Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Side 3

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Side 3
FRAMSÖKN í Hagur S i S ogr kaup- féla-g'anna. í 6. hefti „Samvinnunnar.4 þ. á. er birt frásögn frá aðalfundi Sis er haldinn var á Akureyri 30. júni til 2. júlí s. 1. Er þar m. a. birtur Efnahags- og reksturs- reikningur Sambandsins fyrir árið 1940 og skýrt frá ráðstöfun aðalfundar á tekjuafgangi árs- ins. Vörusalan á árinu nam alls kr. 41779868.00 og skiptist þannig: Innflutnings- deildar .... kr. 18446110.00 iÚtflutnings . . — 17051041.00 Verksm. og annara fyrirt. — 5657244.00 Af þessari sölu var sala tá milli deilda og fyrirtækja Sam- bandsins og til eigin þarfa kr. 5374527.00, svo að nettósalan var kr. 35774868.00. Rekstursreikingur: Tekjur: T^kjur af vörusölu............................kr. 2283.565.17 Umboðsl. og afslættir..........................— 920.849.14 Gengishagnaður ...'•>..........................— 115.325.45 Aðrar tekjur..................................—- 308.815.72 kr. 3628.555.48 Gjöld: Framleiðslukostnaður..........................kr. 1413.145.75 Sölukostnaður .................................— 873.117.80 Funda- og stjórnar-kostnaður ..................— 28.865.40 Vextir.........................................— 192.146.38 Fræðslustarfsemi.............................. — 31.264.24 Skuldatöp og leiðréttinga .....................— 2.419.08 Opinber gjöld .................................— 261.057.20 Tekjuafgangur .................................— 826.539.63 kr. 3628.555.48 Tekjuafganginum kr. 863602,87 var ráðstafað þannig: Til Sambandsstofnsjóðs ....................— 276.763.20 — Verksmiðjustofnsjóðs ...................— 78.354.22 — Varasjóðs ..............................— 230.000.00 — Verksmiðjusjóðs ........................— 156.708.43 — Sjótryggingarsjóðs ....................— 36.000.00 — Menningarsjóðs ........................— 78.000.00 Yfirfært til n. á. ........................— 7.772.02 Töp höfðu orðið á Garna- hreinsunarstöð og Sokkaprjóna- stofu, samtals kr. 37063.25. Voru þau yfirfærð til reksturs- reikninga þessara fyrirtækja á yfirstandandi ári. Kom því þess- ari upphæð meira til ráðstöfun- ar. Sameignarsjóðir Sambands- ins námu í árslok 1940 kr. 2503098.82. Að viðbættum tillög- um ársins eru þeir orðnir rúm- ar 3 milljónir króna. Af þeirri npphæð nemur hinn alm. vara- sjóður rúml. 1.2 millj. Af öðr- um sameignasjóðum eru stærst- ir: Verksmiðjusjóður rúm 600 þús. kr., S j ótryggingarsj óður rúml. 437 þús. kr. og Menning- arsjóður rúml. 275 þús. kr. Hagur hinna einstöku félaga var í stórum dráttum þannig, að inneignir þeirra hjá Samband- inu voru samtals kr. 6142000. — En aftur voru önnur, er skulduðu samtals kr. 1901000.00 Framangreindar tölur úr fundarskýrslunni og reikning- um Sambandsins sýna það, að hagur þess stendur nú með miklum blóma, svo að ekki mun hafa betur verið í annan tima. Hinir ýmsu tryggingarsjóðir þess, svo og stofnsjóðir félags- deildanna vaxa ört með ári hverju og hafa náð mjög álit- legum upphæðum á okkar mæli- kvarða. Af viðskiptaj öfnuði félags- deildanna við Sambandið má einnig álykta, að hagur sumra þeirra stendur mjög vel en ann- ara miður. Mun mega gjöra ráð fyrir, að þau kaupfélögin, sem eiga innstæður hjá Sambandinu, skuldi ekki að mun annarsstað- ar. Hafa þau þá orðið meir en nægt stofnfé og rekstursfé. Aft- ur benda skuldirnar til hins gagnstæða hjá öðrum félags- deildum. Getur hagur þeirra samt verið góður, þó að á það skorti, að þau hafi eigin fé og frá félagsmönnum nægilegt til stofnfjár- og rekstursfjárþarfa. í samanburði við tekjurnar (kr. 3628555.48) er það geysi- upphæð (kr. 863602.87) sem ráðstafað er til sjóða, nær 14 partur (23.8%) þar af fara tæp- lega Vs til Sambandsstofnsjóðs og rúml. % til tryggingarsjóða Sambandsins ýmsra og fyrir- tækja þess, og nokkur upphæð yfirfærð til næsta árs. Það verð- ur að álíta, þegar hagur Sam- bandsins er jafn góður, sem raun er á, að vafasamt sé að leggja svo mikið fé til sjóða. Það verður auðvitað með engu móti öðru gert, en að leggja ríf- lega á vörurnar og láta félags- deildirnar og félagsmennina sjálfa legga féð þannig fram. Það á ekki að vera tilgangurinn að hafa þá að „féþúfu“ um nauðsyn fram. Það orð liggur nú á, að heildverzlanir og kaup- mannaverzlanir telji sér vel borgið um verðlag í skjóli Sis og kaupfélaganna, og nú síðast i skjóli þess hámarksverðs, sem hin stjórnskipaða verðlagsnefnd ákveður. Til marks um óþarflega háa álagningu Sis og óþarflega háa úthlutun til sjóða — Sambands- stofnsjóðs og eigin tryggingar- sjóða — má henda á það, að Sis verður nú á yfirstandandi ári að greiða rífl. 100 þús. krónur í „stríðsgróðaskatt“. Þetta hefir komið flatt upp á marga kaup- félagsmenn, þar sem Sis er ekki — eða þarf ekki að vera — ann- að en umboðsstofnun fyrir kaupfélögin. Þykir sem þessi mikla upphæð muni hljóta að stafa af því, að óþarflega mikil áherzla hafi verið lögð á, að geta haft hátt tillag til sjóða. Stríðs- gróðaskatturinn sé því að mestu leyti að óþörfu greiddur og væri betur kominn i vörslum félags- manna sjálfra. Frá annari hlið má einnig á þetta líta. Kaupfélögunum er að lögum skylt (og sama mun gilda um Sis) að leggja minnst 1% af samlagðrisölu aðkeyptra vara og afurða til varasjóðs og annara óskiptilegra sjóða. Yeltan, sem varasjóðstillagið myndi eiga að miðast við, var samkvæmt fundarskýrslunni kr. 35779868.- 00. Tillagið til hinna óskiptlegu sjóða hefði þvi eigi þurft að vera nema um 358 þús. krónur en var um 580 þús. krónur, eða um 228 þús. kr. umfram laga- nauðsyn. Nokkuð líkt má álykta um þau kaupfélögin, sem vel eru á veg komin með að safna rekst- ursfé (stofnsjóðum) og trygg- ingarfé (alm. varasjóði og öðr- um tryggingarsjóðum). Öll hafa kaupfélögin byrjað „með tvær hendur tómar“, stofnfjárlaus og rekstursfjárlaus. Þeim var því í upphafi brýn nauðsyn,. að afla sér f jár í hvortveggja þessu skyni, og að auki til tryggingar framtið sinni (varasj. og aðra tryggingarsjóði), sem og félags- mönnunum að styðja þessa fjár- öflun með ráðum og dáð. — Það varð með engu móti gert öðru en því, að leggja á vörurn- ar til þessara þarfa. Nú, er mörg félögin eru búin að afla sér nægilegs stofnfjár og reksturs- fjár, og safna álitlegum sjóðum til tryggingar framtíð sinni, þá ættu þau að ástunda að létta eft- ir föngum þessum byrðum af verðlaginu til hagsbóta fyrir fé- lagsmennina. Félögunum sjálf- um er engin nauðsyn á að vera auðstofnanir, enda ekki tilgang- ur þeirra. Niðurstaða þessara hugleið- inga er sú, að ekki einasta eigi kaupfélögin og sambandsfélag þeirra, að gæta hófs um álagn- ingu til sjóða, eftir að þau mega teljast fjárhagslega vel tryggð, heldur væri og athugaridi, hvort ekki ætti að fá breytt ákvæðum samvinnulaganna um tillög til sjóða (stofnsjóða og trygging- arsjóða) þannig, að þegar hin einstöku félög og sambandsfé- lag þeirra hefðu náð vissu til- teknu stigi um fjárhagslega nauðsyn og öryggi, mættu hin áskildu tillög til sjóða vera lægri. Kjötverðið til neyt- enda í haust. Hvað fá bændur? Kjötverðlagsnefnd hefir á- kveðið haustverðið á kinda- kjöti (frá 15. sept.) í lieildsölu þannig: 1. verðfl........kr. 3.20 kgr. 2. verðfl..........— 3.05 — 3. verðfl..........— 2.90 — Frá þessu verði má veita allt að 2% afslátt verzlunum og frystihúsum, sem kaupa 5000 kgr. i einu, eða meira. Verð- jöfnunargjald hefir og nefndin ákveðið 5 aura á kgr. Smásöluverð á súpukjöti hefir nefndin ákveðið kl. 3.65 hið hæsta, en læri og annað steikarkjöt má verðleggja eftir geðþótta að öðru leyti en því, ! að nefndin lætur á „þrykk út i ganga“, að liún leggi áherzlu á, 1 að smásöluálagning á hverjum j stað sé ekki hærri en nauðsyn I krefur og leggur fyrir trúnað- | armenn sína að fylgjast með því, j að ekki verði út af því brugðið. I (Eftir hverju eiga trúnaðar- | mennirnir að meta það?) —o— Nefndin er örugg í því að setja hámarksverð á kjötið gagnvart framleiðendum. Frá þvi verði til framleiðenda dregst fyrgreind- ur heildsöluafsláttur verðjöfn- unargjald og „skipulagskostn- aður“. Ólíklega ætti sá frádrátt- ur samlagt að nema meiru en 12 au. á kgr. Ættu framleiðend- ur þá að fá kr. 3.08, 2.93 og 2.78 fyrir hvert kílógramm. Væntan- lega þarf þó verðjöfnunar- gjaldið endanlega ekki að koma til frádráttaf, með þann mann- fjölda, sem nú er i landinu. Og þó eitthvað kynni að þurfa að flytja af kjöti til Bretlands þá hljóta Bretar að gefa fyrir það sambærilegt verð því sem nefndin hefir ákveðið, þvi ólíkt hærra verð mun verða skammt- að brezkum kjötframleiðend- um. Má þvi telja líklegt, og enda víst, að bændur fái verðjöfnun- argjaldið endurgreitt síðar. Það hefir verið venja nefnd- arinnar, að ákveða verðið hækkandi, er frá haustkauptíð líður. Verði svo enn, þá kynni einnig þannig að fást uppbót á það verð, sem greitt verður til bænda við afhendingu kjötsins. Athyglisvert er það, að kjöt- verðlagsnefndin skuli ekki hafa ákveðið hámarksálagningu á allt kjötið. Það gæti haft óhag- stæð áhrif á dýríðarvisitöluna, ef álagningin á steikarkjötið yrði hærri en nauðsynlegt er. Sama álagning er, að því er skilja verður, á alla lcjötflokk- ana. Súpukjötsálagningin á 1. fl. kjöt má telja að sé hófleg (um 18.3%), en rifleg á 2. fl. kjöt (um 24.6%) og einkum á 3. fl. kjöt (um 31%). — Ætla má að í hinum ákveðnu fyrir- mælum nefndarinnar um álagn- ingu á læri og steikarkjöt eigi að felast heimild til enn hærri álagningar, sú er a. m. k. venj- an, að steikarkjöt sé selt mikl- um mun hærra verði en súpu- kjöt. Það er rétt fyrir bændur að veita því fulla athygli, hvaða kjötverð þeim verður úthlutað í haustkauptíð, og hverjar verð- bætur þeir fá síðar. Geta þeir þá haft framangreindar tölur og áætlanir til hliðsjónar. Viðskiptin við útlönd. Innfluttar erlendar vörur í ágústmánuði námu að verði kr. 10.886.100.00 kr., en verð út- fluttra vara á sama tíma nam kr. 16.654.900.00. Alls nam verð innfluttra er- lendra vara til ágústmánaðar- loka kr. 7.0650.600.00, en verð útfluttra vara á sama tíma kr. 127.646.200.00. Reikningsjöfnuður bankanna við útlönd í júlílok var hag- stæður um rúmlega 1914 milj. króna og ætti þvi að vera að viðbættum ágústviðskiptun- um, hagstæður um nálægt 125 milj. króna. Tilkyniimg1 frá laiidbunaðarráðimeytiiiii. Hér með er skorað á alla þá, sem koma vilja til greina við úthlutun verðuppbótar á útfluttar landbúnaðaraf- urðir, framleiddar árið 1940, að senda landbúnaðar- ráðuneytinu fyrir 15. október n. k. staðfest eftirrit af farmskírteinum, er sanni útflutningsmagn þeirra af þeim vörutegundum, sem hér eru taldar: Ull, Bjórar, Silfurrefaskinn, Gærur, Garnir, Blá og hvit refaskinn, Kjöt, Ostur, Æðardúnn. Fylgja þarf vottorð matsmanna um að vörurnar séu framleiddar á árinu 1940. Þeir, sem eiga óseldar birgðir af fyrnefndum vöru- tegundum frá árinu 1940, sem ætlaðar eru til útflutn- ings, skulu fyrir sama tíma senda vottorð matsmanna um birgðirnar, með tilgreindu vörumagni, — eða aðrar sannanir, sem ráðuneytið metur gildar. Landbúnaðarráðuneytið, 19. sept. 1941. Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Briem. Afgr. í Austurstr. 12, uppi. Sími 2800. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.