Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2019, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 24.04.2019, Qupperneq 2
Veður Taka höndum saman Austan og suðaustan 5-13 í dag með vætu af og til, en þurrt á NA- og A-landi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast NA-lands. SJÁ SÍÐU 20 Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400 Grillbúðin Nr. 12952 - Án gashellu - Svart • Afl 10,5 KW Frá Þýskalandi SUMARDAGSTILBOÐ 63.900 FULLT VERÐ 79.900 Opið sumardaginn fyrsta 11-16 afslátt ur 20% • 3 brennarar • Brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • hitajöfnunarkerfi • Niðurfellanleg hliðarborð • Kveikja í öllum tökkum • Tvöfalt einangrað lok • Stór posulínshúðuð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Grillflötur 65 x 44 cm Sumardagstilboði lýkur 27. apríl Sendum frítt með Flytjanda Nánari upplýsingar á www. grillbudin.is DÓMSMÁL Karlmaður sem særði blygðunarsemi ungrar stúlku árið 2017 var dæmdur í tveggja ára skil- orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn sendi stúlkunni ljósmynd af fólki í kyn- ferðislegum athöfnum og klæmdist við hana í farsíma. Lögmaður stúlkunnar krafðist miskabóta upp á eina milljón króna, en þar sem sérfræðigögn lágu ekki fyrir um af leiðingar brotsins var honum gert að greiða stúlkunni 200 þúsund krónur, ásamt hálfri milljón í þóknun lögmanna. Maðurinn neitaði sök við þing- festingu málsins en játaði svo við þinghald í gær. Bað hann stúlkuna afsökunar á háttsemi sinni. Mat héraðsdómur það til refsiþyngingar að brotið hefði verið mjög gróft og maðurinn haft einbeittan brota- vilja. - ab Skilorð fyrir brot gegn stúlku Samstarf Íslands, Danmerkur og Noregs á sviði lyfjamála var staðfest í gær með undirritun samkomulags um samvinnu þjóðanna sem stuðla á að lægra lyfjaverði, auknu framboði lyfja og auðveldari innleiðingu nýrra lyfja. Á myndinni eru Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Eva Egesborg Hansen, sendiherra Dana, og Carina Ekornes, fulltrúi heilbrigðisráðherra Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ÍÞRÓTTIR Aðkoma sveitarfélaga að rafíþróttum mun efla starfið til muna segir Ólafur Hrafn Steinars- son, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands. Bæði Hafnarfjörður og Reykjavík hafa samþykkt tillögur um að styðja við rafíþróttadeildir innan íþróttafélaga. Í gær stofnaði KR lið. Þar keppa fjögur lið í Counter Strike og fjögur lið í League of Leg- ends á miðvikudögum, fimmtu- dögum og sunnudögum næstu níu vikurnar. Hægt verður að fylgjast með öllum leikjum í beinni á netinu. „Það eru þó nokkur íþróttafélög að skoða hvernig hægt er að koma á laggirnar rafíþróttastarfi. Hjá Fylki er nú þegar búið að stofna formlega rafíþróttadeild, nú hefur KR bæst í hóp þeirra sex, sjö liða, ótengdra íþróttafélögum, sem eru fyrir í Lenovo-deildinni,“ segir Ólafur Hrafn. FH, Fjölnir og Víkingur eru einnig að skoða möguleikann á að setja á laggirnar deildir og skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu við til- löguna í borgarstjórn. „Eftirspurnin frá samfélaginu, íþróttafélögum, for- eldrum og félagsmiðstöðvum, hefur komið okkur í opna skjöldu.“ Fræðsluráð Hafnarfjarðar sam- þykkti fyrr í þessum mánuði að vísa tillögu um rafíþróttir til frekari útfærslu. Í byrjun mánaðarins var samþykkt tillaga í borgarstjórn Reykjavíkur um að styðja íþrótta- félögin í Reykjavík við að koma á fót rafíþróttadeildum innan félaganna, einnig að hægt verði að nota frí- stundakortið við iðkun rafíþrótta. Meðal þess sem vonast er til er að börn sem spila tölvuleiki mæti til æfinga og hitti aðra krakka í stað þess að loka sig af heima hjá sér. Þau myndu æfa sig í að verða betri spilarar undir handleiðslu þjálfara og þannig myndu þau örvast félags- lega, bæta sig í leiknum og eignast vini með svipuð áhugamál. „Ég býst við að útspil borgarinnar hafi stór áhrif. Þetta hjálpar félögun- um sem hafa áhuga á að bjóða upp á rafíþróttir, þessu fylgir uppbygging á ákveðinni aðstöðu, ekki síst þekk- ingu á hvernig hægt er að nota tölvu- leikjamiðilinn til að framkalla sömu niðurstöður og í hefðbundnum íþróttum,“ segir Ólafur Hrafn. „Þetta er strax farið að skila sér inn í afreks- senuna á Íslandi. Við erum að sjá virkilega flotta einstaklinga sem eru loksins að fá stuðning og utanum- hald til að ná lengra.“ Nefnir hann að þó svo að búnaðurinn sé nokkuð dýr þá sé það talsvert ódýrara en að byggja keppnisvelli. Það er áhugi á að byggja upp raf- íþróttastarf á landsbyggðinni en sú vinna er skemmra á veg komin en samtökin vilja. Hugmyndir eru uppi um slíkt starf á Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði og í Borgarnesi. „Við búumst fastlega við því að f leiri bæjarfélög, bæði á höfuð- borgarsvæðinu og á landsbyggðinni, muni leggja okkur lið,“ segir Ólafur Hrafn. „Það væri frábært að geta haft keppni á milli höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar í gegnum tölvu. Svo má ekki gleyma því að margir af okkar bestu spilurum, jafnvel á heimsvísu, eru á landsbyggðinni.“ arib@frettabladid.is Leikar hefjast í dag hjá Rafíþróttasambandinu Eftirspurn frá foreldrum og íþróttafélögum hefur komið Rafíþróttasamband- inu í opna skjöldu. Í gær bættist KR í hóp liða. Formaður Rafíþróttasamtak- anna á von á að sveitarfélög um allt land muni styrkja stofnun deildarinnar. Átta lið keppa í Lenovo-deildinni sem hefst í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Eftirspurnin frá samfélaginu, íþróttafélögum, foreldrum og félagsmiðstöðvum, hefur komið okkur í opna skjöldu. Ólafur Hrafn Steinarsson, for- maður Rafíþrótta- samtaka Íslands SMITSJÚKDÓMAR Sóttvarnalæknir hefur staðið fyrir umfangsmikilli leit að einstaklingum sem komust í tæri við einstakling sem greindist með lungnaberkla í febrúar á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni hafa yfir 300 manns verið rannsakaðir en lokaniður- staða þessara rannsókna liggur ekki fyrir. Talið er að einstaklingurinn, sem smitaðist fyrr á árinu og er íslenskur ríkisborgari, hafi smitast á ferðalagi í þróunarlandi. Í Farsóttarfréttum sóttvarnalæknis segir að berklar hafi verið sjaldgæfir hér á landi undan- farin ár. Árið 2018 greindust átta tilfelli berkla, öll hjá einstaklingum sem eru af erlendir bergi brotnir. Berklar eru alvarlegur smitsjúk- dómur sem berst oftast með úða sem verður til við hósta og hnerra þeirra sem eru með berklabakteríur í hráka. – khn Mikil leit eftir berklasmit Berklar smitast manna á milli í gegnum andrúmsloftið. NORDICPHOTOS/GETTY 2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 9 -4 8 0 8 2 2 D 9 -4 6 C C 2 2 D 9 -4 5 9 0 2 2 D 9 -4 4 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.