eða Þóðverjum. Tyrkir eru ennþá utan við styrjöldina og reyna að haga seglum eftir vindi, hve lengi sem þeim tekst það. Ungverjar hafa enn hert á kröfum sínum til Búmena. Er fuH ástæða til þess að óttast, að þar sé að brjótast út enn ein styrjöld. milli mála. Haustið 1930 lækk- aði S. I. S. og K. E. A. — sem mestu eða öllu réðu um verð- lagið — dilkakjötið alveg stór- kostlega á innlendum markaði, án þess að þess hefði þurft. Fjöldi innlendra kaupenda voru þá undrandi yfir því, hvað kjötið var komið í lágt verð. Út- söluverðið hjá K. E. A. var þá 70 aura kg. eða rétt um 50% af framleiðslukostnaðarverði því, sem bændur þurftu þó að fá minnst, til þess að sauðfjár- búskapur bæri sig sæmilega í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl- um. Næstu 2 ár fór svo verðið enn lækkandi og haustið 1932 fengu bændur 7—10 krónur að jafn- aði fyrir dilka sína hár um slóð- ir. En framleiðslukostnaðar- verðið var það ár um 24 krón- ur á dilk. Þessi ráðstöfun Samvinnu- fél. til lækkunar á kjötinu haustið 1930 kom til af því, að forráðamennirnir voru of þröngsýnir í málinu og litu al- gerlega framhjá þeirri skyldu, að taka tillit til framleiðend- anna, hafa hugmynd um fram- leiðslukostnaðinn og skilja það að þetta var tilræði við bænd- ur, sem þessir forráðamenn höfðu þó skuldbundið sig til að vinna fyrir, og það því skylda þeirra, að halda taum bænda í verðlagsbaráttunni milli stétt- anna. Á aðalfundi K. Þ. 1933 las formaður félagsins upp bréf frá Jóni Árnasyni í S. I. S., þar sem bann tjáir fundarmönnum, að enn beri að lækka áætlunarverð dilkakjöts niður í 40 aura á kg., en það var nálægt 100 aurum lægra heldur en tilkostnaðar- verð bænda var þá, en það var um 140 aurar á kg. Á þessum sama fundi hóf eg máls á því, að þetta verðlag mundi á skömmum tíma kollvarpa land- búnaði Þingeyinga og annarra sauðfjárbænda; bændur yrði að gera kröfur til þess, að fá fram- leiðslukostnaðarverð á innlend- um markaði fyrir dilkakjöt sitt, eða það verð, sem sam- svaraði öðru verðlagi í landinu. Sömuleiðis lagði eg til að fund- urinn kysi 5 manna nefnd til að vinna fyrir málið og það var gert. Stjórn búnaðtrsambands sýslunnar tók líka málið að sér og lagði mikla vinnu í það, að leita eftir því, livað væri hið raunverulega framleiðsluverð dilkakjötsins í Suður-Þingeyjar- sýslu. Niðurstaðan varð sú, að það verð væri 140 aurar á ldló. Voru síðan haldnir fundir um allt héraðið. Á þeim fundum mætti maður frá K. Þ. og ann- ar frá búnaðarsambandi héraðs- ins. Fjölmenntu bændur mjög á þessa fundi og stóðu sem einn maður um það, að krefjast til- kostnaðarverðs fyrir dilkakjöt- ið á innlendum markaði, eða þess verðs er væri í samræmi við annað innlent verðlag. Kröfum þessum var beint til S. I. S. og varð það úr, að S. I. S. hélt aukafund um málið vetur- inn 1934. Þarf svo ekki að rekja þessa sögu lengur. Þetta varð til bóta, en bændur eru ekki enn farnir að fá sannvirði fyrir kjötið á innlendum markaði, eða það framleiðsluverð, sem annað verðlag i landinu á mik- inn þátt í að skapa. , Jónas frá Hriflu, sem alltaf hafði verið í liði verkamanna í verðlagsbaráttunni, varð dálítið hvumsa við þessum kröfum frá bændum og brá þeim um bar- lóm, en sneri þó við blaðinu á þá lund, að þakka fyrir bænd- anna hönd, Jóni Árnasyni fyr- ir þetta rót á málinu. Nú getur Jón í Vatnsholti tek- ið við og talað við kjötverðlags- nefndina. Laxamýri 23. júlí 1940. Jón H. Þorbergsson. Bílaumferð á nokkrum Vegum. Langfjölfarnásti bílvegur íandsins er vegúrinn ur Reykja- vík inn fyrir EUiðaárnar, þang- að sem skiptist SuðUrlándsveg- urinn og Norðurlands- og Þing- vallavegurinn. Táldir hafa verið mest 2000 bílar er farið hafa á enum degi yfir Eilliðaárbrýrn- j ar. — Auk þess er mikil bíla- umferð innanbæjar í Reykjavík ; á Elliðaárveginum. Til marks ufa umferðina á Suðurlandsveginum er það, að mánuðina maí—sept. árið 1937 voru taldar 17200 bílferðir yfir Ölfusárbrúna. Undanfarin þrjú sumur (1937—1939) hafa verið rúml. 2000 bílaferðir yfir Holtavörðu- heiði og nokkrar fleiri bílferðir fyrir Hvalfjörð. Yfir öxnadalsheiði hafa far- ið 1200—1500 bílaferðir þrjú undanfarin sumur, eii um 1100 yfir Vatnsskarð og um' 800 yfir‘ Bröttubrekku.'

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.