Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Qupperneq 2

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Qupperneq 2
FRAMSÓKN Þorleifur barðist við Sturlu í Bæ og beið ósigur. Varð hann að fara til Noregs og fór Snorri með honum, því hann mun engrar uppreisnar hafa vænt sér gegn Sturlu. Sturlunga og Hákonarsaga segja ekki mikið frá dvöl Snorra í Noregi. Þó virðist honum hafa verið vel tekið. Hann var i Nið- arósi með Skúla hertoga vetur- inn 1238—9, en þá var að hefj- ast fjandskapurinn með kon- ungi og jarli. Ekki er getið um viðskipti konungs og Snorra. Sturlunga segir á þessa leið frá útför Snorra sumarið 1239. „Snorri og Þorleifur fengu sér skip og bjuggu það til ís- lands með ráði hertogans. En er þeir voru búnjr og höfðu lagt út undir Hólm, komu menn sunnan frá konungs með bréf- um, og stóð þar á, að Hákon konungur bannaði þeim öllum Islendingum, að fara út á því sumri. Þeir sýndu Snorra bréf- in og svarar hann svo: „IJt vil ek.“ Þá er þeir voru búnir, hafði hertoginn þá í boði sínu, áður þeir tóku orlof. Voru þá fáir menn við tal þeirra liertogans og Snorra.“ Sögn er um að her- toginn hafi gefið Snorrra jarls- nafn, en ekki ern sönnur til fyrir því. Snorri, sem var lend- ur maður konungs, fór þannig út í óleyfi hans, og sjálfsagt hef- ir Hákon grnnað hann um að vera hliðhollan Skúla hertoga, og réð hann því af að ná Snorra á sitt vald, eða láta drepa liann að öðrum kosti. Snorri settist að eignum sín- um og ríkjum er hann kom út, en hafði sig annars lít í frammi. 1241 andaðist Hallveig Orms- dóttir og varð Snorri ósáttur við syni hennar um arfinn. Fégirnin var enn hin sama. Þeir leituðu aðstoðar lijá Gissuri Þorvalds- syni föðurbróður sínum og tók hann vel undir þeirra mál. Hann hafði áður verið tengda- sonur Snorra. Aðdragandinn að vigi Snorra er nokkuð óljós. Gissur lagði fram bréf konungs um að hann skyldi láta Snorra fara utan, eða drepa hann að öðrum kosti fyrir það að hann hafði farið út í banni konungs. Þó varð dráttur á framkvæmdum Giss- urar og er eins og hann hafi ver- ið óráðinn í því hvað hann skyldi gera. En um sumarið 1241 fundust þeir Gissuv og Kolbeinn ungi á Kili, og þar mun dauðadómur Snorra hafa verið felldur. Það er mjög lík- legt eftir annari framkomu Kolbeins, að hann hafi kvatt Gissur til þess að drepa Snorra fremur, en að reka hann utan. Gissur þóttist nú allt í einu vera orðinn ákafur vinur kon- ungs, en ekki er fyr getið um þeirra vináttu. Það hefði einnig verið auðvelt fyrir Gissur og Kolbein að senda Snorra á kon- ungsfund, annaðhvort með góðu eða illu. Frásögn Sturlungu um víg Snorra er á þessa leið: „Gizur kom í Reykholt um nóttina eftir Máritíusmessu. — Brutu þeir upp skemmuna, er Snorri svaf i, en hann hljóp upþ og úr skemmunni og í hin litlu húsin, er voru við skemmuna. Fann hann þar Arnbjörn prest er talaði við hann. Réðu þeir það, að Snorri gekk í kjallar- ann, er var undir loftinu þar i húsunum. Þeir Gizur fóru að leita Snorra um húsin. Þá fann Gizur Arnbjörn prest og spurði, hvar Snorri væri. Hann kvaðst eigi vita. Gizur kvað þá eigi sættast mega, ef þeir fyndist eigi. Prestur kvað vera mega, að liann fyndist, ef honum væri griðum heitið. Eftir það urðu þeir varir við, hvar Snorri var, og gengu þeir i kjallarann, Markús Marðarson, Símon knútur, Árni beiskur, Þorsteinn Guðinason, Þórarinn Ásgríms- son. Símon knútur bað Árna höggva hann. „Eigi skal höggva“, sagði Snorri. „Högg þú“, sagði Símon. „Eigi skal höggva“, sagði Snorri. Eftir það veitti Árni honum banasár, og báðir þeir Þorsteinn unnu á honum.“ Þannig lauk æfi vors fræg- asta manns. Dauðdaginn var ekki glæsilegur. Snorri fékk ekki að falla í orustu eftir drengilega vörn eins og svo margir frændur hans. Fullur friður var i landinu og Snorri átti í engum sökum við Gissur þegar ráðist var að honum og hann myrtur á næturþeli. Og það sem sorglegast er, þeir menn, sem bjuggu honum banaráð, hafa allir verið tengd- ir honum áður. II. Þess var áður getið, að frægð Snorra hvildi á ritverkum hans. Vér höfum enn til tvö verk hans, Eddu og Heimskringlu. Kenn- ingin um að hann sé einnig höfundur Egils sögu skal hér látin liggja milli hluta. Þá er fyrst að nefna Eddu, eitt hið einkennilegasta ritverk á vorri tungu. Kennslubók í skáldskap eins og höfundur sjálfur segir, en hún er miklu meira, vegna þess að ekki var unnt að nota kenningarnar nema vita deili á uppruna þeirra. Edda er þrískipt. Fyrst Gylfa- ginning, safn af fornum goð- sögnum, sem dregið er saman til þess að skýra kenningarnar. En með því hefir Snorri gefið oss yfirlit vfir hina heiðnu goð- fræði, og það meira en tveim- ur öldum eftir að lieiðnin leið undir lok. Annar kaflinn er Skáldskap- armál, og er það meginhluti Eddu. Þar sýnir Snorri hvernig skáldin hafi kveðið og hverjar og hvernig kenningar megi nota. Hann nefnir þar alls um 60 skáld, sem sum þekkjast ekki af öðrum heimildum. Má af þessu sjá hinn yfirgripsmikla lærdóm hans á þessu sviði. Háttatal er þriðji hluti Eddu. Það er kvæði um þá Skúla jarl og Hákon konung. Það er hundrað og tvær vísur og er kveðið með öllum þeim bragarháttum, sem þá voru kunnir, eða svo mun Snorri bafa til ætlast. Eru margir þeirra hinar mestu bragþrautir, en hvergi virðast þeir vera höf- undinum ofurefli. Hin forni norræni kveðskap- ur gerði afarstrangar kröfur til formsins, og bragþrautir og dýrir hættir voru skáldunum til hinnar mestu frægðar. Snorri finnur líka til þess hvílíkt verk hann hefir leyst af hendi, eins og kemur fram í 100. vísunni. Glöggva grein hef eg gjört til bragar, svo er liundrað tírætt talið, liróðurs örverður skala maður heitinn vera, ef svo fær alla háttu ort. Siá maður, sem getur kveðið visu með öllum þessum háttum á sannarlega skilið að heita skáld, að dómi Snorra. III. Heimskringla er mesta og merkilegasta rit Snorra. Er það saga Noregskonunga og liefst með sögu forfeðra Haralds hár- fagra, Ynglingasögu, og er hún samin eftir kvæði Þjóðólfs úr Hvini um Ynglinga. Snorri notar mjög kvæðin sem heim- ildir, og segir i formála Heims- kringlu „kvæðin þykja mér sízt úr stað færð, ef þau eru rétt kveðin og' skynsanilega upp tekin“ og skýrir hann þar hví hann telji þau sérstaklega góðar heimildir. Á eftir Ynglingasögu kemur svo saga Hálfdánar svarta og annara Noregskon- unga hver af annari, allt til falls Eysteins konungs meylu 1177. Þar tók við Sverris saga er áður var rituð. Saga Ólafs helga tekur upp undarlega mikinn liluta af Heimskringlu, og það er ekld vegna þess að Snorri hafi verið svo sérstaklega trúaður. Hann tekur að vísú upp ýmsar helgi- sögur um Ólaf, en hann dregur alls ekki fjöður yfir galla kon- ungs og segir glöggt frá hryðju- verkum hans. Nú er því lialdið fram, að Snorri hafi fyrst ritað Ólafs sögu sem sjálfstæða bók, en hafi seinna hætt framan og aftan við hana. Sagnaritun var hafin hér á landi fyrir daga Snorra. Enn eru til Noregskonunga sögur sem eru eldri en Heimskringla. Má nefna ágrip af Noregskonunga sögum, Ólafs sögu Tryggvason- ar eftir Odd munk Snorrason, Sverris sögu Karls ábóta Jóns- sonar, Morkinskinnu, Fagur- skinnu, Ólafs sögu helga hina elztu o. fl. Aðrar eru aftur glat- aðar. Þessar sögur hefir Snorri haft milli handa og unnið úr þeim, mörgum að minnsta kosti. Snorri vitnar sjálfur í Hryggjarstykki eftir Eirík Oddsson, og hefir hann notað þá bók. Sagnaritun Snorra ber langt af þeim ritum, er samin voru fyrir hans daga og enn eru-til. Þó má geta þess að í Morkin- skinnu eru snilldarlegir kaflar. Hann skrifar fyrstur manna á Norðurlöndum konungasögur eftir þeim kröfum, sem nútím- inn gerir til sagnaritunar. Hann notar heimildir sínar með djúpri gagnrýni. Hann vill ekki birta „vitnislaus fræði“, en um- fram allt leita sannleikans. Þess vegna hefir hann fátt af kynjasögum, sem annars er svo mikið af í fornbókmenntum vorum. Söguna um Finninn og landvætti Islands hefir hann tekið með, af þvi honum hefir þótt hún falleg, og ekki var hægt að komast lijá því, að rita eitt- hvað af helgisögum Ólafs kon- ungs eins römm og Ólafsdýrk- unin var í þá daga. Snorri hefir að vísu farið mikið eftir skrifuðum heimild- um, en hann lagfærir allt og færir til liins betra. Hann tengir sögur og þætti saman í eina heild og kemur eðlilegu skipu- lagi á röðun éfnisins. Saga kon- ungsættarinnar norsku, afkom- enda Haralds Iiárfagra er meg- inþátturinn og um hana vefjast svo ótal sögur og þættir, en aldrei er misst sjónar á aðal- atriðinu. Þá er enn eitt, sem ekki er hvað minnst virði. Á þeim tím- um er fræðimenn annara þjóða rituðu á latínu, samdi Snorri verk sín á móðurmáli sínu. Þýðing hans fyrir tungu vora er ómetanleg. Eins og Snorri fullnægir kröfum vorum til vísindalegrar sagnaritunar, eins fullnægir hann kröfum listarinnar. Aldrei hefir nokkur maður skrifað um Noregskonunga af jafnmikilli snilld og Snorri. Sumstaðar í Heimskringlu bregður hann upp myndum, sem eiga fáa sína líka í bókmenntum nokkurra þjóða. Má til dæmis nefna frá- sögnina um dauða Hákonar jarls, siglingu flota Ólafs Tryggvasonar fram hjá Svokl- ur, samanburð Halldórs Brynj- úlfssonar á Ólafi helga og Har- aldi harðráða, dauða Þormóðs Kolbrúnarskálds á Stiklastöð- um og mannjöfnuð Eysteins konungs og Sigurðar Jórsala- fara. Þessum viðburðum er lýst á eins „dramatískan“ liátt og í beztu leikritum. Þá eru mannlýsingar Snorra oft óviðjafnanlegaú. Ógleyman- leg er frásögnin um Finn Árna- son og Þóri hund á þinginu í Vogum eða um Kálf Árnason fyrir Stiklastaðaorustu og aftur för lians þangað með Magnúsi góða, eða um Þorgný lögmann á Uppsalaþingi. Enda þótt Ólafur helgi sé að- alsöguhetja Snorra, ef svo mætti að orði komast, þá eru það þó einmitt sumir andstæð- ingar konungs, er hann lýsir fegurst. Til dæmis Erlingur Skjálgsson. Óhlutdrægnin og sannleiksástin er ávalt hin sama. Hann viðurkennir hreysti og gáfur, hjá hverjum sem er, en eins og aðrir rithöfundar vorir í fornöld, þá ritar hann um höfðingja, og fyrir höfð- ingja. —o—- Vér þekkjum ekki fæðingar- dag Snorra og því er lians minnst á dánarafmæli hans. Það mun sumum kannske þjdcja óviðfeldið eins og dauða hans bar að. En vér skulum minnast þess, að þótt samtíðar- menn Snorra kynnu ekki að meta störf hans, þá hefir hann gefið íslenzkum bókmenntum dýrustu gjöfina, er þeim hefir hlotnast. H. H. Frá útlöndum. Stríðið í austri. Þjóðverjar hafa haldið uppi látlausri sókn á austurvígstöðv- unuin undanfarnar vikur, og bandamenn þeirra, Rúmenar, Ungverjar og þó einkum Finn- ar hafa veitt mikinn stuðning. Á norðurvígstöðvunum hafa Þjóðverjar umkringt Lenin- grad, að öllu leyti eða þvi sem næst. Standa hersveitir þeirra þegar við úthverfi borgarinnar, en Rússar verjast af kappi og þykjast munu verja hvert hús, svo Þjóðverjar geti ekki unnið borgina, nema að leggja hana algerlega í rústir. Má því búast við að enn verði barist lengi og af grimmd um Leningrad. * Þá hafa Finnar og Þjóðverjar einnig sóttt fram í áttina til Murmansk og reynt að eyði- leggja járnbrautina frá Lenin- grad. Ef þeim tekst að slíta samgöngur borgarinnar við Hvítahafið, versnar enn aðstaða Rússa. Rússar hafa gert allmikla sókn á miðvígstöðvunum ög hrakið Þjóðverja undan í áttina til Smolensk, sem nú er í rúst- um. Ekki er sjáanlegt að þessi sókn muni þó hafa nein veru- leg áhrif á gang stríðsins. Aðalsókn Þjóðverja hefir ver- ið á suðurvigstöðvunum. Þar hafa þeir unnið stórkostlega sigra, og er mikill hluti Ukraine nú á þeirra valdi. Þýzkur her ruddist austur yfir Dnjepr á mörgum stöðum og tók borgina Pultava og stefndi síðan til suð- urs. Annar her kom á móti að sunnan, og var borgin Kiev tek- in eftir harðar orustur. Er sagt að hin stóra og fagra borg sé nú að miklu leyti í rústum. Þjóðverjar segjast hafa um- kringt mikla rússneska heri fyrir austan Kiev, og muni þeir verað eyðilagðir með öllu inn- an skamms. Þá eru Þjóðverjar komnir að Asovhafi og er Krim- skaginn búinn að missa sam- band við meginlandið. Rússar hafa mikinn her á Krim og land- ið er fjöllóttt og vel fallið til varnar. Má þar búast við hörð- um átökum. Næst mun verða barist um Svartahaf. Þjóðverjar hafa náð fastri stöðu við hafið, en þeir hafa engan herskipaflota, en Rússar aftur á rnóti tvö eða þrjú stór herskip og mörg smærri. En búast má við, að Þjóðverjar komi sér upp flota kafbáta og smárra tundurskeytabáta og nái á þann hátt yfirráðum á Svarta- hafi. Hinir miklu yfirburðir Þjóðverja í lofti gætu lika senni- lega ráðið hér úrslitum. En þótt Þjóðverjar næðu yf- irráðum á Svartahafi, þá er þó enganveginn víst, að þeir muni vinna námuhéruðin í Kálcasus. Þangað er löng leið, og þau eru sjálfsagt vel varin. Síðustu fréttir herma að Eng- lendingar liafi sent mörg hundr- uð flugvéla og rnikinn herbúnað annan til Rússlands. Þessi hjálp kemur heldur seint, en fáum mun liafa komið til hugar, að sigrar Þjóðverja á austurvíg- stöðvunum yrðu svo miklir og nú er raun á orðin.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.