Fréttablaðið - 24.04.2019, Side 14
Dýrunum er ekki eiginlegt
að vera lokuð inni fyrir lífs-
tíð í daunillum skemmum
með þann eina dóm á bak-
inu að okkur finnst kjötið
af þeim gott eða eggin eða
mjólkin undan þeim.
Albert Einstein var tuttugu og sex ára gamall pjakkur og vann á einkaleyfaskrif-
stofu í Bern í Sviss árið 1905 þegar
hann birti fjórar vísindagreinar
sem hver um sig breytti heims-
mynd okkar. Hann er mesti vís-
indamaður allra tíma, langmesti.
Þegar við vísindamenn lendum í
oflæti þurfum við ekki annað en að
segja Abert Einstein upphátt og þá
verður jafnvel þeim forhertasta á
meðal okkar ljóst að í samanburð-
inum er hann eins og lítil steinvala
í Kollafjarðarfjörunni við hliðina
á Esjunni. Ein af vísindagrein-
unum sem Einstein birti vorið
góða fjallaði um sambandið milli
efnis og orku sem hann lýsti með
frægustu jöfnu allra tíma E = mc2.
Hann sýndi fram á að það má líta á
alla hluti sem einhvers konar form
af orku eða að í öllum hlutum búi
orka þótt það sé auðveldara leysa
hana úr læðingi í sumum hlutum
en öðrum. Ekki veit ég hvers vegna
mér dettur þetta í hug í hvert skipti
sem ég heyri á þriðja orkupakkann
minnst, nema ef vera skyldi vegna
barnslegrar löngunar minnar til
þess að verða vitni að því að við
Íslendingar sýnum þannig hugvit-
semi við nýtingu á orku sem við
sækjum í fallvötn að hún beri þess
merki að við séum af sömu dýra-
tegund og Einstein. Umræðan um
orkupakkann er því miður farin
að hljóma eins og frekar innihalds-
lítil deila um keisarans skegg í stað
þess að vera okkur ástæða til þess
að endurskoða afstöðu til þess
hvernig við nýtum þá raforku sem
er sameign þjóðarinnar.
Hér er ein skoðun á því hvernig
við ættum að gera það:
Það bárust um daginn þær
fréttir af aðalfundi Landsvirkj-
unar að af koma hennar hefði
verið betri árið 2018 en í nokk-
urn annan tíma og þrátt fyrir það
ætlaði hún að hækka gjaldskrá
sína um þrjátíu prósent? Lands-
virkjun er í eigu ríkisins þannig að
tekjur hennar umfram rekstrar-
kostnað eru einfaldlega óbein
skattlagning. Raforka sem er seld
til málmbræðslna í eigu erlendra
fyrirtækja er verðlögð samkvæmt
samningum til margra ára þann-
ig að ekki er líklegt að þær gjaldi
í bráð þessa aukna f járþorsta
Landsvirkjunar. Það sama verður
ekki sagt um íslensk fyrirtæki og
heimilin í landinu. Útsöluverð
á rafmagni var notað til þess að
sannfæra erlend fyrirtæki um að
byggja málmbræðslur í landinu
á þeim tíma þegar við sáum ekki
vænni kost til þess að nýta orkuna
okkur til framfærslu. Nú held ég að
sé kominn tími á að við horfum til
þess möguleika að nýta auðveldan
aðgang að vistvænni orku til þess
að ýta undir annars konar og meira
aðlaðandi uppbyggingu. Við eigum
að hafa raforkuna á framleiðslu-
verði og ekki krónu umfram það til
þess að lækka kostnað heimilanna
og hlúa að fjölbreytni í íslensku
atvinnulífi. Eitt dæmi um mögu-
leika sem lægra rafmagnsverð
gæti skapað liggur í landbúnaði. Í
dag f lytjum við inn meiri hlutann
af því grænmeti sem við neytum
frá löndum sem rækta grænmeti
í gróðurhúsum. Mjög stór hluti
af rekstrarkostnaði gróðurhúsa
fer í rafmagn. Við eigum að sjá til
þess að við séum samkeppnishæf
í rekstri gróðurhúsa svo við getum
ræktað okkar grænmeti sjálf, þann-
Stundum er skegg keisarans
fast við andlitið á honum
Kári
Stefánsson
Við eigum að hafa raforkuna
á framleiðsluverði og ekki
krónu umfram það til þess
að lækka kostnað heimil-
anna og hlúa að fjölbreytni í
íslensku atvinnulífi.
Á hverju ári er 56 milljörðum dýra slátrað, sem gerir 2.000 dýr á hverri sekúndu, og er þá
fiskurinn ekki meðtalinn. Áætlað
er að meðal Vesturlandabúi éti yfir
7.000 dýr á líftíma sínum; 11 kýr,
27 svín, 30 kindur, 2.400 hænur, 80
kalkúna og 4.500 fiska. Ef kanínum,
öndum, gæsum, geitum og sjávar-
fangi öðru en fiski væri bætt við
matseðilinn þá gerir þetta 7.500 dýr.
En af er það sem áður var þegar
húsdýrum var haldið til sveita og
fengu að njóta útiveru og sæmilegs
atlætis. Í dag hefur hinn fjandsam-
legi verksmiðjubúskapur að mestu
leyst sveitabúskapinn af hólmi.
Dæmi úr eggjaiðnaðinum: Þegar
varphænum er komið upp þá eru
karlkynsungar flokkaðir frá kven-
kyns. Þeim er síðan hent á færiband
sem endar við kvörn. Goggurinn
á óheppnari ungunum (kven-
kyns) er að hluta klipptur af. Þegar
ungarnir eru orðnir stórir munu
þeir nefnilega eyða lífinu margir
saman í búrum sem eru svo lítil að
þeir geta ekki einu sinni breitt út
vængina. Í leiðindum sínum er hætt
við að hænurnar fari að kroppa í
hver aðra. Varphænur eru „búnar“
þegar þær fara að verpa minna og
er slátrað 18-24 mánaða gömlum.
Fiðurfénaðurinn er hengdur á
löppunum upp á króka og fer eftir
„færibandi“ að hjólblaði sem snýst
og sker hann á háls. Í millitíðinni
eiga hænurnar að hafa farið með
höfuðið ofan í vatn sem slær þær út
tímabundið þannig að dauðinn á að
vera sársaukalaus. Það er hins vegar
vitað að hænurnar „missa“ sumar
hverjar af vatninu.
Dæmi úr mjólkuriðnaðinum:
Mjólkurkýr eru þvingaðar til þess
að bera kálfi á hverju ári, annars
dettur mjólkurnytin niður. Kálf-
urinn er tekinn af kúnni aðeins
nokkurra tíma gamall og er oftast
slátrað. Þeir sem til þekkja segja að
móðirin syrgi kálf sinn svo dögum
skiptir. Mjólkurkýr þjást margar
hverjar af krónískum og þjáningar-
fullum júgurbólgum enda eru þær
að mjólka margfalt á við það sem
er þeim náttúrulegt. Á heimasíðu
íslenskra mjólkurbænda kemur
fram að íslenskar mjólkurkýr
„endist“ að meðaltali í tæp þrjú ár.
Búpeningur er drepinn með pinna
í gegnum hausinn. Í u.þ.b. 10% til-
fella geigar pinninn með miklum
þjáningum fyrir skepnuna og þá
geigar líka oftast pinni númer tvö.
Hlutgerving dýra er algjör – nei,
þetta er ekki rétt, við þurrkum af
hlutum og pössum að þeir brotni
ekki. Við höfum skapað húsdýr-
unum líf sem er hreinasta helvíti
á jörð. Dýrunum er eiginlegt að
njóta útiveru og éta það sem jörðin
gefur af sér. Dýrunum er ekki eigin-
legt að vera lokuð inni fyrir lífstíð
í daunillum skemmum með þann
eina dóm á bakinu að okkur finnst
kjötið af þeim gott eða eggin eða
mjólkin undan þeim. En með þess-
ari helför gagnvart húsdýrunum
erum við um leið að undirrita okkar
eigin dauðadóm. Eina leiðin til þess
að dýrin hrynji ekki niður úr sjúk-
dómum lifandi í þrengslunum og
skítnum af hvert öðru er að dæla
í þau sýklalyfjum. Við stöndum
frammi fyrir því að stærsta fram-
för læknavísindanna, sýklalyfin,
verði ónothæf eftir nokkra áratugi.
Sýklalyfin eru stærsta ástæðan fyrir
langlífi nútímamannsins.
Svo má heldur ekki gleyma
umhverfisáhrifunum. Kjötneysla
jarðarbúa ein og sér losar meira af
gróðurhúsalofttegundum heldur en
allar samgöngur jarðar samanlagt
og þú þarft margfalt meira vatn og
jarðnæði til að „rækta“ kjöt heldur
en matjurtir.
Í þessari umfjöllun hef ég sleppt
húsdýrunum sem er farið verst
með, svínunum. Ef lesandinn vill
vita meira og sjá aðbúnað dýra í
verksmiðjubúskap nútímans með
eigin augum þá bendi ég honum á
heimildarmyndina Dominion, sem
er aðgengileg á YouTube. Allt mynd-
efni Dominion kemur frá hinu „sið-
menntaða“ landi Ástralíu.
Svo er það samviskuspurningin
að lokum:
Vilt þú vera þátttakandi í þessu?
Það erum við sem
erum skynlausar
skepnur, ekki dýrin
Sölvi Jónsson
félagsliði og
tónlistarmaður
ig gætt íslenskan landbúnað nýju
lífi og aukið sjálf bærni mannlífs á
Íslandi. Annað dæmi liggur í gagna-
verum sem eru mjög orkukræf.
Gagnaverin og þjónusta og tækni-
þróun í kringum þau gætu, ef rétt
er haldið á spilunum, gert upplýs-
ingatækni að raunverulegum stór-
iðnaði í landinu í stað þess að vera
sífellt einhvers konar hérumbil
grein. Til þess þurfa gagnaverin að
eiga aðgang að miklu ódýrari orku.
Það væri líka sniðugt ef Alþingi
setti lög til að tryggja öryggi gagna
í gagnaverum til dæmis með því að
lýsa gagnaverin helg vé, sem enginn
mætti sækja í gegn vilja þeirra sem
gögnin eiga, hvorki hið opinbera á
Íslandi né fulltrúar erlendra ríkja.
En það er önnur saga.
Það sem skiptir máli þegar við
ræðum um lagasetning u sem
lýtur að örlögum orku sem við
virkjum úr íslenskri náttúru er
að hún gegnir ekki bara því hlut-
verki að lýsa okkur í myrkri og
hlýja í kulda, heldur býr hún líka
til möguleika á því að skapa og
framkvæma. Ísland er enn þann
dag í dag harðbýlt og fjarri góðu
gamni þannig að við eigum oft
undir högg að sækja í samkeppni
við atvinnuvegi annarra þjóða.
Vistvæna orkan okkar ætti að geta
jafnað samkeppnisaðstöðuna á
mörgum sviðum ef hún væri skyn-
samlega verðlögð. Landsvirkjun er
í eigu þjóðarinnar en hagar sér því
miður eins og það sé hennar aðal-
markmið að fá sem hæst verð fyrir
rafmagnið, án tillits til þess hvernig
það bitnar á atvinnuþróun í land-
inu. Ein af þeim aðferðum sem hún
virðist vilja nota til þess að hækka
verðið er að selja rafmagn í gegnum
sæstreng til annarra landa. Það er
lítill vafi á því að það væri hægt að
fá hærra verð fyrir rafmagnið ann-
ars staðar sem myndi leiða til þess
að verið hækkaði hér og samkeppn-
isaðstaða okkar yrði öll önnur og
verri. Við komum aldrei til með að
geta lifað af því einu saman að selja
rafmagn, en við gætum svo sannar-
lega lifað mun betra lífi með því að
nýta það til að bæta samkeppn-
isaðstöðu okkar á hinum ýmsu
sviðum. Mín afstæðiskenning sem
lýtur að verði á rafmagni er svona:
Frá sjónarhóli Landsvirkjunar sem
sjálfstæðs fyrirtækis á að selja raf-
magn eins dýrt og mögulegt er.
Frá sjónarhóli íslenskrar þjóðar á
Landsvirkjun að selja rafmagn eins
ódýrt og hægt er. Landsvirkjun er
ekki sjálfstætt fyrirtæki heldur
eig n þjóðar innar. Hagsmunir
þjóðarinnar eiga að ráða og það er
ekkert afstætt við það.
Þegar maður veltir fyrir sér orku-
pakkanum þriðja í tengslum við
hugmyndir um það hvernig orkan
sem við virkjum úr íslenskri nátt-
úru sé nýtt og mikilvægi hennar
fyrir framtíð þjóðarinnar, þá held
ég að við ættum láta hann vera
þótt ekki sé nema vegna þeirra
skilaboða sem samþykkt hans
myndi senda börnum okkar og
barnabörnum. En ef Alþingi sam-
þykkir orkupakkann þriðja held ég
að við lifum það svo sem af vegna
þess að við erum öll, 350 þúsund,
orðin atvinnumenn og konur í
því að takast á við þau bjánasköp
kjörinna fulltrúa þjóðarinnar sem
þeir fremja gjarnan í nágrenni
Austur vallar, þau afdr ifar ík u
inni í hlöðnu steinhúsi sem blasir
við Jóni Sigurðssyni, þau sem eru
næstum takmarkalaust eymdarleg
í depurð sinni í öðrum húsum þar
í nágrenninu.
2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
9
-5
1
E
8
2
2
D
9
-5
0
A
C
2
2
D
9
-4
F
7
0
2
2
D
9
-4
E
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K