Fréttablaðið - 24.04.2019, Qupperneq 6
AÐALFUNDUR
Þristavina
Aðalfundur DC 3 Þristavinafélagsins verður haldinn
fimmtudaginn 9. maí 2019 kl. 17:30 í sal Flugvirkjafélags
Íslands í Borgartúni 22 í Reykjavík.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins, m.a. lögð fram skýrsla formanns, endurskoðaðir
reikningar, stjórnarkjör og fleira.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Átök um fisk og kjöt á lokametrunum
Stór átakamál í grasrót Framsóknarflokksins
n Frumvarp sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra um
innflutning á hráu kjöti og
eggjum gæti reynst Fram-
sóknarflokknum erfitt. Mikil
óánægja er með frumvarpið
í grasrót flokksins og þeir
flokksmenn sem Fréttablaðið
ræddi við í síðasta mánuði
voru sammála um að frum-
varpsdrögin gengju of
langt, ótækt væri að leyfa
innflutning á hráu, ófrosnu
kjöti og að flokksforystan
hlyti að koma í veg fyrir það.
Þingmenn Miðflokksins og
Flokks fólksins hafa talað mjög
gegn frumvarpinu. Sigmundur
Davíð Gunnlaugs-
son, formaður
Miðflokksins,
sagði málið full-
veldismál í fyrstu
umræðu um málið
á Alþingi. „Með
þessu væri ekki að-
eins verið að bæta
við þá efnahags-
legu ógn sem
íslenskur land-
búnaður stendur frammi fyrir
heldur væri verið að skapa nýja
og mjög umtalsverða ógn við
heilbrigði íslenskra manna og
dýra,“ sagði Sigmundur í ræðu-
stól og hvatti stjórnarflokkana
til að standa á fyrri prinsippum
flokka sinna í málinu.
n Frumvarp, sem ætlað er að
bregðast við vanda sauð-
fjárbænda, gæti haft mót-
vægisgildi við ófrosna kjötið
en Fréttablaðið hefur einnig
greint frá lítilli trú flokks-
manna í Framsókn á aðgerða-
áætlun stjórnvalda vegna
vanda sauðfjárbænda.
n Þriðji orkupakkinn er undir
sömu sök seldur og ófrosna
kjötið. Í öndverðu mjög um-
deilt mál í stjórnarflokkunum
og ekki síst í Framsókn. Mið-
flokkurinn og Flokkur
fólksins eru þó
einu flokkarnir
sem standa fast
gegn sam-
þykkt.
Umdeild velferðarmál
Þingkonan Hall-
dóra Mogensen
verður með tvær
af rótgrónustu
stofnunum sam-
félagsins í fanginu
þetta vorið en
hún er ekki aðeins
formaður velferðar-
nefndar heldur einnig framsögu-
maður tveggja umdeildra mála
heilbrigðisráðherra sem þar eru til
meðferðar.
n Frumvarp um neyslurými er
gagnrýnt mjög í umsögn lög-
reglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu, af lagatæknilegum
ástæðum. Hefur ríkissaksóknari
tekið undir þá gagnrýni. Búast
má við töluverðri vinnu við
frumvarpið á vettvangi vel-
ferðarnefndar, eigi það að verða
að lögum í vor.
n Frumvarp um þungunarrof
hefur hins vegar kallað á mikla
gagnrýni trúargeirans og er
frumvarpið einnig umdeilt í
mörgum flokkum. Málið snertir
á siðferðilegum álitaefnum um
lífið sjálft, hvenær það telst
kviknað og hvenær réttinda-
vernd þess hefst.
Listageirinn ær vegna sviðslista
n Frumvarp menntamálaráð-
herra um sviðslistir kallaði fram
hörð viðbrögð úr listageiranum
þegar það var kynnt í samráðs-
gátt stjórnvalda.
STJÓRNMÁL Mikið mun mæða á
nefndum þingsins á síðustu vikum
yfirstandandi þings. Einkum þó á
atvinnuveganefnd þar sem mörg
stór og umdeild mál eru til með-
ferðar. Má þar nefna frumvarp
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra um að heimila innflutning á
hráu kjöti, frumvarp um aflaheim-
ildir í makríl, tvö frumvörp um fisk-
eldi og frumvarp sem ætlað er til að
bregðast við vanda sauðfjárbænda.
Þá er enn ótalið stærsta málið; þriðji
orkupakkinn sem er til umfjöllunar
bæði í atvinnuveganefnd og utan-
ríkismálanefnd.
Stór mál bíða afgreiðslu
þingsins en sex vikur
eru til stefnu. Full-
veldið sjálft er undir í
umræðum um kjöt og
orku. Trúarbrögð lita
umræðu um þungunar-
rof. Mörg frumvörp
varða starfsemi fjöl-
miðla og tjáningarfrelsi.
Tvö frumvörp um fiskeldi
n Fiskeldismálin hafa verið
eitt af stóru pólitísku málum
vetrarins. Tvö frumvörp eru
til umfjöllunar í atvinnuvega-
nefnd; annars vegar um heildar-
endurskoðun fiskeldislaga
og hins vegar um gjaldtöku í
greininni.
Kvótakerfið fest í sessi
n „Það er verið að setja
reglur um tiltölulega
nýja auðlind og festa
hana við gamalt kerfi
og umdeilt kerfi. Það
er hvorki verið að opna
á tækifæri fyrir nýliðun
né innheimta sanngjarnt
auðlindagjald,“ segir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar, um makrílfrumvarp
sjávarútvegsráðherra.
Fjölmiðlar og tjáningarfrelsi
Mörg frumvörp tengd fjölmiðlum
og tjáningarfrelsi eru til með-
ferðar í þinginu eða væntanleg til
þings.
n Birting dóma Fjölmiðlar hafa
gagnrýnt fyrirhugaða þrengingu
á myndatökum í dómsölum
og áhyggjum lýst af breyttu
fyrirkomulagi á birtingu dóma.
Frumvarp sem fjallar um þessi
atriði er til meðferðar í alls-
herjar- og menntamálanefnd.
n Hatursorðræða Annað mjög
umdeilt frumvarp um haturs-
orðræðu bíður einnig með-
ferðar hjá nefndinni en mark-
mið þess er að orða tiltekinn
alvarleika ummæla til að þau
teljist hatursorðræða. Er með
frumvarpinu brugðist við gagn-
rýni á hatursorðræðuákvæði
hegningarlaganna sem leggur
til dæmis bann við því að hafa
megi uppi móðgandi ummæli
um trúarbrögð fólks. Frum-
varpið hefur verið harðlega
gagnrýnt, einkum á þeim grund-
velli að um tilslökun gagnvart
útlendingaandúð sé að ræða.
n Þagnarskylda Enn eitt tjáningar-
frelsisfrumvarpið lýtur að ein-
földun á ákvæðum um þagnar-
skyldu opinberra starfsmanna
en flókin umgjörð um þau þykir
hafa staðið því fyrir þrifum að
opinberir starfsmenn geti
komið á framfæri málum sem
eiga erindi til almennings.
n Upplýsingalög Breytingar á
upplýsingalögum eru til með-
ferðar í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd en frumvarpið
fellir bæði stjórnsýslu dóm-
stóla og Alþingis undir gildissvið
laganna.
n Meiðyrði Frumvarp um
breytingar á meiðyrðalög-
gjöfinni hefur ekki verið lagt
fram á þingi en það var kynnt í
samráðsgátt stjórnvalda fyrir
nokkru.
n Fjölmiðlar Viðbúið
er að átök verði um
boðað frumvarp
menntamálaráð-
herra um stuðning
við fjölmiðla en
frumvarpið hefur
ekki enn verið lagt
fram á Alþingi.
Búast má við miklum
skoðanaskiptum um
málið, ekki eingöngu eftir
flokkslínum heldur einnig innan
flokka.
Nokkur stór efnahagsmál
Tvö stór stefnumarkandi mál
bíða afgreiðslu þingsins á sviði
efnahagsmála. Auk þeirra er ljóst
að gera þarf breytingar á fjár-
málaáætlun sem er til meðferðar í
fjárlaganefnd.
n Þjóðarsjóður Flestir sem veitt
hafa umsögn um fyrirhugaðan
þjóðarsjóð sem ætlað er að
mæta óvæntum áföllum ríkis-
sjóðs, hafa verið gagnrýnir á
málið, ýmist á hugmyndina í
heild sinni eða útfærslu frum-
varpsins. Meðal gagnrýnenda
eru ASÍ, Viðskiptaráð, Fjármála-
eftirlitið, Frosti Sigurjónsson
og fleiri. Í umsögnum er meðal
annars bent á að óheppilegt
sé að sama aðila verði falið að
annast vörslu sjóðsins, eigna-
stýringu og annan rekstur.
Brugðist hefur verið við gagn-
rýninni í minnisblaði fjármála-
ráðuneytisins til þingsins.
n Samruni Fjármálaeftirlits og
Seðlabanka Áform um sam-
einingu Fjármálaeftirlitsins
hafa hlotið töluverða gagnrýni,
meðal annars frá bankaráði
Seðlabankans sem telur að ekki
fari vel á því að sömu einstakl-
ingar beri ábyrgð á rannsóknum
og eftirliti annars vegar og hins
vegar um leið þeirri kjarnastarf-
semi Seðlabankans að móta
peningastefnu og vera til ráð-
gjafar um stjórn efnahagsmála
landsins. Undir þessa gagn-
rýni hefur Már Guðmundsson
tekið að nokkru leyti og einnig
umboðsmaður Alþingis. Í öðru
frumvarpi forsætisráðherra er
lagt til að seðlabankastjórar
verði fjórir og stýri hver um sig
aðgreindum deildum Seðla-
bankans. Með því fyrirkomulagi
verði ólík hlutverk stofnunar-
innar frekar aðgreind.
n Fjármálaáætlun
Útlit er fyrir umfangs-
miklar breytingar
á fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar
vegna brostinna
forsendna um
hagvöxt, afla-
brests, samdrátt-
ar í ferðaþjónustu,
falls WOW air, kjara-
samninga o.fl.
adalheidur@frettabladid.is
2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
9
-6
F
8
8
2
2
D
9
-6
E
4
C
2
2
D
9
-6
D
1
0
2
2
D
9
-6
B
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K