Framsókn : bændablað - samvinnublað - 24.08.1940, Qupperneq 2

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 24.08.1940, Qupperneq 2
FRAMSÓKN Ágúst H. Bjarnason 65 ára. Ágúst H. Bjarnason prófessor varð 65 ára þann 20. þ. m. og héldu ýmsir vinir hans og læri- sveinar honum virðulegt sam- sæti. — Hann getur litið yfir mikið æfistarf, meira en al- mennt gerizt. Öll þjóðin þekkir afköst hans sem rithöfundar, en hins má ekki síður geta, að hann er einn hinn duglegasti og ötulasti kennari, sem vér eig- um. Það dugar ekki fyrir læri- sveina hans að vera með neinn slæpingsskap. Þeir eiga að læra og verða að læra. Prófessor Ágúst hefir verið hamingjumaður mikill í lífinu. Hann hefir líka hlotið það starf, sem honum mun hafa verið kærast: Að verja æfinni til þess að fræða og mennta þjóð sína. Hann hefir kennt við Háskólann frá stofnun hans 1911, og er hinn eini kennari, sem hefir starfað þar allan þann tíma. — Bækur hans hafa fengið þá út- breiðslu, sem öllum er kunnugt. Mun þó ekki hafa verið vanda- laust að skrifa um heimspeki á islenzka tungu, því málið er lítt tamið í þjónustu þeirrar vís- indagreinar. Sextíu og fimm ár er tals- verður aldur, en Ágúst ber árin vel og á vonandi eftir að starfa I eigin vasa I. Á það hefir verið bent nýlega hér í blaðinu, hversu ört hafa vaxið, einkum hin síðai'i árin, fjárkröfurnar til opinberra þarfa. Hafa sérstaklega verið teknar til dæmis fjárkröfur rikissjóðsins og fjárkröfur Reykjavíkurborgar. Eflaust er sömu sögu að segja í mörgum sveitar- og bæjarfélögum. F}"rir almenningssjónum eru fjárkröfurnar á hendur lands- manna til opinberra þarfa komnar fram vfir gjaldþol at- vinnulífsins í landinu. Jafnvel þeir, sem fyrir fjárkröfunum standa sjá það og viðurkenna, en knýja þó kröfurnar hærra og hærra eftir sem áður. Það lítur út eins og umráðin í þess- um efnum sé í óvitahöndum. Sé á þetta bent, eða að því fundið, þá er tíðast, að goldið sé aðeins skömm og skætingur á móti. Mörgum er það hulin ráð- gáta, hvað því veldur að hin opinbera fjárstjórn virðist vera allri dómgreind og ráðdeild sneydd. Vafalaust á það þó sín- ar orsakir, sem hvað eina ann- að. Það liggur því nærri að skyggnast um, hvað valda muni. II. Öllum getur komið saman um, að aldrei er hörgull á þörf- um til útgjalda, meir og minna nauðsynlegum og gagnlegum. mörg ár enn við Háskólann. Hann ætti nú reyndar að fara frá embætti vegna aldurs, sam- kvæmt reglum þeim, sem ný- lega hafa verið settar, en sam- kennarar hans liafa eindregið roælst til þess, að hann gegndi kennslu áfram, og má telja víst að það verði. Hafi prófessor Ágúst beztu þökk fyrir mikið og vel unnið starf. eða annara? Hitt er svo annað mál, hver ráð og möguleikar eru til að afla fjárins til þeirra. Það er heimtað af hverjum einstalding, sem með fjármál fer, enda líka réttmætt og full nauðsyn, að hann leyfi sér ekki meiri útgjöld en hann er fær um að afla fjár til. Þetta er eitt af einföldustu og mikilsverðustu lögmálum allra fjármálalegra viðskifta, og er ekki unnt að brjóta, nema ver fari. Þarf það ekki skýringa við. Opinher fjármál eru þar engin undantekning. En tvennt er til um það, hvert er viðhorfið til að afla fjárins til útgjaldanna. Annað viðhorfið er það, að afla fjárins með eigin framtaki og forsjá og á eigin ábyrgð. Það er hið venjulegasta viðhorf ein- staklingsins. Hitt viðhorfið til fjáröflunar- innar til útgjaldanna er það, að heimta féð af öðrum. Það er viðhorf þurfamannsins, sem annaðhvort er ekki fær um að afla fjár til eigin þarfa (af hverjum ástæðum, sem það er) eðá sem hefir varpað fyrir borð öllum metnaði til sjálfbjargar og heimtar framfæri sitt af öðr- um. „Hið opinbera“ hefir aðstöðu þurfamannsins, sem, heimtar allt af öðrum og vill ekki láta sig neitt skorta. Það hefir þá aðstöðuna til fjáröflunar aðeins að rétta hönd í annarra vasa. Eins og hin dapurlega að- staða þurfamannsins sljóvgar smátt og smátt metnað og „moral“ hans til sjálfsbjargar, eins vinnur hin hæga aðstaða foráðamanna opinberu fjár- málanna að því, að sljóvga til- svarandi eiginleika þeirra. Rök- rétt hugsun og heilbrigð dóm- greind sljóvgast og heimtu- frekjan vex að sama skapi. Myndi það ekki vera megin- ástæðan til þess óvits og á- byrgðarleysis, sem orðin er ríkjandi í viðskiftum opinberra fjármála við almenning? * ------—B»—------------ Á víð og dreif. Gærumagn og gæruverð í fyrra og verðuppbót á gærum. Talið er að gærumagnið, sem til sölu kom í fyrrahaust hafi verið 1600 smál. (1,6 milj. kg.) og að meðalverðið, sem fyrir þær fékkst, hafi verið um ,kr. 3,50 hvert kílógramm. Hafa gærurnar þá orðið að verð- magni alls um 5,6 millj. króna. Morgunblaðið hefir það eft- ir atvinnnumálaráðheri’a, að greiða eigi til framleiðenda 700 —800 þús. krónur í verðuppbót af sölunni til Þýzkalands. — Bændur, sem skipt hafa við kaupfélög munu fá þessa vei’ð- uppbót á venjulegan hátt, en hinir, sem selt hafa gærur öðr- um, munu þá eiga að vitja upp- bótarinnar hver til síns við- skiptaaðila. Stór sauðbú. Eftir frásögn Skúla læknis Árnasonar í Morgunblaðinu 16. þ. m. átti faðir hans, Árni sýslu- maður Gíslason 1800 sauðfjár haustið 1880, síðasta haustið, sem hann bjó á Kirkjubæjar- klaustri. Hann liafði þá undir til búskapar Holt á Síðu og var um þær mundir fjárflesti fi-am- teljandi á landinu. Hann flutti þá til Krýsuvíkur og rak þar einnig stórfeldan sauðfjárbú- skap. Flutti hann þangað um 1500 fjár. Einhver fjárflesti bóndi nú á dögum mun vera Metúsalem J. Kjerúlf bóndi á Hrafnkelsstöð- um í Fljótsdal. Þar er á fjalli nú í sumar hátt á 15. hundrað sauðfjár. Munu börn hans upp- ; komin, sem heima eru, þó eiga ! nokkra ítölu í þessum fjár- stofni. , Fróðlegt væri að fá að vita, ! ef einhverjir af lesendum hlaðs- ins vita af fjárfleii’a sauðbúi. : Smásöluverð í Reykjavík. í júnímánuði hækkuðu 3 | matvöruflokkar í verði (Feit- | meti, mjólk og egg, fiskur), 2 | lækkuðu (kornvörur (ofurlít- ið), kjöt og slátur) og 4 stóðu | í stað (brauð, garðávextir og aldini, sykur, kaffi o. fl.). Elds- neyti og ljósmeti var óbreytt. Fatnaður hækkaði lítilsháttar. (Eftir Hagtíð.) Afstaða bankanna gegn útlöndum fer batnandi. j í maílok skulduðu þeir (um- | fi-am innstæður) rúmlega 8 | millj. króna, en i júnílok tæp- ! lega 3V2 millj. króna. Er það ! rúmlega 13 millj. króna minna ' en á sama tíma í fyrra. (Eftir Hagtíð.) I Bifreiðar 1939. Samkv. upplýsingum vega- I málaskrifstofunnar var tala í bifreiða á landinu 1. júlí 1939 | þessi: ; Fólksbifreiðar samtals . . 936 Vörubifreiðar — .. 1112 Hafði bifreiðum fjölgað um 9 frá næsta ári á undan. Af fólksbifreiðunum voru 139 almenningsbifreiðar með fleiri en 6 sætum. Fróðlegt væri að vita, hvað rekstur allra þessara bifreiða hefir kostað. ----- —B——.............— ORÐSENDING Beinið viðskiftum yðar að öðru jöfnu til þeirra, sem auglýsa í blaðinu. LAND OG ÞJÓÐ Ragnar Ásgeirsson: FRÁ LÓN8HEIÐI AÐ LÓMAGNÚP. Framh. Þamx 12. áttum við Gunnar . náðugan dag, hann þurfti að- eins að halda eitt erindi, en eg slapp alveg og þótti *gott að mega vera áheyrandi. í okkar stað voru það sýslubúar, sem höfðu orðið. Sigurður Jónsson hóndi á Stafafelli flutti erindi um „Bændur og búnaðarþing“, og var það fróðlegt og vakti til umhugsunar. Því næst talaði hinn aldraði héraðshöfðingi Þorleifur í Hólum uin Austur- Skaftafellssýslu, ágætt erindi, sem okkur aðkomumönnum þótti fengur í að fá að lilýða á. Þorleifur heldur sér vel, þó hann sé rneir en hálf áttræður og hafi haft hreppstjórn á hendi í 49)4 ár. Munu þeir vera fáir, sem gegnt hafa hreppstjóra- störfum í liálfa öld. Þriðji ræðumaður var Hákon Finnsson í Borgum. Ræddi hann um kartöfluverðið uirdan- farin ár, af sinni alkunnu vis- indalegu nákvæmni. Hýgg eg að Hákon í Borgum eigi engan sinn líka í bændastétt. Og hann var fyrsti maðurinn á þessum slóðum, sem byrjaði garðrælct í stórum stíl, gulrófna- og kart- öflurækt. En síðan eru Austur- Skaftfellingar orðnir mestu kartöfluræktarmenn landsins. Þegar við vorum þarna á ferð var talið að í sýslunni væru um 5 þúsund tunnur af kartöflum í geymslum bænda og báru menn eðlilega allmikinn kvíða fyrir.að þær myndu ekki selj- ast, þar sem miklar birgðir voru allstaðar í landinu. En nú mun hafa ræst úr því. Er þarna víða um samfelda kartöfluakra að ræða, sem nema sumir fleiri dagsláttum. Löndin virðast sér- lega vel til kartöfluræktar fall- in, bæði hvað legu og landgæði snertir, og á þau rýkur leir úr fljótsfarvegum, sem frjófgar og bætir þau. Þarna er gaman að fara um á sumardegi og sjá akrana, sem eru viða svo vel hirtir, að illgresi sést ekki — þó hins megi líka finna dæmi, að menn taka meira fyrir en hægt er að hirða vel um. Mætti telja marga bæi þar sem rækt- aðar eru 2—300 tn. Þessa 3 daga, sem bænda- námsskeiðið stóð í Nesjum, dró Hákon í Borgum fána við hún á hverjum degi, og ekki einn heldur tvo. Annar var hinn lög- skipaði íslenzki fáni, en hinn einkafáni Hákonar sjálfs. Efsti þriðji hlutinn blár, um miðjuna livítur og neðsti þriðjungurinn grænn. Eg spurði Hákon, er eg kom til lians, hvað þessir litir tákuðu. „Himininn, jökulinn, jörðina“, svaraði hann. Og frá svölunum á þaki bæjarins í Borgum leit eg til norðurs blá- an himin, hvítan jökul og gras- lendið í hyggðinni. I sannleika er þessi þríliti fáni táknrænn fvrir þessa sýslu. Hákon er bóndi og bundinn föstum bönd- um við jörðina, en hugur hans flýgur hátt og víða. Á bændanámskeiðunum er jafnan ætlast til þess, að inn- ansveitarmenn leggi til einhver erindi. En oft vill það farast fyrir. Það er sjaldgæft að fá 3 erindi slík sama daginn. — Um kvöldið hélt eg svo aftur út á Höfn til gistingar. Þriðja daginn var lang fjöl- mennast við kirkjuna, alls um 190 manns, þar af um 70 kon- ur. Var nú þröng mikil í hinu litla fundarhúsi, sem er orðið með öllu ófullnægjandi fyrir liina fjölmennu sveit. Þeir Nesjamenn voru óheppnir að vera ekki búnir að koma sér upp nýju fundarhúsi fyrir stríðsbyrjun. — Samkomurnar verða betri ef húsakostur er nægur. Það væri verkefni fyrir húsameistara okkar að gera uppdrætti að hentugum fund- arhúsum til sveita. Að loknum erindum og um- ræðum, var svo haldin skemt- un til ágóða fyrir Finnlandsfjár- söfnunina. Þar söng Karlakór Hornafjarðar undir stjórn Bjarna bónda í Brattagerði og Gunnar Bjarnason sagði frá ferð sinni um Finnland síðast- liðið sumar og skemti fólk sér vel við hvorttveggja. Fleira var þar til skemtunar og síðan dans- að til 4. Svo liðið var undir morgun áður en eg komst í ból- ið mitt út á Höfn. Eg lief komið alloft í kirkjukjallarann við Laxárbrú og man þaðan marga skemtilega stund, allt frá því er Jón í Volaseli „presenteraði“ mig fyrir Hornfirðingum í fyrsta sinn veturinn 1929 — og gerði það svo eftirminnilega, að eg hefi ekki gleymt ræðu hans enn. En ekki skal hún þrykkj- ast hér. Laxá er ein af þessum ám, sem bognar undan nafninu. Þar liefir enginn lax sést í langa tíma. En fyrir skömmu voru laxseyði þangað flutt og hver veit nema heiti árinnar verði réttnefni á ný. Brúin yfir Laxá er úr járni og er smíðuð 1910. Við brúar- smíðina var meðal annara Ey- mundur í Dilksnesi. Hann var járnsmiður ágætur og hafði lært ytra, sem var sjaldgæft á hans tímum. Eymundi gekk illa

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.