Fréttablaðið - 24.04.2019, Síða 8
LÖGREGLUMÁL Brynja hússjóður
mun í framhaldi af bruna sem átti
sér stað í bílakjallara við Sléttuveg
á páskadag taka harðar á því að rusl
sé skilið eftir í bílakjallara. Bruninn
varð snemma páskadagsmorguns í
húsi sem er á vegum sjóðsins. Talið
er að hann sé af mannavöldum.
Samkvæmt upplýsingum frá Birni
Arnari Magnússyni, framkvæmda-
stjóra Brynju, fannst á vettvangi
brunans bensínbrúsi og virðist sem
kveikt hafi verið í dekkjum sem átti
eftir að ganga frá í bílakjallaranum.
Björn segir í samtali við Frétta-
blaðið að íbúar hafi verið beðnir að
fjarlægja dekkin áður en bruninn
varð. „Við höfum beðið íbúa að vera
ekki með dekk þarna og í framhaldi
af þessu verður tekið enn harðar á
því. Það verður ekkert leyfilegt
þarna eftir þetta,“ segir Björn.
Talsverður fjöldi bíla varð fyrir
skemmdum í brunanum, auk þess
sem húsnæðið sjálft skemmdist eitt-
hvað. Björn segir að, í samráði við
tryggingafélag, hafi iðnaðarmenn
verið fengnir á vettvang í dag og að
bílarnir sem voru í kjallaranum hafi
verið fluttir í alþrif.
Hann segir að það líti jafnvel út
fyrir að þeir séu ekki eins skemmdir
og upphaflega var talið en það komi
í ljós að þrifum loknum hversu
mikið tjónið er.
„Mér sýnist að þetta hafi farið
betur en maður þorði að vona. En
það er mikið tjón á húsnæðinu.
Maður veit ekki með bílana en
manni sýnist að þeir hafi sloppið,“
segir Björn. – la
Bensínbrúsi fannst á vettvangi brunans við Sléttuveg
Grunur er um íkveikju við Sléttuveg. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki
beint. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
UTANRÍKISMÁL Samskipti Íslands og
Kína hafa aukist til muna á síðustu
árum og vinna löndin að ýmsum
samstarfsverkefnum bæði hér á
landi og ytra. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í erindi Haf liða
Sævarssonar, verkefnastjóri á skrif-
stofu alþjóðasamskipta Háskóla
Íslands, á ráðstefnu Alþjóðamála-
stofnunar Háskóla Íslands sem fer
fram í Norræna húsinu á morgun
frá kl. 9 til 18. Fjölmörg erindi og
pallborðsumræður fara fram á ráð-
stefnunni, þar á meðal erindi Haf-
liða um samskipti Íslands og Kína.
Hann segir Íslendinga njóta góðs
af hátækniuppbyggingu í Kína sam-
hliða einföldum framleiðsluvörum.
Stóra atriðið er þó stór samstarfs-
verkefni milli þjóðanna. „Kínverjar
hafa fjárfest í áhugaverðu fyrir-
tæki í Hafnarfirði sem framleiðir
stevíujurt, þar hafa þeir komið inn
með kínverskt hugvit, þeir eru
líka að fjárfesta í erfðafræðirann-
sóknum,“ segir Hafliði. „Íslendingar
hafa svo komið að uppbyggingu á
hitaveitum í Kína.“ Þar að auki hafi
Kínverjar áhuga á norðurslóðum,
þá helst siglingaleiðum yfir norður-
skautið. – ab
Kínverjar
með áhuga á
norðurslóðum
Hafliði Sævarsson, verkefnastjóri
hjá Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/HÍ
Við höfum beðið
íbúa að vera ekki
með dekk þarna og í fram
haldi af þessu verður tekið
enn harðar á því.
Björn Arnar Magnússon,
framkvæmdastjóri Brynju
STJÓRNMÁL Álagning Orkuveitu
Reykjavíkur á vatnsgjald árið 2016
var ólögmæt. Fram kemur í úrskurði
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins sem birtur var í gær að
það sé með öllu óheimilt að ákveða
hærra gjald fyrir vatnsveitu en sem
nemur meðalkostnaði af því að
veita þjónustuna. Vatnsgjaldi sé
aðeins ætlað að standa undir rekstri
veitunnar.
Fram kemur í kæru íbúa í Reykja-
vík að arðsemi OR af vatnsveitu-
starfsemi hafi verið 15 prósent árin
2009 og 2010, á sama tíma og meðal-
arðsemi OR í heild á sama tíma
hafi verið þrjú prósent. Samkvæmt
útreikningum OR hafi arðsemi
vatnsveitunnar umfram fjármagns-
kostnað verið um 2 prósent árið
2016. Er það mat ráðuneytisins að
það sé óheimilt að taka arð af vatns-
veitu og því er fallist á kröfu íbúans
um að vatnsgjaldið sé ólögmætt.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR,
er í fríi og var ekki búinn að lesa
úrskurðinn áður blaðið fór í prent-
un. Fram kemur í skriflegu svari frá
OR að þar hafi ítrekað verið óskað
eftir leiðbeiningum frá ráðuneytinu
um hvað leggja skuli til grundvallar
við álagningu vatnsgjalds. Er bent á
að vatnsgjald hafi verið lækkað um
meira en 10 prósent bæði árið 2017
og 2018. „Þar sem gjaldskrár hafa
verið lækkaðar í takti við batnandi
afkomu vatnsveiturekstursins virð-
ast fjárhagsleg áhrif úrskurðarins
við fyrstu skoðun óveruleg. Þessi
áhrif skýrast þegar samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið hefur
veitt leiðsögn um gjaldskrárnar,“
segir í svari OR.
Hildur Björnsdóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins og stjórn-
armaður í OR, segir úrskurðinn ekki
koma á óvart. „Ég hef ekki dregið
dul á þá skoðun mína að óeðlilegt sé
að reka veituþjónustu á einokunar-
markaði, í hagnaðarskyni. Eins og
málið horfir við mér er gjaldskrám
haldið óþarflega háum svo mögu-
legt sé að greiða Reykjavíkurborg
arð. Rekstrarafgangur af veitustarf-
seminni er þannig nýttur í önnur
óskyld verkefni á vegum borgar-
innar. Það er auðvitað fátt annað
en dulbúin skattheimta.“
Hefur hún fulla trú á því að OR
taki á niðurstöðu úrskurðarins af
ábyrgð og festu og telur ólíklegt
að aðrar gjaldskrár hækki til að
vega upp á móti tekjutapi. „Mér
þykir eðlilegt að eigendur taki arð-
greiðslustefnuna til endurskoðunar
í kjölfar úrskurðarins. Ég bind vonir
við að sú vinna veiti svigrúm til að
lækka álögur á íbúa,“ segir Hildur.
Ráðuneytið hefur ekki lagaheimild
til að krefja OR um endurgreiðslu
á ofgreiddu vatnsgjaldi og vísaði
þeirri kröfu frá. Hildur segir erfitt
að segja til um áhrif af mögulegum
endurgreiðslum á þessu stigi.
„Okkur hefur ekki gefist svigrúm
til að setjast niður og átta okkur
á þeim fjárhæðum sem um er að
ræða. Þetta þarf allt að skoða af
yfirvegun.“
Mun ráðuneytið koma til með að
skoða gjaldskrár allra sveitarfélaga
þegar kemur að vatnsveitum.
arib@frettabladid.is
OR telur áhrif úrskurðar um
ólögmæti vatnsgjalds óveruleg
Samkvæmt úrskurði sveitarstjórnarráðuneytisins var vatnsgjald Orkuveitu Reykjavíkur árið 2016 ólög-
mætt. OR segir fjárhagsleg áhrif óveruleg við fyrstu skoðun. Hildur Björnsdóttir, stjórnarmaður í Orku-
veitu Reykjavíkur, segir gjaldskrám hafa verið haldið óþarflega háum til að greiða Reykjavíkurborg arð.
Íbúi í Reykjavík kærði Orkuveitu Reykjavíkur til sveitarstjórnarráðuneytisins og hafði betur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Það er mat ráðuneytisins
að það sé óheimilt að
taka arð af vatnsveitu og
því var fallist á kröfu íbúa
um að vatnsgjaldið væri
ólögmætt.
Eins og málið horfir
við mér er gjald
skrám haldið óþarflega
háum svo mögulegt sé að
greiða Reykjavíkurborg arð.
Rekstrarafgangur af veitu
starfseminni er þannig
nýttur í önnur óskyld
verkefni á vegum borgar
innar. Það er auðvitað fátt
annað en dulbúin skatt
heimta.
Hildur Björnsdótt-
ir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks-
ins og stjórnar-
maður í OR
VIÐSKIPTI Coca-Cola ætlar að
breyta um lögun á kókdósunum.
Verða dósirnar hærri og mjórri, en
verða áfram 33 cl. Magnús Viðar
Heimisson, vörumerkjastjóri hjá
Coca-Cola á Íslandi, segir að nafnið
á Coca-Cola Zero sykur verði héðan
í frá Coca-Cola án sykurs. Innihald-
ið mun ekki breytast.
„Það hafa margir ruglast á nafn-
inu Zero sykur og ekki áttað sig á
að það sé enginn sykur í drykkn-
um,“ segir Magnús Viðar. Hann
segir þessa tegund
af dósum komna til
að vera, Coca-Cola
Light mun einnig
fara í þessa tegund
af dósum og síðar
Sprite og Fanta. Á
hann von á því að
Ölgerðin, sem fram-
leiðir Pepsi hér á
landi, muni einnig
skipta yfir í svipaðar
dósir. – ab
Gosdósir breyta
um lögun
2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
9
-6
A
9
8
2
2
D
9
-6
9
5
C
2
2
D
9
-6
8
2
0
2
2
D
9
-6
6
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K