Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2019, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 24.04.2019, Qupperneq 10
SRÍ LANKA Fyrsta fjöldaútförin fór fram á Srí Lanka í gær eftir sprengju­ árásirnar sem gerðar voru á páska­ dag. Tala látinna hefur hækkað jafnt og þétt frá því árásirnar voru gerðar og stóð í 310 í gær. Um 500 til viðbótar særðust í árásunum, samkvæmt því er srílanskir miðlar höfðu eftir lögreglu. Sex sprengjur sprungu næstum samstundis á hótelum í Colombo og í kirkjum í Negombo, Batticaloa og Kochchikade meðan á messu stóð á páskadag. Um fimm klukku­ stundum seinna sprakk sjöunda sprengjan nærri dýragarði í Dehi­ wala og sú áttunda um hálftíma síðar í Dematagoda. Útför þrjátíu fórnarlamba fór fram í gær í kirkju heilags Sebast­ íans í Negombo, einni þeirra kirkna sem ráðist var á. Skorið var á samfélagsmiðla og útgöngubanni lýst yfir í kjölfarið. Á mánudegi var útgöngubanni aflétt en lýst aftur yfir um kvöldið. Sprengja fannst á f lugvellinum í Colombo og var gerð óvirk og 87 hvellhettur á rútustöð í Pettah. Síðar fann lögregla sprengju við kirkju í Colombo sem sprakk þegar reynt var að gera hana óvirka. Neyðarástand ríkir nú á eyríkinu. Lögregla og her hafa þar með algjör völd til þess að handtaka og yfir­ heyra grunaða án þess að þurfa að fá heimildir frá dómstólum. Fjöru­ tíu hafa verið handtekin í tengslum við árásirnar. Ekki liggur fyrir hversu mörg særðust eða fórust í hverri sprengju­ árás fyrir sig. Samkvæmt lögreglu voru upphaf legu árásirnar átta sjálfsmorðsárásir á ábyrgð öfga­ samtakanna National Thowheed Jamath (NTJ). Þessi samtök hafa, samkvæmt breska ríkisútvarpinu, ekki gert stórar árásir sem þessar áður. NTJ hefur ekki lýst yfir ábyrgð á árásunum. Hins vegar gerðu hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIS) það í gær á AMAQ , fréttaveitu sinni. Ruwan Wijewardene, utanríkis­ ráðherra Srí Lanka, sagði á þingi í gær að á upphafsstigi rannsóknar líti út fyrir að NTJ hafi gert árás­ irnar sérstaklega til þess að hefna fyrir hryðjuverkaárás hvíts þjóð­ ernissinna á moskur í Christchurch í síðasta mánuði. Þá myrti árásar­ maður fimmtíu manns. „Það verður að vera á hreinu að þessar árásir [á Srí Lanka] voru ekki gerðar með trú í huga. Árásarmenn­ irnir höfðu hefnd, hatur og illsku að leiðarljósi. Við megum ekki áfell­ ast hið friðsæla samfélag múslima vegna gjörða árásarmanna,“ bætti Wijewardene við. Utanríkisráðherra sagði aukin­ heldur að yfirvöld myndu nú kemba hverja sveit til þess að fanga og refsa öllum þeim sem komu að árás­ unum. „Við höfum nú þegar fram­ kvæmt þýðingarmiklar handtökur og rannsökum möguleg tengsl við alþjóðleg öfgasamtök.“ Greint hefur verið frá því að srílanskar öryggisstofnanir hafi fylgst með NTJ og gert lögreglu viðvart um að árás gæti verið yfirvofandi. Hins vegar var Ranil Wickremesinghe forsætisráðherra ekki gert viðvart né ráðuneyti hans. Rajitha Senaratne, upplýsingafull­ trúi ríkisstjórnarinnar, sagði það vera vegna samskiptaörðugleika á milli Wickremesinghe og Sirisena forseta. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort Sirisena sjálfum hafi verið gert viðvart. Wickremesinghe sagði í gær að stjórnvöld teldu vissulega mögulegt að ISIS hafi komið að árásunum. Sirisena hefur lengi átt í útistöð­ um við Wickremesinghe. Hann rak hann úr starfi og gerði sinn gamla erkifjanda, Mahinda Rajapaksa, að forsætisráðherra. Þingið lýsti ítrekað yfir vantrausti á Rajapaksa og svo fór í desember að Wickre­ mesinghe fékk sæti sitt á ný. Rajapaksa kvaddi sér til hljóðs á þingi í gær og sakaði stjórnvöld um að hafa vanrækt leyniþjónustu­ stofnun ríkisins árum saman. „Rík­ isstjórnin getur ekki f lúið undan ábyrgð sinni. Hún vissi af árásun­ um en varaði hvorki almenning né kirkjur við. Gekk svo úr skugga um að enginn ráðherra né þingmaður sækti messu,“ sagði Rajapaksa í ræðu sinni. thorgnyr@frettabladid.is 310 hið minnsta fórust í árás- unum. BRETLAND Viðræður ríkisstjórnar Theresu May, forsætisráðherra Bret­ lands, við Verkamannaflokkinn um útgöngu Bretlands úr Evrópusam­ bandinu hófust á ný í gær. Fyrsta lota viðræðna bar ekki árangur og fékk May nokkra gagnrýni á sig frá öðrum úr Íhaldsflokki fyrir að leita á náðir stjórnarandstöðunnar. Algjör pattstaða hefur ríkt á breska þinginu um Brexit. Þingið hefur í þrígang hafnað þeim samn­ ingi sem May­stjórnin náði við ESB um útgöngu en hefur sömuleiðis mistekist að ná saman um aðra nálgun í útgöngumálinu. Þá hefur þingið einnig hafnað samnings­ lausri útgöngu og hefur því þurft að fresta útgöngu í tvígang. Nigel Evans, Íhaldsmaður og annar stjórnenda hinnar áhrifa­ ríku 1992­nefndar f lokksins, er sér meðal annars um vantrausts­ atkvæðagreiðslur, sagði við BBC í gær að May ætti að segja af sér eins og skot. „Eina leiðin út úr þessari pattstöðu er að Íhaldsflokkurinn fái nýjan leiðtoga,“ sagði Evans. Hann bætti því svo við að May væri nú að leita til Jeremys Corbyn, leiðtoga Íhalds- og Verkamannaflokkur hefja aftur viðræður um Brexit Corbyn og May, leiðtogar stærstu flokka Bretlands. NORDICPHOTOS/AFP NORÐUR-KÓREA Kim Jong­un, ein­ ræðisherra Norður­Kóreu, mun ferðast til Rússlands og eiga þar fund með Vladímír Pútín, forseta Rússa. Frá þessu var greint í norður­ kóreska ríkissjónvarpinu, KCNA, í gær. Óljóst er nákvæmlega hvenær fundurinn verður haldinn. Sam­ kvæmt BBC er talið að leiðtogarnir hittist í Vladívostok á austurströnd Rússlands seint í þessum mánuði. Hinn fyrirhugaði fundur Kim með Pútín er síður en svo óvæntur. Allt frá því Kim hóf að hitta erlenda leiðtoga, þá Donald Trump Banda­ ríkjaforseta, Xi Jinping Kínaforseta og Moon Jae­in Suður­Kóreuforseta, hefur verið rætt um mögulegan fund með Pútín. Fundurinn með Pútín mun fylgja í kjölfar fundar með Trump sem álitinn var misheppnaður, enda náðu Kim og Trump ekki samkomu­ lagi um framhaldið í kjarnorkuaf­ vopnun Kóreuskagans og undirrit­ uðu enga sameiginlega yfirlýsingu. Sovétríkin voru á árum áður ein helsta vinaþjóð Norður­Kóreu. Frá falli Sovétríkjanna hafa Rússar nokk­ uð fjarlægst einræðisríkið en Pútín, sem og Dmítríj Medvedev, fyrrver­ andi forseti, funduðu báðir með Kim Jong­il, einræðisherra og föður Kim Jong­un, á sínum tíma. – þea Kim sækir Pútín heim FRAKKLAND Unnið var hörðum höndum að því í gær að skýla Notre Dame­kirkjunni fyrir votviðri. Þak kirkjunnar og kirkjuspíran stór­ eyðilögðust í bruna í síðustu viku og óttast er að rigning og mögulega þrumuveður gætu valdið miklu tjóni bæði inni í kirkjunni og á ytra byrði hennar. Þá eru stoðir bygg­ ingarinnar einnig veikburða og gæti allt álag valdið stórtjóni. Philippe Villeneuve, yfirarki­ tekt kirkjunnar, sagði í samtali við franska miðilinn BFMTV í gær að það væri í algjörum forgangi að setja vatnsheldan segldúk yfir kirkjuna. „Dúkurinn er á leiðinni. Starfsfólkið og vinnupallarnir eru tilbúnir,“ sagði Villeneuve. Emmanuel Macron, forseti Frakk­ lands, hefur heitið því að endur­ byggingu kirkjunnar verði lokið innan fimm ára. Það er að segja áður en Ólympíuleikar verða haldnir í borginni árið 2024. Édouard Philippe forsætisráðherra hefur boðað alþjóðlega hönnunarsam­ keppni fyrir nýja kirkjuspíru. Búast má við því að verkefnið verði bæði f lókið og dýrt. Frakkar búa hins vegar svo vel að fjöldi sér­ fræðinga og verktaka hefur boðið fram krafta sína. Þá hafa auðjöfrar og stórfyrirtæki heitið hundr­ uðum milljóna evra til verkefnis­ ins. Á meðan kirkjan undirgengst viðgerðir stendur svo til að reisa bráðabirgðakirkju úr viði á kirkju­ torginu svo sóknarbörn geti áfram sótt messur. – þea Frakkar reyna að skýla Notre Dame frá votviðri Kirkjan stórskemmdist í bruna. NORDICPHOTOS/AFP Þjóðarsorg og fjöldaútfarir Útför þrjátíu fórnarlamba haldin í einni þeirra kirkna sem ráðist var á um helgina. Utanríkisráðherra segir útlit fyrir að um hefndarverk hafi verið að ræða. Tala látinna hækkar sífellt. 310 eru nú sögð látin. Kona grætur við líkkistu fórnar- lambs árásarinnar á kirkju heilags Sebastíans. NORDICPHOTOS/AFP Mikil sorg ríkir á Srí Lanka eftir hinar mannskæðu árásir sem gerðar voru á páskadag. NORDICPHOTOS/AFP Verkamannaflokksins, þegar hún ætti að vera að leita til þjóðarinnar. Ósáttir Íhaldsmenn fengu það í gegn í vikunni að viðbótarlands­ fundur yrði haldinn í næsta mán­ uði. Þar munu fulltrúar f lokksins hvaðanæva af Bretlandi ræða um ráðgefandi vantrauststillögu á hendur May. Þetta er gert þar sem þingmenn mega ekki lýsa yfir vantrausti á May fyrr en í desember sökum þess að niðurstaða slíkrar atkvæðagreiðslu í desember síðastliðnum var May í hag. – þea Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. NORDICPHOTOS/AFP TÆKNI Suðurkóreski tæknirisinn Samsung hefur innkallað alla þá Galaxy Fold­snjallsíma sem sendir höfðu verið til gagnrýnenda og tæknibloggara. Reuters greindi frá í gær og hafði eftir heimildar­ mönnum. Fold er á meðal fyrstu saman­ brjótanlegu farsímanna. Síminn er útbúinn litlum skjá á framhlið en mun stærri skjá þegar hann er opnaður líkt og um veski sé að ræða. Tækniblaðamenn og ­bloggarar hafa allmargir greint frá því undan­ farna daga að innri skjárinn eyði­ leggist annaðhvort við minnsta áreiti eða jafnvel af algjörlega óljós­ um ástæðum. Skjárinn hefur til að mynda brotnað, bólgnað eða hætt að virka án sýnilegra galla. Síminn átti að koma á markað nú í vikunni en Samsung hefur frestað því til þess að rannsaka skjágallann. Svo virðist sem núningur í hjörum símans valdi skjátjóninu. – þea Innkalla alla Galaxy Fold 2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 9 -5 6 D 8 2 2 D 9 -5 5 9 C 2 2 D 9 -5 4 6 0 2 2 D 9 -5 3 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.